Beint í efni

9. fundur

25.08.2020
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

9. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

25.08.2020

Kl. 15:00 - 15:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2006080

01

Goðatún 12 - Endurbygging bílskúrs - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að breytingu deilskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingareits vegna bílgeymslu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillgan skoðast því samþykkt. (sjá einnig mál nr.2005191). Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2007128

02

Bakkaflöt 2-Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir smáhýsi úr steinsteypu undir geymslu og bað.

Skipulagsstjóri metur tillögun sem óverulega breyting á deiliskipulagi Flata og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Bakkaflatar 1, 3 og 4 og Hagaflatar 18, 20 og 22.Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2007100

03

Krókamýri 56 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að hæð girðingar á lóðarmörkum. Skipulagstjóri gerir ekki athugasemd við hæð girðinga að götu né á lóðarmörkum að Krókamýri 54.Athygli er vakin á því að þessi afgreiðsla nær ekki til girðinga við eða á lóðarmörkum annarra aðliggjandi lóða.

Málsnúmer 2008275

04

Maríugata 23-29 breyting á þaki - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2007394

05

Maríugata 31-37 breytingar á raðhúsi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2006070

06

Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2006486

07

Kinnargata 39 - Umsókn um byggingarleyfi

Löðg fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að að breyta hæðarkótum húshlutanna þannig að þeir verið í sömu hæð. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hæðarkóta húss varðar á meðan að miðað er við neðri gólfkóta. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.