Maríugata 23-29 breyting á þaki - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Eigendur komu með undirritað samþykki nágranna.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
12. fundur
Eigendur komu með undirritað samþykki nágranna.
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Austurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingum á þakhalla. Lögð fram gögn þar sem eigendur þeirra eigna sem grenndarkynning nær til hafa staðfest með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
13. (872). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um breytingu þakhalla, hæðarkóta og legu bílastæða raðhúsalóðanna við Maríugötu 23-29, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Maríugötu 17-21, 26-28, 30-32, 31-37 og 34-40. (Mál nr.2008275)
Bæjarráð Garðabæjar
04
36. (1944). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um breytingu þakhalla, hæðarkóta og legu bílastæða raðhúsalóðanna við Maríugötu 23-29, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Maríugötu 17-21, 26-28, 30-32, 31-37 og 34-40.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta sem nær til raðhúsalengjunnar Maríugata 23-29 sem er af gerð R2. Gert er ráð fyrir lítilsháttar breytingu á þakhalla, hæðarkóta og legu bílastæða. Skipulagsnefnd leggur til að ef samræma á hæðarkóta sé lægri kóti valinn. Með vísan í umsögn er tillögunni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Maríugötu 17-21, 26-28, 30-32,31-37 og 34-40.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
10. fundur
Fyrirspurn er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
10
9. fundur
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.