Beint í efni

12. fundur

26.10.2020
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

26.10.2020

Kl. 15:30 - 16:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2009569

01

Hólmatún 56 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lagður fram tölvupóstur frá eigendum Hólmatúns 56 sem lýsa sig ósátta við þau skilaboð frá skipulagsstjóra að þeim beri að reisa girðingar samkvæmt deiliskipulagi og reglum um girðingar á Álftanesi.

Eigendur tína til ýmis dæmi um skjólveggi og girðingar á Álftanesi þar sem hafa verið reistar og eru ekki í samræmi við skipulag.

Vísað til umræðu í skipulagsnefnd.

Málsnúmer 2008010

02

Litlabæjarvör 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi að Litlubæjarvör 21.

Á meðan að hámarkshæð húss með flötu þaki er 3,5 m þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við hæð hússins.

Með vísan í reglur um girðingar á Álftanesi gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi víki frá kröfu um hæð skjólveggjar við inngang sbr. Reglur um girðingu lóða á Álftanesi grein 2.6.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2008067

03

Litlabæjarvör 23 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi að Litlubæjarvör 23.

Á meðan að hámarkshæð húss með flötu þaki er 3,5 m þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við hæð hússins.

Með vísan í reglur um girðingar á Álftanesi gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi víki frá kröfu um hæð skjólveggjar við inngang sbr. Reglur um girðingu lóða á Álftanesi grein 2.6.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2009654

04

Suðurtún 20 - skjólveggur -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa skjólveggi á lóðarmörkum 1,8 m. Vísað til umfjöllunar í Skipulagsnefnd.

Málsnúmer 2009276

05

Brekkuskógar 9 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að breyta óuppfylltu rými í geymslu-og þvottarými. Gluggi verður settur á geymslu.

Ekkert deiliskipulag er í gildi við Brekkuskóga. Samþykki annarra eigenda fyrir umsókninni hússins liggur fyrir.

Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.grein skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Brekkuskóga nr. 7, 8,10, 11 og 12.

Málsnúmer 2003173

06

Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar vegna óuppfylltra gluggalausra rýma á neðri hæð. Þau reiknast þá ekki með við útreikning nýtingarhlutfalls þar sem að grenndaráhrif þeirra rýma eru hverfandi. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2010246

07

Grenilundur 10 og 12 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Skipulagsstjóri vísar tillögu að breytingu byggingarreita húsanna til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda skv. 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123 2010. Grennarkynna skal eigendum Greinilundar 7,8,9 og 11 sem og Einilundar 7 og 9. Leggja skal fram breytingaruppdrátt deiliskipulags ásamt skýringarmynd sem grenndarkynnt verða.

Málsnúmer 2008230

08

Dalsbyggð 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir

Tillaga lögð fram að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga þar sem ekkert deiliskipulagi er í gildi við Dalsbyggð.

Engar athugasemdir hafa borist.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2007070

09

Seinakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja á 60 % útbyggingarreits til vesturs.

Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Seinakurs 3, 5 6 og 10 sem og Stórakurs 5,7 og 9.

Málsnúmer 2006442

10

Smádreifistöð við Maltakur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags íþrótta- og skólasvæðis við Skólabraut sem gerir ráð fyrir lóð fyrir smádreifistöð Veitna. Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags og vísar til grenndarkynningarþ. Grenndarkynna skal stjórnendum Fjölbrautarskóla Garðabæjar.

Málsnúmer 1910059

11

Keldugata 1 -Umsókn um byggingarleyfi

Vísað til frekari skoðunar.

Málsnúmer 2008275

12

Maríugata 23-29 breyting á þaki - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Eigendur komu með undirritað samþykki nágranna.

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Austurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingum á þakhalla. Lögð fram gögn þar sem eigendur þeirra eigna sem grenndarkynning nær til hafa staðfest með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.

Tillagan skoðast því samþykkt.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2010028

13

Víkurgata 23 - skilmálabreyting samkv meðfylgjandi bréfi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að þakpappi verði heimilaður. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Málsnúmer 2010374

14

Urriðaholtsstræti 14-20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúð fjölgi um eina þar sem tveggja hæða íbúð verði skipt upp. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Málsnúmer 2009649

15

Útivistarstígur frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði. Breyting á deiliskipulagi Heiðmerkur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur sem vísað var til grenndarkynningar hjá Landsneti og Umhverfisstofnun. Lögð fram erindi þeirra sem grenndarkynning nær til þar sem fram kemur að ekki eru gerðar athugasemdir við deiliskipulagsbreytinguna.

Í samræmi við 3.mgr.44.gr.skipulagslaga er tími grenndarkynningar hér með styttur.

Tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2009028

16

Hönnun - Útboð - Útivistarstígur frá Vífilsstaðarvatni að Grunnuvatnaskarði

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að framkvæmdaleyfi sé veitt þegar auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingar hefur birst í B-deild Stjórnartíðinda.