Urriðaholtsstræti 14-20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2010374
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar um það hvort heimilað verði að fjölga um eina íbúð í fjölbýlishúsinu með því að skipta tveggja hæða íbúð upp.
Með vísan í umsögn telur skipulagsnefnd það koma til greina að fjölga íbúðum um eina en sækja verður um deiliskipulagsbreytingu með samþykki annarra eigenda hússins. Sýna þarf fram á að viðbótarbílastæði megi koma fyrir á lóðinni.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
12. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúð fjölgi um eina þar sem tveggja hæða íbúð verði skipt upp. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.