11. fundur
11. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
29.10.2020
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Skipulagsráðgjafar Jóhanna Helgadóttir hjá Eflu, Sigurður Einarsson hjá Batteríinu og Þráinn Hauksson hjá Landslagi kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu.
02
Hnoðraholt norður deiliskipulag
Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu.
Lagðar fram tillögur að götuheitum í Hnoðraholti.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur skipulagsstjóra að götuheitum.
03
Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.
Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu.
04
Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu. Lögð fram tillaga að götuheitum.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur skipulagsstjóra að götuheitum.
05
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 5. Urriðaholt 5.04 Vþ.
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til landnotkunarreitsins 5.04.Vþ í norðanverðu Urriðaholti að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnir og ábendingar sem borist hafa lagðar fram.
Tillagan hefur verið uppfærð eftir forkynningu en er að efni til óbreytt.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. grein Skipulagslaga að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
06
Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni forkynningu ásamt umsögnum og ábendingum sem borist hafa. Tillagan er lögð fram óbreytt efnislega en uppfærð hvað ferlið varðar.
Þegar að deiliskipulagstillagan verður staðfest fellur úr gildi deiliskipulag Urriðaholts viðskiptastrætis. Breytingar á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 og Austurhluta þar sem afmörkun svæðanna var breytt til aðlögunar að deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda nr. 475/2020.
Skipulagsnefnd samþykkir auglýsingu tillgönnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún kynnt samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.
07
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás
Lögð fram tillaga að lýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að reitur fyrir samfélagsþjónustu 2.06 S sameinist reit fyrir íbúðarbyggð 2.04 Íb. Tillagan verði auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir að leikskólalóð breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
08
Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra sem gerir ráð fyrir því að leikskólalóð við Brekkuás breytist í lóð fyrir búsetukjarna. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir samráð við fjölskyldusvið um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að tillögunni verði breytt þannig svigrúm til útfærslu byggingarinnar verði aukið m.a. með tilliti til þess að ákvörðun um aðkomu að íbúðum verði mótuð við hönnun hússins. Breytingartillagan mun nú hljóta kynningu samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.
09
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi
Lögð fram sameiginleg lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 og á breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir breytingum á Garðaholti. Opið svæði 1.89 Op og Íbúðarsvæði 1.76 Íb breyta um lögun til samræmis við tillögur að breytingum deiliskipulags Garðahverfis. Tákn fyrir landnýtingu 1.81 M, 1.77 S og 1.80 S verða lagfærð en þau voru ranglega framsett á aðaluppdrætti aðalskipulagsins
Meirhluti skipulagsnefndar samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Baldur Ó.Svavarsson hafnar framlagðri lýsingu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður fulltrúi minnihlutans hefur marg varað við vanreifuðu einkavæddu deilsikpulagi Garðahverfis Enn eru kynntar breytingar á þessu skipulagi - nú í 10 liðum !.
Hættan á skipulagslausri uppbygginu þessa svæðis er því sannlega fyrir hendi skv. þessum gögnum, líkt og varað hefur verið við. Þarna er að verða til enn eitt bútasaumað skipulagið svo vitnað sé í þekkt orðfæri.
Enn skal minnt á að hér er fórnað einhverju glæsilegasta byggingasvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu, í gæluverkefni, greitt af einkaaðila í bænum. Undirrituðum skilst þó að þessar kynntu breytingarnar séu kostaðar af bæjarsjóði í þetta sinn.
Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."
10
Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Lögð fram sameiginleg lýsing á breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis og Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-3030 og sem gerir ráð fyrir breytingum á Garðaholti. Opið svæði 1.89 Op og Íbúðarsvæði 1.76 Íb breyta um lögun til samræmis við tillögur að breytingum deiliskipulags Garðahverfis. Tákn fyrir landnýtingu 1.81 M, 1.77 S og 1.80 S verða lagfærð en þau voru ranglega framsett á aðaluppdrætti aðalskipulagsins
Meirhluti skipulagsnefndar samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Baldur Ó.Svavarsson hafnar framlagðri lýsingu og vísar til bókunar við fundarlið hér á undan.
11
Hönnun - Útboð - Gatnagerð Hlið á Álftanesi
Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdleyfi vegna endurnýjunar aðkomuvegar og lagningu bílastæða að Hliði. Framkvæmdalýsing er í samræmi við deiliskipulag Hliðs og friðlýsingu fólkvangsins að Hliði.
Með vísan í 13. gr. skipulagslaga samþykkir skipulagsnefnd veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn en með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar.
12
Hólmatún 56 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu girðinga á lóðarmörkun. Tækni- og uhverfissvið hefur mælst til þess að skjólgirðingar taki mið af reglum um girðingar á Álftanesi eins og deiliskipulag kveður á um.
Í grein 2.6. í þeim reglum segir að byggingarfulltrúa sé heimilt að leyfa hærri skjólgirðingar ef þörf krefur til skjólmyndunar. Málinu vísað til byggingarfulltrúa sem kalla skal eftir sjónarmiðum nágranna.
Tækni- og umhverfissviði falið að móta tillögu að viðmiðunarreglum fyrir girðingar og skjólveggi í Garðabæ.
13
Suðurtún 20 - skjólveggur -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hæð á skjólvegg á lóðarmörkum.
Vísað er til þess að í nágrenninu rísi fjölbýlishús.
Svar: Við mótun deiliskipulags í Breiðumýri var sérstaklega tekið tillit til athugasemdar um hæð fjölbýlishúss á þessum stað. Sett voru ákvæði um að á byggingarreit næst Suðurtúni yrði aðeins 1 hæð heimiluð.
Skipulagsnefnd sér ekki ástæðu til þess að á þessum stað sé vikið frá því ákvæði í reglum um girðingu lóða á Álftanesi að hæð girðinga á lóðarmörkum að opnu svæði sé hærri en 1,5 m.
Tækni- og umhverfissviði falið að móta tillögu að viðmiðunarreglum fyrir girðingar og skjólveggi í Garðabæ.
14
Asparlundur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir girðingum á lóðarmörkum. Samkomulag hefur náðst á milli lóðarhafa á Asparlundi 2 og Asparlundi 4 og hæð girðingar.
Skipulagsnefnd telur að hæð og útfærsla girðingar á lóðarmörkum að götu þurfi að skoða betur.
Vísað til frekari skoðunar.
Tækni- og umhverfissviði falið að móta tillögu að viðmiðunarreglum fyrir girðingar og skjólveggi í Garðabæ.
15
Skeiðakur 1 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á bílastæði sem gerir ráð fyrir bílalyftu.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
16
Víkurgata 23 - skilmálabreyting samkv meðfylgjandi bréfi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem nær til lóðarinnar Víkurgata 23 sem gerir ráð fyrir því að pappi verði heimilaður sem ysta byggingarefni á þaki.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að þakpappi getur vel verið í samræmi við markmið deiliskipulagsins um gott yfirbragð byggingar ef vandað er til útfærslunnar og að litur sé í gráskala. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis fyrir Víkurgötu 23 verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað þakpappa sem ysta byggingarefni varðar.
17
Urriðaholtsstræti 14-20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar um það hvort heimilað verði að fjölga um eina íbúð í fjölbýlishúsinu með því að skipta tveggja hæða íbúð upp.
Með vísan í umsögn telur skipulagsnefnd það koma til greina að fjölga íbúðum um eina en sækja verður um deiliskipulagsbreytingu með samþykki annarra eigenda hússins. Sýna þarf fram á að viðbótarbílastæði megi koma fyrir á lóðinni.
18
Urriðaholtsstræti 42, dsk breyting
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu að lokinni auglýsingu. Gert er ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu Urriðaholtstræti 42 fjölgi úr 9 í 10 og fjölgar bílastæðum sem því nemur.Engar athugasemdir bárust. Tillagan því samþykkt í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
19
Keldugata 2, dsk br Urr.vesturhluti
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að lóðirnar Keldugata 2 og Keldugata 4 sameinist í eina lóð með einum byggingarreit sem verður eins og nú er að Keldugötu 2. Heildarfjöldi íbúða yrði sá sami eða 9 íbúðir en nú í einu húsi.
Vísað til umsagnar hjá skipulagshöfundi og Urriðaholti ehf.
20
Hönnun - Útboð - Útivistarstígur frá Vífilsstaðarvatni að Grunnuvatnaskarði
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð útivistarstígs frá Vífilsstaðavatni í Grunnavatnsskarð.
Óveruleg breyting deiliskipulags hefur tekið gildi og er umsókn í samræmi við hana. Þar sem umsókn gerir ráð fyrir því að stígurinn verði aðeins lagður upp í Grunnavatnsskarð þá leggur skipulagsnefnd til að stígurinn varði lagður þvert á reiðstíg og nokkuð lengra til suðurs. Mót reiðstígs og útivistarstígs verði útfærð þannig að öryggis sé gætt og að merkingar séu skýrar.
Með vísan í 13. grein skipulagslaga og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfið með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar.
21
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisflutninga.
Lögð fram umsókn Urriðaholts ehf og Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um framkvæmdaleyfi fyrir losun 49.500 m3 jarðefnis úr Urriðaholti á svæði í norðvesturhorni golfvallarsvæðis.
Með vísan í 13. grein skipulagslaga og framlögð gögn veitir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfi.
22
Aðalskipulag Reykjavíkur. Breyting. Sérstök búsetuúrræði. Drög að breytingartillögu til kynningar
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingartillöguna.
23
Aðalskipulag Reykjavíkur. Breyting. Stefna um íbúðarbyggð - stakir reytir.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingartillöguna.
24
Aðalskipulag Reykjavíkur. Breyting. Nýi Skerjafjörður. Tillaga ásamt umhverfisskýrslu
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingartillöguna.
25
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 Endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð og framlenging skipulagstímabils til ársins 2040
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingartillöguna.
26
Skógræktaráætlun Lakheiði Lækjarbotnar
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skógræktaráætlunina enda er þess gætt að tillit er tekið til vatnsverndarsjónarmiða.
27
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12
Fundargerð lögð fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir.
27.1 - 2009569 - Hólmatún 56 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lagður fram tölvupóstur frá eigendum Hólmatúns 56 sem lýsa sig ósátta við þau skilaboð frá skipulagsstjóra að þeim beri að reisa girðingar samkvæmt deiliskipulagi og reglum um girðingar á Álftanesi.
Eigendur tína til ýmis dæmi um skjólveggi og girðingar á Álftanesi þar sem hafa verið reistar og eru ekki í samræmi við skipulag.
Vísað til umræðu í skipulagsnefnd.
27.10 - 2006442 - Smádreifistöð við Maltakur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags íþrótta- og skólasvæðis við Skólabraut sem gerir ráð fyrir lóð fyrir smádreifistöð Veitna. Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags og vísar til grenndarkynningarþ. Grenndarkynna skal stjórnendum Fjölbrautarskóla Garðabæjar.
27.11 - 1910059 - Keldugata 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til frekari skoðunar.
27.12 - 2008275 - Maríugata 23-29 breyting á þaki - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Eigendur komu með undirritað samþykki nágranna.
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Austurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingum á þakhalla. Lögð fram gögn þar sem eigendur þeirra eigna sem grenndarkynning nær til hafa staðfest með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
27.13 - 2010028 - Víkurgata 23 - skilmálabreyting samkv meðfylgjandi bréfi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að þakpappi verði heimilaður. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.
27.14 - 2010374 - Urriðaholtsstræti 14-20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúð fjölgi um eina þar sem tveggja hæða íbúð verði skipt upp. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.
27.15 - 2009649 - Útivistarstígur frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði. Breyting á deiliskipulagi Heiðmerkur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur sem vísað var til grenndarkynningar hjá Landsneti og Umhverfisstofnun. Lögð fram erindi þeirra sem grenndarkynning nær til þar sem fram kemur að ekki eru gerðar athugasemdir við deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 3.mgr.44.gr.skipulagslaga er tími grenndarkynningar hér með styttur.
Tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
27.16 - 2009028 - Hönnun - Útboð - Útivistarstígur frá Vífilsstaðarvatni að Grunnuvatnaskarði
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að framkvæmdaleyfi sé veitt þegar auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingar hefur birst í B-deild Stjórnartíðinda.
27.2 - 2008010 - Litlabæjarvör 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi að Litlubæjarvör 21.
Á meðan að hámarkshæð húss með flötu þaki er 3,5 m þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við hæð hússins.
Með vísan í reglur um girðingar á Álftanesi gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi víki frá kröfu um hæð skjólveggjar við inngang sbr. Reglur um girðingu lóða á Álftanesi grein 2.6.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
27.3 - 2008067 - Litlabæjarvör 23 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi að Litlubæjarvör 23.
Á meðan að hámarkshæð húss með flötu þaki er 3,5 m þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við hæð hússins.
Með vísan í reglur um girðingar á Álftanesi gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi víki frá kröfu um hæð skjólveggjar við inngang sbr. Reglur um girðingu lóða á Álftanesi grein 2.6.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
27.4 - 2009654 - Suðurtún 20 - skjólveggur -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa skjólveggi á lóðarmörkum 1,8 m. Vísað til umfjöllunar í Skipulagsnefnd.
27.5 - 2009276 - Brekkuskógar 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að breyta óuppfylltu rými í geymslu-og þvottarými. Gluggi verður settur á geymslu.
Ekkert deiliskipulag er í gildi við Brekkuskóga. Samþykki annarra eigenda fyrir umsókninni hússins liggur fyrir.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.grein skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Brekkuskóga nr. 7, 8,10, 11 og 12.
27.6 - 2003173 - Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar vegna óuppfylltra gluggalausra rýma á neðri hæð. Þau reiknast þá ekki með við útreikning nýtingarhlutfalls þar sem að grenndaráhrif þeirra rýma eru hverfandi. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
27.7 - 2010246 - Grenilundur 10 og 12 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Skipulagsstjóri vísar tillögu að breytingu byggingarreita húsanna til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda skv. 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123 2010. Grennarkynna skal eigendum Greinilundar 7,8,9 og 11 sem og Einilundar 7 og 9. Leggja skal fram breytingaruppdrátt deiliskipulags ásamt skýringarmynd sem grenndarkynnt verða.
27.8 - 2008230 - Dalsbyggð 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir
Tillaga lögð fram að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga þar sem ekkert deiliskipulagi er í gildi við Dalsbyggð.
Engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
27.9 - 2007070 - Seinakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja á 60 % útbyggingarreits til vesturs.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Seinakurs 3, 5 6 og 10 sem og Stórakurs 5,7 og 9.