Beint í efni

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 5. Urriðaholt 5.04 Vþ.

Málsnúmer 2008336

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36, gr. laganna, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til landnotkunarreits í Urriðaholti sem er merktur 5.04 Vþ. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á svæðinu verði heimiluð íbúðarbyggð ásamt atvinnuhúsnæði. Íbúðarhúsnæði skal vera innan 50% af heildarbyggingarmagni á skipulagsvæðinu. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga og samhliða var auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum. Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga og jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2008336)

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36, gr. laganna, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til landnotkunarreits í Urriðaholti sem er merktur 5.04 Vþ. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á svæðinu verði heimiluð íbúðarbyggð ásamt atvinnuhúsnæði. Íbúðarhúsnæði skal vera innan 50% af heildarbyggingarmagni. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga og samhliða var auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga og jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til landnotkunarreits Urriðaholt,viðskiptastræti 5.04 VÞ að lokinni auglýsingu í samræmi við 31.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4 og var í kynningu frá 11.desember 2020 til 22.janúar 2021.
Athugasemdir bárust frá íbúum við Urriðaholtsstræti og eru þær lagðar fram.
Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs og Alta ehf hafa fundað með fulltrúum húsfélagsins og farið yfir tillögurnar og athugasemdirnar.
Í skipulagsákvæði gildandi aðalskipulags segir:
Megináhersla á atvinnuhúsnæði.
Hámarkshæð húsa 4-5 hæðir,Uppbygging skv. deiliskipulagi.
Tillaga að breytingu skipulagsákvæða:
Megináhersla á atvinnuhúsnæði, en íbúðarbyggð heimil. Íbúðarhúsnæði sé innan við 50% af heildarbyggingarmagni reitsins.
Hámarkshæð húsa 4 -5 hæðir, Uppbygging skv. deiliskipulagi.
Í athugasemd er lagt til að hámarkshæð verði 4 hæðir. Skipulagsnefnd telur að við mótun deiliskipulags sé hægt að taka tillit til útsýnis frá aðliggjandi byggð þó svo að einhver hluti bygginga sé 5 hæðir þar sem landnotkunarreiturinn hallar til norðurs.
Tillagan er því samþykkt óbreytt sem breyting Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr.32.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni auglýsingu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Frestur til að skila inn athugasemdum rann út þann 22. janúar 2021.
Athugasemdir sem bárust innan tilkskilins frests lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar landnotkunarreit 5.04 VÞ í norðanverðu Urriðaholti. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2008336)

Bæjarráð Garðabæjar

06

43. (1951). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar landnotkunarreit 5.04 VÞ í norðanverðu Urriðaholti. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til landnotkunarreitsins 5.04.Vþ í norðanverðu Urriðaholti að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnir og ábendingar sem borist hafa lagðar fram.
Tillagan hefur verið uppfærð eftir forkynningu en er að efni til óbreytt.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. grein Skipulagslaga að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

13. (872). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á 5.04 Vþ í Urriðaholti fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. (Mál nr. 2008336)

Bæjarráð Garðabæjar

09

36. (1944). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á 5.04 Vþ í Urriðaholti fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

9. fundur

Lögð fram tillaga breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæðum um reit 5.04 Vþ í norðurhluta Urriðaholts. Gert er ráð fyrir að því að íbúðarbyggð sé heimil þó svo að megináhersla verði áfram á atvinnuhúsnæði. Miðað er við að íbúðarbyggð sé innan við 50% af heildarbyggingarmagni innan landnotkunarreitsins. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis í Urriðaholti, merktu 5.04 VÞ. Tillagan gerir ráð fyrir að í skilmálum komi fram heimild fyrir íbúðarbyggð innan reitsins. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagstofnun, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 2008336)

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis í Urriðaholti, merktu 5.04 VÞ. Tillagan gerir ráð fyrir að í skilmálum komi fram heimild fyrir íbúðarbyggð innan reitsins. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagstofnun, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 2008336)

Bæjarráð Garðabæjar

13

34. (1942). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis í Urriðaholti, merktu 5.04 Vþ. Tillagan gerir ráð fyrir að í skilmálum komi fram heimild fyrir íbúðarbyggð innan reitsins. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagstofnun, örðum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

8. fundur

Lögð fram tillaga að lýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags fyrir Urriðaholt Norður 4 ásamt matslýsingu.
Deiliskipulag fyrir norðurhluta 4 í Urriðholti hefur farið í gegnum kynningarferli skv. lögum. Við lokaafgreiðslu Skipulagsstofnunar var bent á að ekki væri ljóst hvernig áform um íbúðarbyggð við Lautargötu á svæði 5.04 Vþ samræmdust aðalskipulagi Garðabæjar. Engar athugasemdir voru gerðar við önnur svæði deiliskipulagsins.
Í skilmálun aðalskipulags fyrir reit 5.04 Vþ er sagt að meirihluti byggðar í þeim reit skuli vera atvinnuhúsnæði en láðst hefur að geta þess hvaða önnur landnotkun sé þar heimil. Til að skýra þetta verður lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar á þann veg að skýrt komi fram að íbúðarbyggð sé leyfð á því svæði sem um ræðir í stað atvinnuhúsnæðis.
Vegna þessa þarf að endurauglýsa Deiliskipulag Urriðaholts norðurhluta 4 og er ráðgert að auglýsa það með óbreyttum skilmálum og uppdrætti. Markmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að setja það fram á skýran hátt að innan reits 5.04 Vþ sé íbúðarbyggð einnig heimil og að í skilmálum fyrir reitinn komi fram að heimild fyrir íbúðarhúsnæði miði við að það sé innan við 50% af heildar byggingarmagni reitsins.
Engin breyting er áformuð á uppdrættinum, bara skilmálum um reitinn 5.04 Vþ.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu og matslýsingu.