Beint í efni

16. (875). fundur

05.11.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

16. (875). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

05.11.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. október 2020 er lögð fram.

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 780/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 20. ágúst 2020.

Dagskrá

Málsnúmer 2010022F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 20/10 ´20.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og óskaði Stjörnunni til hamingju með afmælið. Þá ræddi Ingvar 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu.

Bæjarstjórn tók undir góðar óskir til Stjörnunnar í tilefni af 60 ára afmæli félagsins 30. október sl.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

1.12 - 2003434 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu um staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við samþykkta tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Fylgiskjöl

1.2 - 1904109 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Viðaukar nr. 8, 9 og 10.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 8, 9 og 10 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 8
Í byrjun sl. sumars var gerður viðauki vegna atvinnuátaks ungs fólks vegna áhrifa af Covid-19. Viðaukinn sem var gerður var byggður á áætlun miðað við umsóknir sem þá lágu fyrir. Nokkur frávik urðu á þessari áætlun, sem skýra má vegna þess að það skiluðu sér ekki allir í vinnu og sumir unnu styttra en áætlað var. Einnig tókst ekki að ná þeim fjölda sem til stóð í atvinnuátak með endurgreiðslu Vinnumálastofnunar vegna þeirra takmarkana sem þær reglur gerðu ráð fyrir.
Miklu fleiri ungmenni sóttu vinnuskólann en áætlun gerði ráð fyrir, vegna slæmrar stöðu á vinnumarkaði.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar:

Sumarátak ungs fólks -lækkun kostnaðar 56.000.000 11330-
Sumarátak með þátttöku Vinnumálastofnunar
Kostnaður lægri en áætlað var 19.500.000 11340-
Þátttaka Vinnumálastofnunar lægri en áætlað -18.200.000 11340-
Kostnaður umfram áætlun 1.300.000
Samtals lægri kostnaður sumarátaks 57.300.000

Vinnuskóli Garðabæjar viðbótarkostnaður 61.200.000 6271-
Mismunur kostnaðarauki 3.900.000

Kostnaðarauka mætt með hækkun tekna
af fasteignagjöldum vegna nýrra eigna.

Fasteignaskattur -3.900.000 00060-0011

Viðauki 9
Vegna nýrra kjarasamninga á árinu 2020 þarf að leiðrétta launaliði stofnana umfram það sem fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir að launaliðir hækkuðu. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 200 millj. kr. varasjóði sem m.a. átti að nýta til að leiðrétta launaliði mv. niðurstöðu kjarasamninga.

Félagsþjónustusvið 16.000.000 02-
Fræðslusvið 216.000.000 04-
Menningarmál 1.000.000 05-
Æskulýðs- og íþróttasvið 15.000.000 06-
Skipulags- og byggingamál 2.000.000 09-
Umhverfismál 4.000.000 11-

Sameiginlegur kostnaður 7.000.000 21-
Þjónustumiðstöð 4.000.000 31-
Samveitur 2.000.000 43-
Samtals 267.000.000

Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:

Varasjóður 163.000.000 31916-7179
Útgjaldajöfnunarframlag 29.000.000 00100-0110
Grunnskólaframlag 45.000.000 00100-0141
Seldur byggingarréttur 30.000.000 31400-0397
Samtals 267.000.000

Viðauki 10
Fjölskyldusvið
Á fjölskyldusviði þarf að hækka fjárheimildir vegna þjónustu við fatlað fólk og kostnaðarauka við reksturs búsetukjarna við Unnargrund sem er til kominn vegna næturvakta og hækkunar á launum samkvæmt nýjum kjarasamningum.

Samtals 54.000.000

Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti.
Seldur byggingarréttur -54.000.000 31400-0397

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010034F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 27/10 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 23. tl., bréf Samtakanna 78 varðandi styrk.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 23. tl., bréf Samtakanna 78 varðandi styrk.

Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2010054F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 3/11 ´20.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 og gerði athugasemd við framsetningu á lista yfir erindi sem vísað hefur verði til fjárhagsáætlunar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 24. tl., bréf Golfklúbbsins Odds varðandi áhyggjur af aukinni umferð á flóttamannaleið.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 24. tl., bréf Golfklúbbsins Odds varðandi áhyggjur af aukinni umferð á flóttamannaleið.

Gunnar Einarsson, ræddi 24. tl., bréf Golfklúbbsins Odds varðandi áhyggjur af aukinni umferð á flóttamannaleið.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 24. tl., bréf Golfklúbbsins Odds varðandi áhyggjur af aukinni umferð á flóttamannaleið.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 24. tl., bréf Golfklúbbsins Odds varðandi áhyggjur af aukinni umferð á flóttamannaleið.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021.

Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

3.10 - 2010078 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis.

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar sbr. skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahverfis. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi, sbr. 2. mgr. 40. gr. sömu laga. (Mál nr. 2010078) Ingvar Arnarson, Sara Dögg Svanhildardóttir og Harpa Þorsteinsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Fylgiskjöl

3.11 - 2008336 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna landnotkunarreits í norðanverðu Urriðaholti.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar landnotkunarreit 5.04 VÞ í norðanverðu Urriðaholti. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2008336)

Fylgiskjöl

3.12 - 1811125 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. (Mál nr.1811125)

Fylgiskjöl

3.13 - 2007239 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 42.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða úr 9 í 10 við Urriðaholtsstræti 42. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga sbr. einnig 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2007239)
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 860.672 á íbúð m.v. BVT 743,4 stig í nóvember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

3.14 - 2010028 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 23.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að þakpappi verði ysta byggingarefni á þaki en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr.2010028)

Fylgiskjöl

3.2 - 1904109 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Viðaukar 11-14.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. nr. 11, 12, 13 og 14 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 11
Covid útgjöld
Eftirfarandi kostnaður hefur fallið á málaflokka vegna Covid útgjalda.
Kostnaður sem forstöðumenn voru beðnir um að merkja með sérstöku verknúmeri og er vegna beins útlagðs kostnaður vegna Covid 19 heimsfaraldurs.
Um er að ræða hreinlætisvörur, hanskar, grímur, spritt, viðbót við tölvubúnað sem nauðsynlegur var vegna fjarfunda og fleira.

Fjölskyldusvið 300.000 02-xxxx
Fræðslumál 15.000.000 04-xxxx
Menningarmál 700.000 05-xxxx
Æskulýðs og íþróttamál 2.000.000 06-xxxx
Umhverfismál 200.000 11-xxxx
Sameiginlegur kostnaður 2.600.000 21-xxxx
Eignasjóður 200.000 31-xxxx
Samtals 21.000.000

Fjölskyldusvið
Samningur við Vinakot vegna búsetuúrræða sem gert var ráð fyrir hluta ársins að fjárhæð 44,5 millj. kr. var framlengdur út árið. Jafnframt hefur reynst nauðsynlegt að kaupa sérfræðiráðgjöf sem snýr að atferlisþjálfun.

Aðkeypt sólarhringsþjónusta 44.500.000 02530-4382
Aðkeypt sérfræðisþjónusta 500.000 02530-4990
Samtals 45.000.000

Fjármögnun:
Kostnaðarauka skal mætt með seldum byggingarrétti

Byggingarréttur -66.000.000 31400-0397

Viðauki 12
Breyting á fjárfestingaáætlun
Lagt er til að eftirfarandi breyting verði gerð á fjárfestingaráætlun 2020.
Við upphaflega áætlun var gert ráð fyrir nettó tölu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss. Sú breyting er gerð að tekjufæra sölu byggingarréttar á málaflokk 31 (eignasjóður) og færa heildarkostnað vegna byggingar fjölnota íþróttahúss á framkvæmdaáætlun.

Fjárfestingar:
Skólahúsnæði 108.000.000
Framlag Urriðaholts -110.000.000
Íþróttamannvirki 32.000.000
Fjölnota íþróttahús 1.000.000.000
Búsetuúrræði fyrir fatlaða -190.000.000
Vífilsstaðaland -211.800.000
Samtals 628.200.000

Fjármögnun:
Seldur byggingarréttur -628.200.000 31400-0397

Viðauki 13
Lækkun tekna vegna Covid-19.
Vegna heimsfaraldurs Covid-19 verður að breyta áætlun útsvarstekna, vegna gríðarlegra breytinga á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að útsvarstekjur á árinu 2020 verði um 400 millj. kr. lægri en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir.

Staðgreiðsla útsvars 400.000.000 00010-0021

Leikskólagjöld og gjöld í tómstundaheimilum hafa verið felld niður þegar börn hafa verið í sóttkví eða veik vegna Covid-19.
Þjónustugjöld hafa verið lækkuð eða felld niður vegna lokunar og skertrar þjónustu.

Leikskólagjöld 37.000.000
Þjónustugjöld tómstundaheimila 14.000.000
Samtals 51.000.000

Viðauki 14
Vegna samþykktar bæjarstjórnar um almenningssamgöngur í Urriðaholti þar af bæta við 13 millj. kr á fjárhagsáætlun til að mæta kostnaði við verkefnið.

Strætó 13.000.000 10720-9195

Fjármögnun:
Lækkun rekstrarafgangs -13.000.000
Millifærsla milli A- og B- sjóðs
Hjúkrunarheimilið Ísafold var rekið sem B-deildar fyrirtæki Garðabæjar á árunum 2013 - 2017. Halli var á rekstrinum öll árin. Samkvæmt reikningsskilaaðferðum sveitarfélaganna ber að gera reikningskil við lok starfsemi B-deildarfyrirtækja milli A og B sjóðs. Þar sem Garðabær var í málaferlum við ríkið vegna hallareksturs stofnunarinnar var ekki gengið frá þessu uppgjöri og ákveðið að bíða með það þangað til niðurstaða dóms lægi fyrir. Nú þykir því rétt að gera upp þessi reikningskil milli A- og B- sjóðs enda liggur fyrir niðurstaða með dómi Hæstaréttar. Það er því fullreynt að ríkið mun ekki standa skil á verkefninu gagnvart Garðabæ.

Niðurstaðan hefur engin áhrif á samantekin reikningsskil.

Hjúkrunarheimili uppgjör A sjóður 538.000.000

Hjúkrunarheimili uppgjör B- sjóður -538.000.000

Engin áhrif á heildarrekstur.

Fylgiskjöl

3.6 - 2009627 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi leyfi til framkvæmda við endurnýjun aðkomuvegar að Hliði.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 við endurnýjun aðkomuvegar að Hliði á Álftanesi. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Hlið, upphaflega samþykkt árið 2000. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 12. gr. auglýsingar nr. 606/2020 um friðlýsingu Hliðs í Garðabæ, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 2009627)

Fylgiskjöl

3.7 - 2009028 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Heiðmörk, upphaflega samþykkt 2017, sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1115/2017 og breytingu deiliskipulagi , sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1047/2020. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 5. gr. auglýsingar um friðlýsingu Vífilsstaðavatns og nágrennis nr. 1064/2007, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 2009028)

Fylgiskjöl

3.8 - 2010333 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis við Brekkuás.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis við Brekkuás. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi. (Mál nr. 2010333)

Fylgiskjöl

3.9 - 2010080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis í Garðahverfi.

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis í Garðahverfi. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi. (Mál nr. 2010080) Ingvar Arnarson, Sara Dögg Svanhildardóttir Harpa Þorsteinsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Ingvar Arnarson, óskaði eftir að bókun Baldurs Ó. Svavarssonar sem lögð var fram í skipulagsnefnd verði færð til bókunar í fundargerð bæjarstjórnar.

"Undirritaður fulltrúi minnihlutans hefur marg varað við vanreifuðu einkavæddu deiliskipulagi Garðahverfis. Enn eru kynntar breytingar á þessu skipulagi - nú í 10 liðum !. Hættan á skipulagslausri uppbyggingu þessa svæðis er því sannarlega fyrir hendi skv. þessum gögnum, líkt og varað hefur verið við. Þarna er að verða til enn eitt bútasaumaða skipulagið svo vitnað sé í þekkt orðfæri. Enn skal minnt á að hér er fórnað einhverju glæsilegasta byggingasvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu, í gæluverkefni, greitt af einkaaðila í bænum. Undirrituðum skilst þó að þessar kynntu breytingarnar séu kostaðar af bæjarsjóði í þetta sinn. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Vakin er athygli á því að Baldur Ó Svavarsson, arkitekt og fulltrúi Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd vann samkeppni um Rammaskipulag á Garðaholti árið 2001. Rammaskipulagið gerði ráð fyrir um 7-8 þúsund íbúa byggð með tilsvarandi umferðaflæði og næði yfir um 130 hektara lands þar á meðal Garðahverfið sem inniheldur miklar forn- og menningarminjar.
Bókun fulltrúa Garðabæjarlistans verður að taka með þeim fyrirvara að viðkomandi hefur verulega mikla hagsmuni af því að unnið verði eftir því rammaskipulagi á Garðaholti sem hann er höfundur að.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur fallið frá rammaskipulaginu sem kynnt var 2001/2002, enda ekki í samræmi við áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í umhverfismálum og á friðlýsingar á náttúru- og menningarminjum í landi Garðabæjar. Íbúar Garðabæjar geta og hafa tjáð skoðun sína á áherslum bæjarstjórnar á fjögurra ára fresti.
Megin markmið og tilgangur með nýju skipulagi Garðahverfis er að festa í sessi framtíðarsýn fyrir Garðahverfi og skilgreina markmið og leiðir að þeirri sýn. Það er gert með því að setja skilmála fyrir mannvirkjagerð og verndun náttúru og búsetuminja á svæðinu. Áherslur deiliskipulagsins eru að stuðla að varðveislu menningar- og náttúruminja í Garðahverfi og gera það aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Sérstaklega er tekið mið af sögulega sérstöku búsetulandslagi og aldagömlu hlutverki svæðisins, sem kirkju- og menningarstaðar, en um leið lögð áhersla á að tryggja viðhald og eðlilega þróun byggðar í Garðahverfi.„

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna bókun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls á ný.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls á ný.

Gunnar Einarsson, tók til máls á ný.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010025F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 21/10 ´20.

Almar Guðmundsson ræddi 1. tl., vinnu starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19 og 4. tl. endurskoðum lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., vinnu starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19 og 4. tl. endurskoðum lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., vinnu starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.

Almar Guðmundsson ræddi að nýju 4. tl., vinnu starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., vinnu starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2010007F

05

Fundargerð leikskólanefndar frá 7/10 ´20.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., þróunarsjóð leikskóla.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi . tl., þróunarsjóð leikskóla.

Fundargerðin lögð fram

Málsnúmer 2010019F

06

Fundargerð leikskólanefndar frá 21/10 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2010031F

07

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 23/10 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og spurði um útfærslu á styrk frá ríkinu til starfsemi íþróttafélaga.

Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og sagði frá heimsókn fulltrúa frá félagsmiðstöðvum og ungmennaráðs á fund ráðsins. Þá ræddi Björg 2. tl., áhrif Covid-19 á rekstur íþróttafélaga og 7. tl., sporið ? útivistarverkefni. Björg svaraði fyrirspurn varðandi útfærslu á styrk frá ríkinu til starfsemi íþróttafélaga.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2011001F

08

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 2/11 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., rafræna menningarviðburði, 3. tl., menningardagskrá fyrir skólahópa og 5. tl., umsókn frá ungum Garðbæing um styrk vegna tónlistarverkefnis.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., rafræna menningarviðburði.

Gunnar Valur Gíslason ræddi að nýju 2. tl., rafræna menningarviðburði


Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2010017F

09

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 15/10 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., uppbyggingu búsetukjarna við Brekkuás.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2010037F

10

Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/10 ´20.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis við Vífilsstaði, Vetrarmýri og Hnoðraholti.

Almar Guðmundsson ræddi 8. tl., uppbyggingu búsetukjarna við Brekkuás.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2010013F

11

Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/10 ´20.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., mengunarmælingar 2020.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., veiðikortið 2021 og 5. tl., mengunarmælingar 2020.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl. veiðikortið 2021.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, 1. tl. veiðikortið 2021 og aðstöðu við Vífilsstaðavatn.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl. veiðikortið 2021 og aðstöðu við Vífilsstaðavatn.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001426

12

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 19/10 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., starfsleyfi.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001357

13

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 9/10 og 15/10 ´20.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2001161

14

Fundargerðir stjórnar SSH frá 5/10, 12/10 og 19/10 ´20.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2001494

15

Fundargerð Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 14/10 ´20.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun skíðasvæðanna 2021.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., útboðsmál skíðasvæðanna.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., útboðsmál skíðasvæðanna.

Björg Fenger, ræddi 5. tl., útboðsmál skíðasvæðanna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2010313

16

Gjaldskrá heilbrigðiseftirlits vegna leyfisveitinga.

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir breytingum á framlagðri gjaldskrá en gert er ráð fyrir 2,5% hækkun.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins árið 2021.

Málsnúmer 2010313

17

Gjaldskrá fyrir hundahald 2021.

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir breytingu á framlagðri gjaldskrá.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá hundahalds árið 2021.

Málsnúmer 2011046

18

Tillaga Garðabæjarlistans um lýðheilsu ungmenna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Ingvari Arnarsyni og Hörpu Þorsteinsdóttur.

„Tillagan felur í sér að gerð verði könnun meðal ungmenna í árgöngum 2002 - 2007 með það að markmiði að kanna hverskonar fræðslu ungmennin myndu helst vilja sjá til að efla andlega vellíðan.

Garðabæjarlistinn leggur til að hlúð verði sérstaklega að lýðheilsa ungmenna fædd 2002 - 2007 (13-18) ára í Garðabæ með fræðslu og stuðningi sem kann að vera mikilvægur. Fræðslusviði verði falið að finna leiðir til þess að nálgast þennan hóp sérstaklega til að hlúa að andlegri líðan við þær óvenjulegu aðstæður sem heimsfaraldurinn Covid 19 skapar. Liggur beinast við að fjartækni verði nýtt eins og kostur er.“

Greinargerð

Heimsfaraldurinn Covid-19 kallar á alls konar aðgerðir og nú blasir við ungmennum nýr veruleiki þar sem lífsgæði þeirra eru verulegt skert a.m.k. tímabundið þar sem aðgengi að félagslegri þátttöku eru óheimil eða bundin gríðarlegum takmörkunum. Að ekki sé minnst á hefðbundna viðveru í skólum á framhaldsskólastigi.

Þar fyrir utan er það svo að geðræn vandamál eru vaxandi í okkar samfélagi og eru að verða ein af stærstu viðfangsefnum lýðheilsu í heiminum ? þar á meðal á Íslandi. Þunglyndi er metið sem eitt af stærstu heilsufarsvandamálunum sem dregur úr lífsgæðum fólks. það er því brýnt að forvarnar- og heilsueflingar-verkefni snúist í auknum mæli um andlega líðan. Tillagan styður við þau verkefni sem eru í farvatninu hjá sveitarfélaginu þar sem Garðabær er heilsueflandi samfélag, stendur frammi fyrir innleiðingu heimsmarkmiðanna og innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hvetja til aukinnar áherslu á andlega líðan íbúa.

En einnig hafa væntingar um að sveitarfélög taki aukna ábyrgð á fræðslu og þjálfun ungmenna vaxið undanfarin ár.

Við í Garðabæjarlistanum teljum mjög aðkallandi að bregðast við og rýna þá stöðu sem ungmenni eru að glíma við þessi misserin.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til íþrótta-og tómstundaráðs.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju og lagði til að vísa tillögunni einnig til starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Björg Fenger tók til máls að nýju.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundaráðs og starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.