Beint í efni

Tillaga um lýðheilsu ungmenna.

Málsnúmer 2011046

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

28. fundur

ÍTG fagnar fram kominni tillögu og vísar verkefninu til íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa til úrvinnslu í samvinnu við Ungmennaráð Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

16. (875). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Ingvari Arnarsyni og Hörpu Þorsteinsdóttur.

„Tillagan felur í sér að gerð verði könnun meðal ungmenna í árgöngum 2002 - 2007 með það að markmiði að kanna hverskonar fræðslu ungmennin myndu helst vilja sjá til að efla andlega vellíðan.
Garðabæjarlistinn leggur til að hlúð verði sérstaklega að lýðheilsa ungmenna fædd 2002 - 2007 (13-18) ára í Garðabæ með fræðslu og stuðningi sem kann að vera mikilvægur. Fræðslusviði verði falið að finna leiðir til þess að nálgast þennan hóp sérstaklega til að hlúa að andlegri líðan við þær óvenjulegu aðstæður sem heimsfaraldurinn Covid 19 skapar. Liggur beinast við að fjartækni verði nýtt eins og kostur er.“

Greinargerð
Heimsfaraldurinn Covid-19 kallar á alls konar aðgerðir og nú blasir við ungmennum nýr veruleiki þar sem lífsgæði þeirra eru verulegt skert a.m.k. tímabundið þar sem aðgengi að félagslegri þátttöku eru óheimil eða bundin gríðarlegum takmörkunum. Að ekki sé minnst á hefðbundna viðveru í skólum á framhaldsskólastigi.
Þar fyrir utan er það svo að geðræn vandamál eru vaxandi í okkar samfélagi og eru að verða ein af stærstu viðfangsefnum lýðheilsu í heiminum ? þar á meðal á Íslandi. Þunglyndi er metið sem eitt af stærstu heilsufarsvandamálunum sem dregur úr lífsgæðum fólks. það er því brýnt að forvarnar- og heilsueflingar-verkefni snúist í auknum mæli um andlega líðan. Tillagan styður við þau verkefni sem eru í farvatninu hjá sveitarfélaginu þar sem Garðabær er heilsueflandi samfélag, stendur frammi fyrir innleiðingu heimsmarkmiðanna og innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hvetja til aukinnar áherslu á andlega líðan íbúa.
En einnig hafa væntingar um að sveitarfélög taki aukna ábyrgð á fræðslu og þjálfun ungmenna vaxið undanfarin ár.
Við í Garðabæjarlistanum teljum mjög aðkallandi að bregðast við og rýna þá stöðu sem ungmenni eru að glíma við þessi misserin.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til íþrótta-og tómstundaráðs.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju og lagði til að vísa tillögunni einnig til starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Björg Fenger tók til máls að nýju.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundaráðs og starfshóps til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.