28. fundur
28. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
10.02.2021
Kl. 16:00 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1808087
01
Framkvæmdir - Vífilshöllin - fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri
Kynning á byggingu nýs fjölnota íþróttahúss sem nú rís í Vetrarmýrinni. Helgi Már Halldórsson arkitekt hússins mun leiða fundarmenn um bygginguna í "sýndarveruleika" og fjalla um bygginguna og möguleika hennar almennt.
Kynning á byggingu fjölnota íþróttahúss sem nú rís í Vetrarmýrinni. Helgi Már Halldórsson arkitekt hússins leiddi fundarmenn um bygginguna í "sýndarveruleika" og fjallaði um bygginguna og möguleika hennar almennt og svaraði fyrirspurnum. Guðbjörg Brá Gísladóttir fór yfir stöðu framkvæmda við bygginguna.
Málsnúmer 2102153
02
Afrekssjóður ÍTG 2021
Afrekssjóður ÍTG var auglýstur opinn til umsóknar á vef Garðabæjar og í Garaðpóstinum til og með 1. febrúar. Engar umsóknir hafa borist afrekssjóðnum.
Íþróttamaður ársins 2020 Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður og íþróttakona ársins 2020 Ágústa Edda Björnsdóttir hljóta hvort um sig styrk að upphæð kr. x00.000,-
Afrekssjóður ÍTG var auglýstur opinn til umsóknar á vef Garðabæjar og í Garaðpóstinum til og með 1. febrúar.
Samþykkt var að veita Íþróttamanni ársins 2020 Hilmari Snæ Örvarssyni skíðamanni og íþróttakonu ársins 2020 Ágústu Eddu Björnsdóttur hvoru um sig styrk að upphæð kr. 200.000,-
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102157
03
Lýðheilsu-, og forvarnastefna Garðabæjar
Forvarnastefna hefur nú verið kynnt almenningi á vef Garðabæjar eftir að hafa verið til umfjöllunar hjá nefndum bæjarins og innan stjórnsýslunnar frá hausti 2020.
Tillaga er um að breyta heiti stefnunnar í "Lýðheilsu- og forvarnastefnu" þar sem stefnan nær til mun breiðara sviðs bæði í aldursflokkum og málefnum en fyrri stefna. Engin breyting er gerð á því sem kynnt hefur verið þó nafninu hafi verið breytt, enda eru lýðheilsumál forvarnir.
Forvarnastefnan hefur nú verið kynnt almenningi á vef Garðabæjar. Áður hafði stefnan verið til umfjöllunar hjá nefndum bæjarins og innan stjórnsýslunnar frá hausti 2020.
Tillaga er um að breyta heiti stefnunnar í "Lýðheilsu- og forvarnastefnu" þar sem stefnan nær til mun breiðara sviðs bæði í aldursflokkum og málefnum en fyrri stefna. Engin breyting er gerð á því sem kynnt hefur verið þó nafninu hafi verið breytt, enda eru lýðheilsumál forvarnir í víðari skilningi.
ÍTG samþykkir fyrirliggjandi drög af stefnunni og vísar henni til bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101428
04
Skýrsla starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara.
Skýrslan lögð fram.
Málsnúmer 2012253
05
Bréf Velferðarvaktarinnar um tillögur til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19
Tillögurnar lagðar fram.
Málsnúmer 2011046
06
Tillaga um lýðheilsu ungmenna.
ÍTG fagnar fram kominni tillögu og vísar verkefninu til íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa til úrvinnslu í samvinnu við Ungmennaráð Garðabæjar.
Málsnúmer 2009056
07
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020
Lagt fram og rætt út frá íþróttaaðstöðu og aðstöðu til heilsuræktar.
Málsnúmer 2101473
08
19. júnísjóður lokauppgjör 2020
Lokauppgjör 19. júnísjóðs 5. júní 2020
Sjóðurinn hefur verið lagður niður og höfuðstóll hans færður inn í bæjarsjóð.
Lokauppgjör 19. júnísjóðs 5. júní 2020 samþykkt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102117
09
Vallarklukka og varamannabekkir á Stekkjaflatarvelli
Erindi frá Stjörnunni:
Vegna fjölda leikja á "æfingavellinum" við Stekkjaflöt á íþróttavallasvæði Stjörnunnar, er óskað eftir fjárveitingu til kaupa á lítilli vallarklukku á þann völl sem kostar kr. 518þ. Einnig að gengið verði frá varamannaskýlum sem þar áttu að koma við endurbyggingu vallarins.
Íþróttafulltrúa falið að skoða beiðnina samhliða öðrum óskum um búnaðarkaup til íþróttamannvirkja.
Málsnúmer 2102035
10
Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.
Til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 2102159
11
Hvatapeningar 2020
Íþróttafulltrúi hefur tekið saman nýtingu hvatapeninga meðal barna í Garðabæ árið 2020.
Íþróttafulltrúi hefur tekið saman nýtingu hvatapeninga meðal barna í Garðabæ árið 2020.
Nýting hefur aðeins minnkað milli ára í öllum árgöngum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101067
12
Hvatapeningar 2021
Bæjarráð hefur staðfest óbreyttar reglur um úthlutun Hvatapeninga fyrir árið 2021 að upphæð 50.000,- kr fyrir börn frá og með 5 ára, til og með 18 ára.
Reglur um hvatapeninga 2021 lagðar fram og ræddar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102118
13
Bláfjallarútan - samningur við Teit Jónasson ehf.
Samið hefur verið við Teit Jónasson ehf um að "Skíðarútan" hafi stoppistöð við Ásgarð daglega á leið sinni upp í Bláfjöll þegar opið er á skíðasvæðinu. Komið er við hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, Flatahrauni 14, í Mjódd og Olís við Rauðavatn.
Ekið er eftir rútáætlun Skíðasvæðanna sjá. https://skidasvaedi.is/upplysingar/rutuaaetlun/ og er Flatahraun endastöð í ferðum frá Bláfjöllum. Brottför virka daga verður 15:30 og komið heim um 22:00. Um helgar 12:00 og komin heim um 18:00
Unnið er að samningum við Teit Jónasson ehf um að "Skíðarútan" hafi stoppistöð við Ásgarð daglega á leið sinni upp í Bláfjöll þegar opið er á skíðasvæðinu. Komið er við hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, Flatahrauni 14, í Mjóddinni og Olís við Rauðavatn.
Ekið er eftir rútuáætlun Skíðasvæðanna sjá. https://skidasvaedi.is/upplysingar/rutuaaetlun/ og yrði Flatahraun endastöð í ferðum frá Bláfjöllum. Brottför virka daga yrði 15:40 og komið heim um 22:00. Um helgar yrði brottför 12:10 og komið heim um 18:00
Málsnúmer 2102160
14
Leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ
ÍTG samþykkti haustið 2020 að nýta fjármuni úr 19. júnísjóði til að setja á laggirnar verkefni til eflingar fyrirmynda í kvennaíþróttum. Nú er komið á samstarf við KVAN um næstu skref í því verkefni sem verður að efla forystuhæfileika stúlkna í afreksíþróttum í Garðabæ. Fyrsti fundur þeirra er áætlaður 13.mars nk.
ÍTG samþykkti haustið 2020 að nýta fjármuni úr 19. júnísjóði til að setja á laggirnar verkefni til eflingar fyrirmynda í kvennaíþróttum.
Nú er komið á samstarf við KVAN um næstu skref í því verkefni. Markmið verkefnisins er að efla forystuhæfileika stúlkna í afreksíþróttum í Garðabæ. Fyrsti fundur þeirra er áætlaður 13. mars nk.
- Stefanía sagði frá íþróttum eldri borgara og skipulagi þeirra mála sem loks er komin í gang að ný. Þar fyllast öll námskeið sem boðið er upp á og biðlistar myndast, enda fjöldatakmarkanir í gangi vegna sóttvarnareglugerða.
- Umræða um Útilífsmiðstöð Vífils þar sem framkvæmdir eru komnar langt á veg.