Beint í efni

Skýrsla starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara.

Málsnúmer 2101428

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

33. fundur

Skýrsla starfshópsins rædd og þau markmið sem þar koma fram.
ÍTG fagnar samningum Garðabæjar við félög eldri borgara í Garðabæ sem uppfyllir öll þau markmið sem stefnt er að í aðgerðaráætlun um heilsueflingu aldraðra og Heilsueflandi samfélag í Garðabæ.

Öldungaráð

02

3. fundur

Skýrsla frá Heilbrigðisráðuneytinu um Heilsueflingu aldraðra - Aðgerðaráætlun, lögð fram til kynningar og umfjöllunar. Skýrslan sem gefin er út í ágúst 2021 kemur í framhaldi af skýrslu starfshóps um Heilsueflingu aldraðra, útgefinni í janúar 2021.
Kynntar eru aðgerðir til að efla heilsu aldraðra og gera þeim kleift að búa heima sem lengst. Þar verði
sérstaklega horft til samstarfs og verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga, en heilsuefling er mikilvægur þáttur í stuðningi við sjálfstæða búsetu og önnur lífsgæði aldraðra.

Mál nr. 2101428,skýrsla um Heilsueflingu aldraðra - Aðgerðaáætlun, tekið til umfjöllunar í Öldungaráði. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með útgáfu þessarar skýrslu og tekur undir mikilvægi þess að styðja við heilsueflingu eldri borgara til að auka lífsgæði aldraðra og stuðla að auknum lífslíkum við góða heilsu. Lagt er til aukið samstarf á milli Heilsugæslu og félagsþjónustu sem er ánægjulegt. Falla áherslur í skýrslunni vel að markmiðum í Stefnu eldri borgara í Garðabæ 2016-2026.

Bæjarráð Garðabæjar

03

31 (1989). fundur

Lögð fram og vísað til kynningar í öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

3. fundur

Skýrsla starfshóps varðandi tillögur að heilsuefnilgu eldri borgara lögð fram.

Mál nr. 2101428 lagt fram til kynningar, skýrsla starfshóps um heilsueflingu aldraðra. Fjölskylduráð fjallar um málið og tekur undir markmið skýrslunnar og mikilvægi þess að stuðla að frekari forvörnum og heilsueflingu með samstarfi ríkis og sveitarfélaga í forgrunni. Garðabær er heilsueflandi samfélag og fylgist því grannt með stöðu mála í Garðabæ og leggur ríka áherslu á heilsueflingu í sinni stefnumótun í málaflokknum, með forvirkar aðgerðir að leiðarljósi.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

28. fundur

Skýrslan lögð fram.

Öldungaráð

06

1. fundur

Lagt er fram til kynningar skýrsla starfshóps um Heilsueflingu aldraðra. Í skýrslunni sem er fjallað um eftirtalda þætti;
1. Mikilvægi heilsueflingar
2. Framtíðarsýn og meginmarkmið
3. Hlutverk ríkis og sveitarfélaga í heilsueflingu
4. Tillögur starfshóps

M.a er rætt um að bætt heilsa aldraðra sé ekki aðeins jákvæð fyrir líf þeirr heldur einnig þjóðhagslega hagkvæm þar sem aldraðir geti þá lengur búið í sjálfstæðri búsetu.
Sett eru markmið fram til ársins 2030 þar sem m.a. kemur fram að öll sveitarfélög hafi markað sér stefnu er varðar heilsueflingu fyrir aldraða og ýt frá henni gert aðgerðaráætlun með reglulegu stöðumati. eftirfylgni og árangursmælingum. Setja eigi gæða - og þjónustuviðmið sem bæði ríki og sveitarfélög vinna með og farið verði af stað með heilsueflandi samtöl.

Mál 2101428 tekið fyrir, skýrsla starfshóps um heilsueflingu aldraðra, og lagt fram til kynningar. Skýrslan setur fram metnaðarfull markmið til að stuðla að frekari forvörnum og frekari heilsueflingu með samstarfi ríkis og sveitarfélaga og hvetur sveitarfélög til að setja fram sérstaka aðgerðaráætlun í því sambandi. Garðabær er heilsueflandi samfélag og fylgist því grannt með stöðu mála í Garðabæ og leggur ríka áherslu á heilsueflingu í sinni stefnumótun í málaflokknum. Sömuleiðis er rík áhersla lögð á heilsueflingu eldri borgara á Heilsugæslu Garðabæjar. Öldungaráð tekur heilshugar undir þá þætti sem fjallað er um í skýrslunni og leggur áherslu á forvirkar aðgerðir.

Bæjarráð Garðabæjar

07

4. (1962). fundur

Lögð fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði, öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.

Fylgiskjöl