31 (1989). fundur
31 (1989). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
24.08.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
COVID-19 - Leiðbeiningar fyrir skóla- og frístundarstarf á höfuðborgarsvæðinu í upphafi skólaárs vegna farsóttar.
Edda Björg Sigurðardóttir, grunnskóla- og leikskólafulltrúi, gerði grein fyrir leiðbeiningum um framkvæmd skóla- og frístundastarfs á höfuðborgarsvæðinu í upphafi skólaárs vegna farsóttar sem unnar hafa verið í samráði við almannavarnir. Markmiðið er að halda starfseminni órofinni og minnka líkur á því að stórir hópar barna og starfsfólks þurfi að fara í sóttkví eða jafnvel einangrun. Lagt er til að þessar leiðbeiningar gildi til 1. október. Á þeim tímapunkti hafa 12-15 ára börn verið bólusett og starfsfólk fengið örvunarskammt.
Fyrir fundinum lá frammi kynning frá fundi framkvæmdaráðs AHS, dags. 20 ágúst 2021 og leiðbeiningar sóttvarnarlæknis um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum, dags. 21. ágúst 2021.
02
Keldugata 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skoðun ehf., kt. 640908-0920, leyfi til að byggja raðhús að Keldugötu 4.
03
Keldugata 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Klettaskjóli ehf., kt. 520406-0180 leyfi til að byggja raðhús að Keldugötu 6.
04
Keldugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðatorgi fasteignum ehf., kt. 441214-1380, leyfi til að byggja raðhús að Keldugötu 8.
05
Keldugata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Klettaskjóli ehf., kt. 520406-0180, leyfi til að byggja raðhús að Keldugötu 10.
06
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi skýrslu um samræmda skiptingu stjórnsýslunnar, dags. 18.08.21.
Lögð fram.
07
Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara, dags. 18.08.21.
Lögð fram og vísað til kynningar í öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Tré lífsins um starfsemi bálstofu.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Tré lífsins- bálstofa og Minningargarðar ses. fái leyfi fyrir starfsemi bálstofu í fyrirhuguðum kirkjugarði í Rjúpnadal.
Bæjarráð vísar í þessu sambandi til bókunar á fundi sínum 27. apríl 2021 þar sem tekið var fyrir erindi félagsins um lóð fyrir bálstofu og höfuðstöðva í Rjúpnadal..
„Bæjarráð tekur jákvætt í erindi og felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna um samning varðandi úthlutun lóðar fyrir starfsemi bálstofu og höfuðstöðva félagsins í Rjúpnadal.“
09
Opnun tilboða í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ 2021-2024.
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið „Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024“.
Bjartey ehf. kr. 64.627.200
Malbikunarstöðin Höfði hf. kr. 225.048.000
Kostnaðaráætlun kr. 75.900.000
Afgreiðslu frestað meðan tilboð eru yfirfarin nánar.
10
Opnun tilboða í vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024.
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið „Vetrarþjónusta stofnana lóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024“.
Bjartey ehf. kr. 77.451.000
Dráttarbílar vélaleiga ehf. kr. 69.569.820
Kostnaðaráætlun kr. 90.390.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
11
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um stöðu innritunar barna í leikskóla bæjarins.
Lagt fram svar við fyrirspurninni.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn gagnrýnir þau vinnubrögð sem bæjarstjóri kýs að viðhafa í upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa. Í vikunni sem leið óskuðu bæjarfulltrúi og nefndarmaður leikskólanefndar ítrekað eftir upplýsingum frá fræðslusviði um innritun á leikskóla sveitarfélagsins. Þeirri ósk var ítrekað hafnað á þeim forsendum að engar upplýsingar yrðu kynntar fyrr en á fyrirhuguðum fundi leikskólanefndar sem fram fer þann 15. september. Sú tímasetning finnst okkur í minnihlutanum ótæk miðað við þá stöðu sem uppi er varðandi innritun vegna skorts á leikskólaplássi.
Á bæjarstjórnarfundi þann 19. ágúst síðastliðinn fer bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar með upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólana, sömu upplýsingar og fulltrúar Garðabæjarlistans höfðu óskað eftir án árangurs.“
12
Beiðni Garðabæjarlistans um kynningu Sorpu á fyrirhuguðum útflutningi á úrgangi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða framkvæmdastjóra Sorpu bs. á fund bæjarráðs til að ræða nánar málefni Sorpu bs.
13
Kjörstaðir í Garðabæ vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021.
Lögð fram fundargerð kjörstjórnar þar sem fram kemur að kjörstaðir í Garðabæ verði í Íþróttahúsinu Mýrinni og Álftanesskóla.