Tilkynning heilbrigðisráðuneytis um afléttingu allra takmarkana innanlands og á landamærum, dags. 23.02.22.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
2. (2009). fundur
Bæjarstjóri fór yfir tölur dagsins og stöðuna almennt.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerðu grein stöðu mála vegna faraldursins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
1. (2008). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála í leik- og grunnskólum. Fram kom að um forföll er að ræða hjá bæði nemendum og starfsliði skólanna sem hafa valdið röskun á skólastarfi.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs upplýsti um að farið er yfir stöðuna á hverjum degi. Engin smit hafa komið á heimilisfólki á heimilum fatlaðs fólk en einhver forföll hafa verið hjá starfsmönnum vegna smita og sóttkvíar. Í stuðningsþjónustu hefur þurft að grípa til forgangsröðunar vegna forfalla starfsmanna.
Bæjarráð Garðabæjar
04
46. (2004). fundur
1. 2001444 - COVID-19 - Staða mála. (JVM mætir á fundinn)
Á fund bæjarráðs mætti Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu. Jón Viðar fór almennt yfir stöðuna og lagði fram upplýsingar um þróunina í faraldrinum sem staðið hefur í 642 daga. Hjá sveitarfélögunum hefur verið lögð áhersla að halda órofinni starfseminni sem almennt hefur gengið mjög vel. Jón Viðar fór yfir þróunina í Garðabæ frá júlí 2021 og stöðuna almennt í leikskólum og grunnskólum og upplýsti um skiptingu smita hjá einstaklingum eftir aldurshópum.
Jón Viðar vakti athygli á vefsíðu sem RÚV hefur opnað undir heitinu íslenska kovidkortið en þar eru upplýsingar um stöðu mála uppfærðar daglega. Jón Viðar kom inn á umræðu og aðgerðir vegna Ómíkron afbrigðisins.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi var á fjarfund bæjarráðs undir dagskráliðum 1 og 2.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
43. (2001). fundur
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og gerði grein fyrir vinnu sem er hafin við að kortleggja búsetu í atvinnuhúsnæði. Þá fór Jón Viðar yfir stöðu mála varðandi Covid -19 og kom fram að fjöldi smita er að aukast og nýgengi smita er með því hæsta sem verið hefur í faraldrinum. Jón Viðar fór nánar yfir nýjar reglur um hertar aðgerðir.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Ingvar Arnarson og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Bæjarráð Garðabæjar
06
31 (1989). fundur
Edda Björg Sigurðardóttir, grunnskóla- og leikskólafulltrúi, gerði grein fyrir leiðbeiningum um framkvæmd skóla- og frístundastarfs á höfuðborgarsvæðinu í upphafi skólaárs vegna farsóttar sem unnar hafa verið í samráði við almannavarnir. Markmiðið er að halda starfseminni órofinni og minnka líkur á því að stórir hópar barna og starfsfólks þurfi að fara í sóttkví eða jafnvel einangrun. Lagt er til að þessar leiðbeiningar gildi til 1. október. Á þeim tímapunkti hafa 12-15 ára börn verið bólusett og starfsfólk fengið örvunarskammt.
Fyrir fundinum lá frammi kynning frá fundi framkvæmdaráðs AHS, dags. 20 ágúst 2021 og leiðbeiningar sóttvarnarlæknis um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum, dags. 21. ágúst 2021.
Bæjarráð Garðabæjar
08
30 (1988). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála varðandi undirbúning fyrir upphaf skólastarfs í grunnskólum og aðlögun nýrra barna í leikskólum. Unnið er að gerð samræmdra leiðbeininga fyrir höfuðborgarsvæðið varðandi aðgreiningu á rýmum o.fl. sem felur í sér ákveðnar takmarkanir á skólastarfi. Lögð er áhersla á sóttvarnir, grímuskyldu, nálægðarmörk og takmarkaðan aðgang utanaðkomandi aðila að skólahúsnæði. Unnið er að undirbúningi bólusetninga skólabarna sem mun hefjast í næstu viku.
Bæjarráð Garðabæjar
09
13. (1971). fundur
Í upphafi fundar bauð formaður Svanhildi Þengilsdóttur, nýráðinn sviðsstjóra fjölskyldusviðs, velkomna á fund bæjarráðs.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála en núverandi reglugerðir um takmörkun á samkomum og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar gilda til og með 15. apríl nk.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og sviðsstjóri fjölskyldusviðs fóru nánar yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Starfsemi bæjarskrifstofa er hólfaskipt og hluti starfsmanna í fjarvinnu. Allir fundir eru fjarfundir nema einstaka viðtalsfundir sem eru í Sveinatungu.
Bæjarráð vill koma á framfæri mikilvægi þess að allt íþróttastarf barna og ungmenna og afreksstarf meistaraflokka verði leyft og leitað verði leiða til að opna sundstaði fyrir einstaklinga sem hafa verið bólusettir. Bæjarráð telur einnig rétt að skoða möguleika á að opna félagsstarf eldri borgara fyrir þá sem hafa verið bólusettir.
Bæjarráð Garðabæjar
10
12. (1970). fundur
Hertar reglur um sóttvarnarráðstafanir tóku gildi á miðnætti sl. miðvikudag. Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginreglan og grunn-, framhalds-, tónlistar-, og háskólum var lokað fram að páskafríi. Leikskólar verða opnir. Margvísleg starfsemi hefur verið stöðvuð og gert að loka og falla sundstaðir þar undir. Íþróttir inni og úti jafnt barna og fullorðinni, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar. Hertar reglur munu gilda í þrjár vikur eða til 15. apríl 2021. Reglur um lokun skóla gildir til 31. mars 2021 en unnið er að gerð nýrra regla um fyrirkomulag skólahalds að loknu páskafríi.
Upplýst var um að starfsemi á bæjarskrifstofum hefur verið hólfaskipt að nýju og hluti starfsmanna er í fjarvinnu. Allir fundir eru fjarfundir nema einstaka viðtalsfundir sem eru í Sveinatungu.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og yfirfélagsráðgjafi fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarráð Garðabæjar
12
8. (1966). fundur
Jón Viðar fór yfir þróun farsóttarinnar frá upphafi og stöðuna í dag og gerði grein fyrir samantekt sem gerð hefur verið fyrir almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins og kynnt sveitarfélögunum.
Nýjar reglur um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmarkanir á skólastarfi tóku gildi 24. febrúar sl. og gilda til 17. mars nk. og 30. apríl nk.
Samkvæmt hinum nýju reglum eru almenn fjöldatakmörk 50 manns en í skólum eru fjöldatakmörk 150.
Bæjarstjóri upplýsti að starfsemin á bæjarskrifstofunum verður ekki lengur hólfaskipt og starfsmenn kallaðir í hús með einhverjum frávikum. Áfram verður viðhöfð sú regla að gestir komi ekki til fundar á 3. hæð skrifstofunnar og þá verður haldið áfram að nota fjarfundabúnað vegna funda þar sem það hentar og er til hagræðingar.
Bæjarráð Garðabæjar
15
6. (1964). fundur
Upplýst var að ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa almannavarnastig úr neyðarstigi niður á hættustig vegna COVID-19. Neyðarstigi var lýst yfir 4. október 2020 þegar þriðja bylgja faraldursins hófst og smitum tók að fjölga verulega.
Leiðbeiningar um fjöldatakmarkanir í söfunum hafa verið uppfærðar. Almenn fjöldatakmörkun er að 20 einstaklingar mega koma saman. Í söfnum, svo sem bóka- og skjalasöfnum, listasöfnum, minjasöfnum, náttúrugripasöfnum og tæknisöfnum er heimilt að taka við fimm gestum á hverja 10 m2, þó að hámarki 150 viðskiptavinum í rými að því gefnu að uppfyllt skilyrði um a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
Núverandi reglur um samkomutakmarkanir gilda til 3. mars nk.
Bæjarráð Garðabæjar
16
5. (1963). fundur
Lögð fram og kynnt stöðuskýrsla Almannavarna fyrir janúar 2021.
Ný reglugerð tók gildi 8. febrúar þar sem gerðar eru varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum. Reglugerðin gildir til 8. mars 2021.
Upplýst var um meginniðurstöður vinnuhóps um mögulegar staðsetningar bólusetningar. Hópurinn leggur til að gerð verði áætlun um nýtingu á húsnæði anddyri Laugardalshallar og fjórum öðrum stórum íþróttahúsum á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt er að bólusetja um 1.000 manns á klst og aðgangur er að um 500 bílastæðum.
Bæjarráð Garðabæjar
17
2. (1960). fundur
Lögð fram stöðuskýrsla almannavarna, dags. 15. janúar sl. þar sem upplýst er um að nýjar reglur um takmörkun á samkomum o.fl. tóku gildi 13. janúar sl. og gilda til 17. febrúar nk.
Breytingar á takmörkun á samkomum vegna farsóttar eru að í stað þess að 10 geti komið saman þá mega nú 20 einstaklingar koma saman. Tilslökunin nær einnig til íþróttastarfs fullorðinna en áður gat einungis afreksíþróttafólk og börn fædd 2005 og síðar stundað sínar íþróttir. Nú geta allir stundað íþróttir innan ákveðinna marka, svo sem vegna fjöldatakmarkana og reglna sem sérsambönd setja sér og með tilliti til sóttvarna. Líkamsræktarstöðvar geta einnig opnað fyrir hópa með ákveðnum skilyrðum. Sviðslistir og sitjandi menningarstarf getur hafist með ákveðnum takmörkunum þó.
Bæjarstjóri upplýsti um að óbreyttar reglur gilda varðandi aðgang og takmarkanir á bæjarskrifstofunum.
Sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála á sínu sviði.
Bæjarfulltrúi, Gunnar Valur Gíslason, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
18
1. (1959). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að ný reglugerð um takmörkun á samkomum tekur gildi á morgun 13. janúar þar sem fjöldatakmarkanir miðast við 20 manns í stað 10 manns. Heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum og skíðasvæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum og sömuleiðis íþróttakeppnir án áhorfenda. Áformað er að breytingarnar gildi til 17. febrúar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og yfirfélagsráðgjafi gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarráð Garðabæjar
19
50. (1958). fundur
Bæjarstjóri sagði frá því að samkvæmt ákvörðun almannavarna er sveitarfélögum væri heimilt að hafa flugeldasýningar og mun Hjálparsveit Garðabæjar vera með sýningu við Arnarvoginn á gamlárskvöld. Fólk verður hvatt til að safnast ekki saman til að njóta sýningarinnar heldur finna aðrar lausnir.
Bæjarstjóri fór yfir stöðuskýrslu almannavarna, dags. 21.12.2020 og greindi frá stöðu mála varðandi aðgang að bóluefni og undirbúning bólusetninga.
Ný reglugerð þar sem takmarkanir á skólastarfi verða rýmkaðar hefur verið birt og mun gilda frá 1. janúar 2021.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir stöðu mála á sínu sviði.
Bæjarfulltrúi, Jóna Sæmundsdóttir var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
21
49. (1957). fundur
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna og fór almennt yfir stöðuna í baráttunni við farsóttina. Jón Viðar gerði grein fyrir undirbúningi bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu en verkefnið er samstarfsverkefni sveitafélaganna og heilsugæslunnar. Jón Viðar upplýsti að ákveðið hefur verið að veita ekki leyfi í ár fyrir áramótabrennu og til skoðunar er hvort unnt verði að hafa flugeldasýningar á vegum sveitarfélaganna.
Upplýst var um nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi sem tóku gildi í síðustu viku. Reglugerð um takmörkun á samkomum gildir til 12. janúar 2021 en reglugerð um skólastarf til 31. desember 2020.
Bæjarfulltrúarnir Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 8.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 8.
Bæjarráð Garðabæjar
22
48. (1956). fundur
Bæjarstjóri fór yfir gögn frá almannavarnarnefnd en ný reglugerð um takmarkanir vegna sóttvarnaraðgerða mun taka gildi á fimmtudag. Bæjarstjóri upplýsti að hafinn er undirbúningur vegna bólusetningar og sagði frá litakóðunarkerfi sem verið er að kynna á vegum almannavarna.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og yfirfélagsráðgjafi á fjölskyldusviði gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarfulltrúi Sara Dögg Svanhildardóttir var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
23
47. (1955). fundur
Lögð fram stöðuskýrsla AHS, dags. 30.11.2020 þar sem fjallað er um helstu breytingar á milli vikna og samanburð við önnur Evrópulönd með áherslu á Norðurlöndin. Þá var kynnt greining á fjölda smita eftir aldri og kyni.
Í fundargátt eru leiðbeiningar almannavarna er varða undirbúning jólahátíðar og samverustunda fjölskyldna á jólum og áramótum sem verða kynntar starfsmönnum.
Núverandi sóttvarnarreglur þar sem m.a. er mælt fyrir um takmörkun á samkomum og skólastarfi vegna farsóttar gilda til lok dagsins í dag. Gera má ráð fyrir að hertar sóttvarnarreglur gildi áfram.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarfulltrúarnir, Gunnar Valur Gíslason, Harpa Þorsteinsdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir og voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Bæjarráð Garðabæjar
24
46. (1954). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag. Reglur um hertar takmarkanir á samkomum og skólahaldi gilda til 2. desember nk.
Kynntar voru nýjar reglur um að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu. Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 8.?10. bekk en 50 hjá yngri nemendum. Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.?10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum. Félagsmálastjóri fór yfir nýjar tölum varðandi atvinnuleysi.
Rætt um að hafa á dagskrá næsta fundar bæjarráðs greinargerð frá starfshópi sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir og voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Bæjarráð Garðabæjar
25
45. (1953). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag en þar var m.a. rætt um mögulegar tilslakanir frá og með 18. nóvember. Nýjar reglur um samkomubann taka gildi á morgun. Helstu breytingar eru að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný. Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25. Hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar. Almennar fjöldatakmarkanir miðast áfram við 10 manns. Reglurnar gilda til 2. desember nk.
Kynnt var samantekt nýgengni smita undanfarna 14 daga, fjölda smita eftir aldri og fjölda smita eftir lögheimili.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir skipulagi skólastarfs en ný reglugerð um takmörkun á skólastarfi tekur gildi á morgun. Leikskólabörn og börn í 1.- 4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.- 10. bekk að hámarki 25 saman. Börn í 5. - 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi fjöldatakmarkanir, nálægðartakmarkanir eða grímunotkun.
Á fundinum kom fram hrós til stjórnenda skólanna fyrir framkvæmd skólastarfs við þessar erfiðu aðstæður.
Bæjarfulltrúarnir, Gunnar Valur Gíslason, Sara Dögg Svanhildardóttir, Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-8.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-8.
Bæjarráð Garðabæjar
26
44. (1952). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag en þar var m.a. farið yfir samantekt á helstu reglum um takmarkanir og ráðstafanir neyðarstjórna og sveitarfélaga. Kynntar voru leiðbeiningar fyrir velferðarþjónustu sveitarfélaga. Hertar takmarkanir gilda til 17. nóvember nk.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir skipulagi skólastarfs við hertar takmarkanir og sagði frá hvernig sérfræðiþjónustu væri sinnt í skólunum. Félagsmálastjóri fór yfir stöðu mála á sínu sviði.
Bæjarfulltrúarnir, Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Bæjarráð Garðabæjar
27
43. (1951). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hertum sóttvarnarráðstöfunum sem tóku gildi 1. nóvember sl. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember nk.
Bæjarstjóri upplýsti að unnið hafi verið að breyttum útfærslum í stofnum Garðabæjar en reglurnar kalla á breytingar á starfsemi skóla og annarra stofnana. Á bæjarskrifstofunum hefur starfsemin á 3. hæð verið skipt upp í þrjú hólf til að tryggja 10 manna fjöldamörk og margir starfsmenn vinna heima.
Ný reglugerð um takmarkanir á skólastarfi hefur verið gefin út og tók gildi í dag. Í leikskólum eru breytingar minniháttar en í grunnskólum og tónlistarskólum er gert ráð fyrir töluverðum takmörkunum hvaða varðar fjölda í kennslustofum og öðrum svæðum. Þá er krafa um grímuskyldu nemenda í efri bekkjum grunnskólans þegar víkja þarf frá tveggja metra reglunni. Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nemendur í 5.-10. bekk og starfsfólk notist við andlitsgrímu.
Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, er óheimilt á meðan reglugerðin er í gildi.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir vinnu við útfærslu á skólastarfi í skólum bæjarins. Sviðsstjóri hrósaði stjórnendum og starfsmönnum skólanna fyrir magnað vinnuframlag við að skipuleggja skólastarf við þessar erfiðu aðstæður. Öll börn koma í skóla á hverjum degi en kennsla í sömum greinum er takmörkuð en reynt er að bæta það upp með heimaverkefnum. Fram kom að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa haft samráð um alla megindrætti við útfærslu á skólastarfi.
Félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á fjölskyldusviði.
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri sagði frá viðburðum sem hefur verið streymt til allra starfsmanna og upplýsti að mannauðsdeild er í reglulegum samskiptum við forstöðumenn stofnana.
Svanhildur Þengilsdóttir, stuðnings- og þjónustufulltrúi, sagði frá stöðu mála á Ísafold en þar hefur starfsemin gengið vel að undanförnu og hefur dagdvölin verið opin. Jónshús er opið og hafa starfsmenn í samstarfi við Félag eldri borgara verið að hringja í eldra fólk til að fylgjast með líðan þess og almennt aðstæðum þess. Starfsemi heimaþjónustu hefur gengið vel og er lítið um afbókanir. Lögð er áhersla á sóttvarnir og grímunotkun starfsmanna.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Fulltrúar í neyðarstjórn Garðabæjar, Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri, Björgvin Magnússon, forstöðumaður eignasjóðs, Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, Vala Dröfn Hauksdóttir, deildarstjóri tölvudeildar, Svanhildur Þengilsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu og Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri voru á fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
28
42. (1950). fundur
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og fór yfir þróun faraldursins í þriðju bylgju. Jón Viðar gerði grein fyrir stöðu mála í dag og fór yfir tölulegar upplýsingar um dreifingu, fjölda smita o.fl. Þá gerði Jón Viðar grein fyrir aðgerðum sem nú standa yfir til að hamla útbreiðslu farsóttarinnar. Fram kom hjá Jóni Viðari að samstarf sveitarfélaganna við að samhæfa aðgerðir og tilkynningar til íbúa hafi verið til fyrirmyndar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarstjóri sagði frá viðbrögðum Sjálandsskóla vegna eineltismála sem hafa verið til umfjöllunar en af hálfu skólans hefur verið send út yfirlýsing vegna málsins. Skólinn vinnur að málinu samkvæmt viðbragðsáætlun Garðabæjar í eineltismálum og þá hefur verið brugðist við með því að efla samstarf við foreldra þeirra nemenda sem hlut eiga að máli. Kallaðir hafa verið til ráðgjafar sérfræðingar í eineltismálum til að styðja við nemendur og starfsfólk skólans.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Bæjarráð Garðabæjar
29
41. (1949). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag en þar voru kynnt áform um breytingar á sóttvarnarráðstöfunum sem tóku gildi í dag. Áfram er kveðið á um strangar takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjóri sagði frá sameiginlegri tilkynningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um lokun íþróttamannvirkja og sundlauga.
Neyðarstjórn Garðabæjar kom saman til fundar sl. föstudag og var farið yfir stöðuna í stofnunum Garðabæjar og almennt áhrif farsóttarinnar á starfsemi bæjarins. Smit hafa komið upp í stofnunum bæjarins og starfsmenn og nemendur farið í einangrun og sóttkví.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason og Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Bæjarráð Garðabæjar
30
40. (1948). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag en þar var farið yfir reglur um hertar aðgerða um takmörkun á samkomum, skólahaldi o.fl. vegna farsóttar.
Neyðarstjórn Garðabæjar kom saman til fundar í gær og fór nánar yfir stöðuna í stofnunum Garðabæjar og almennt áhrif farsóttarinnar á starfsemi bæjarins. Smit hafa komið upp í stofnunum bæjarins og starfsmenn og nemendur farið í einangrun og sóttkví.
Bæjarstjóri upplýsti að boðað hefur verið til hvatningarfundar með forstöðumönnum á morgun en mikið álag er á forstöðumönnum stofnana bæjarins sem hafa staðið sig mjög vel við þessar erfiðu aðstæður.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarráð Garðabæjar
31
39. (1947). fundur
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. sunnudag en þar var upplýst um ákvörðun ríkislögreglustjóra að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnarlækni. Hertar opinberar aðgerðir tóku gildi 5. október þar sem m.a. er miðað við 20 manna fjöldatakmörkun.
Neyðarstjórn Garðabæjar kom saman í gær og fór nánar yfir einstaka þætti er snúa að starfsemi bæjarins. Í reglum er settar hafa verið koma fram takmarkanir varðandi starfsemi sundlauga og leiðbeiningar varðandi starfsemi leik- og grunnskóla.
Á bæjarskrifstofunum verður tryggt að ekki fleiri en 20 starfsmenn verði í vinnu í hverju aðgreindu hólfi. Aðrir vinna að heiman. Á neyðarstigi almannavarna er meginreglan að allir fundir í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum verði með fjarfundarbúnaði.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarráð Garðabæjar
32
38. (1946). fundur
Bæjarstjóri sagði frá því að búið er aðgreina bæjarskrifstofurnar í tvö hólf, hluti starfsmanna vinnur heima og flestir fundir eru haldnir með fjarfundarbúnaði.
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og var farið yfir kynningarefni frá fundinum og sagt frá helstu áherslum.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir stöðunni í leik- og grunnskólum en allir skólar bæjarins starfa eðlilega miðað við aðstæður í Covid.
Rætt var um verklagsreglur sem eru í gildi þegar smit kemur upp í skólum.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-4.
.
Bæjarráð Garðabæjar
33
37. (1945). fundur
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og fór nánar yfir helstu áherslur sem fram komu á fundinum. Þá sagði bæjarstjóri frá því að neyðarstjórn Garðabæjar hafi komið saman til fundar í gær og verið er að herða aðgerðir og aðgang að bæjarskrifstofunum. Leiðbeiningar hafa verið sendar til starfsmanna og upplýsingar til bæjarfulltrúa.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá stöðu mála í skólunum en Leikskólinn Akrar er lokaður og ein deild á Leikskólanum Ásum vegna smita starfsmanna. Verið er að herða aðgerðir varðandi aðgengi utanaðkomandi aðila að húsnæði skólanna.
Félagsmálastjóri sagði frá takmörkunum á starfsemi eldri borgara, stöðu mála á sambýlum og öðrum þáttum starfseminnar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagkrárliðum 1 og 2.
Bæjarráð Garðabæjar
34
36. (1944). fundur
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og fór nánar yfir helstu áherslur sem fram komu á fundinum. Bæjarstjóri kynnti samantekt frá samráðsfundi sem haldinn var undir heitinu „að lifa með veirunni“.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá stöðu mála í skólunum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagkrárliðum 1 og 2.
Bæjarráð Garðabæjar
35
35. (1943). fundur
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og fór nánar yfir helstu áherslur sem fram komu á fundinum. Farið var yfir kynningarefni frá fundinum. Nýjar reglur um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tóku gildi í gær. Þar sem m.a. er kveðið á um að fjöldatakmörkun hækki úr 100 í 200 og nálægðartakmörkun breytist úr 2 metrum í 1 metra.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.
Bæjarráð Garðabæjar
36
34. (1942). fundur
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og gerði grein fyrir áherslum almannavarna varðandi ráðstafanir neyðarstjórna og sveitarfélaga.
Bæjarstjóri sagði frá fundi með forstöðumönnum sem haldinn var í gær en þar var farið nánar yfir helstu reglur og áherslur í starfseminni og aðgerðir til að tryggja sóttvarnir.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir skólastarfi og sagði nánar frá samstarfi rakningarteymis og skólastjórnenda varðandi sóttkví starfsmanna og lokun skóla.
Bæjarfulltrúi Sara Dögg Svanhildardóttir, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Bæjarráð Garðabæjar
37
33. (1941). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir áherslum almannavarna varðandi ráðstafanir neyðarstjórna og sveitarfélaga og sagði frá því að neyðarstjórn Garðabæjar hafi komið saman til fundar í gær.
Bæjarstjóri sagði frá því að fyrirhugaður er fjarfundur með öllum forstöðumönnum til að fara nánar yfir helstu reglur og áherslur í starfseminni og aðgerðir til að tryggja sóttvarnir.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir skólabyrjun í grunnskólum og tilhögun á aðlögun nýrra barna á leikskólunum. Fram kom að fyrirhugaður er sameiginlegur fundur fræðslustjóra með almannavörnum til að samræma reglur og áherslu í starfi skólanna á höfuðborgarsvæðinu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
38
32. (1940). fundur
Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir breyttum reglum um takmörkun á samkomum og almennt um ráðstafanir og samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi lykilþætti. Bæjarstjóri sagði frá að verið væri að vinna að greininga á fjárhagslegum áhrifum vegna Covid19 í tengslum við undirbúning að vinnu við fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir undirbúning að skólabyrjun grunnskóla, aðlögun nýrra barna í leikskóla og skipulag á starfsemi tónlistarskólans.
Bæjarráð Garðabæjar
39
31. (1939). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu og fór yfir stöðu mála. Sviðsstjórar fóru yfir þær samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi og áhrif þeirra á starfsemi Garðabæjar.
Bæjarfulltrúinn Gunnar Valur Gíslason sat fund bæjarráðs undir dagskrárlið 1.
Bæjarráð Garðabæjar
40
27. (1935). fundur
Upplýst var um stöðu mála á fjölskyldusviði og varðandi starfsemi vinnuskólans en 50 ungmenni eru í sóttkví og 20 flokkstjórar. Starfsemi skólans hófst á ný síðastliðinn fimmtudag en gera má ráð fyrir einhverjum takmörkunum á starfseminni út þessa viku. Engin ný smit hafa greinst.
Samkvæmt tilkynningum frá heilbrigðisráðuneyti eru óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna Covid19 og fyrirhugaðar eru breyttar reglur vegna skimunar á landamærum.
Bæjarráð Garðabæjar
41
26. (1934). fundur
Upplýsingastjóri sagði frá aðgerðum sem gripið hefur verið til í vinnuskólanum í framhaldi af smiti starfsmanns. Um 50 unglingar ásamt ákveðnum fjölda flokkstjóra hafa þurft að fara í sóttkví til og með 10. júlí nk. Þá var ákveðið að öll ungmenni fengu frí úr vinnu dagana 29. og 30. júní. Fjölmargir starfsmenn hafa farið í skimun.
Ítrekuð hafa verið áhersluatriði til starfsmanna bæjarins um grunnreglur samfélagssáttmála varðandi góðan handþvott, handsprittun o.fl.
Bæjarfulltrúi, Sara Dögg Svanhildardóttir, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
42
19. fundur
Farið yfir þær breytingar sem urðu á skólahaldi vegna Covid 19. Rætt um hvað við getum lært af þessum tíma sem og stöðuna í skólunum í dag. Skólanefnd felur fræðslu og menningarsviði að tryggja að hver skóli taki saman greinargerð um skólahald á þessu tímabili þar sem fram komi m.a. hvaða lærdóm má draga af því. Skólanefnd og foreldrasamfélagið í bænum færir skólastjórnendum og starfsfólki skólanna þakkir fyrir vel unnin störf.
Bæjarráð Garðabæjar
43
17. (1926). fundur
Bæjarstjóri upplýsti að í gær hafi hafist eðlilegt starf í leik- og grunnskólum og íþróttastarf barna og ungmenna en með þeim takmörkunum sem fram koma í auglýsingu sóttvarnaryfirvalda varðandi starfsfólk o.fl. Þá hefur bókasafnið opnað og í undirbúningi er að opna Jónshús fyrir félagsstarf eldri borgara.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu atriðum í stöðuskýrslu AHS, dags. 2. maí sl.
Sviðsstjórar fóru yfir starfsemina á sínum sviðum.
Upplýsingastjóri sagði frá því að verið er að boða til samráðsfundar varðandi fyrirkomulag viðburða á höfuðborgarsvæðinu í sumar.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fundi bæjarráðs undir dagskráliðum 1 og 2.
Bæjarráð Garðabæjar
44
16. (1925). fundur
Með fundarboði fylgdu minnisblöð og reglur varandi nýjar takmarkanir sem taka gildi frá og með 4. maí nk. Gert er ráð fyrir að starf í leik- og grunnskólum verði með eðlilegu hætti og að íþróttastarf barna á grunnskólaaldri geti hafist. Þá er gert ráð fyrir opnun félagsmiðstöðva og safna.
Sviðsstjórar gerðu grein fyrir stöðunni á sínum sviðum og svöruðu fyrirspurnum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
45
20. fundur
Margrét Sigurðardóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, og Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, eru gestir fundarins undir þessum lið og fara yfir starfsemi safnanna á undanförnum vikum.
Farið verður yfir stöðu mála varðandi Covid-19 og menningarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu.
Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, og Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, greindu frá með hvaða hætti söfnin hafa starfað eftir að samkomubann var sett á. Fyrirhugað er að söfn og menningarstofnanir geti opnað aftur að nýju 4. maí en virða þarf fjöldatakmarkanir, uppfylla kröfur um þrif og sótthreinsun almenningsrýma og 2 metra fjarlægð á milli manna.
Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri greindi frá starfi neyðarstjórnar Garðabæjar og samvinnu við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins um það sem varðar starfsemi og þjónustu sveitarfélaga á neyðarstigi almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn.
Bæjarráð Garðabæjar
46
15. (1924). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðu á fundi almannavarna sl. föstudag þar fram komu upplýsingar um áhrif samkomubanns á líðan og hegðun fólk í samfélaginu. Á fundinum var rætt um að samræma ákvarðanir vegna viðburða í sveitarfélögunum í vor og byrjun sumar eins og t.d. á 17. júní.
Almannavarnir munu á næstu dögum senda sveitarfélögum gátlista og önnur gögn til að vinna að endurreisn samfélagsins og er gert ráð fyrir að neyðarstjórnir sveitarfélaganna gegni hlutverki endurreisnarteymis.
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir samráði sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna framkvæmdar og kynningar á breytingum á takmörkunum á samkomubanni sem taka gildi 4. maí.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá undirbúningi að birtingu auglýsingar um breytingar á samkomubanni 4. maí en boðað hefur verið að leik- og grunnskólastarf verði með eðlilegum hætti frá og með þeim tíma sem þýðir að ekki verða gerðar kröfur um 2 metra samskipta fjarlægð í öllum tilvikum. Sviðsstjóri lagði áherslu á hann hafi beint því til skólastjóra að láta starfsemina þróast hægt og eðlilega af stað.
Félagsmálastjóri sagði frá stöðu mála varðandi þróun atvinnuleysis í Garðabæ og aukningu á umsóknum á fjárhagsaðstoð.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að þjónustumiðstöðin er að hefja vorverkin við hreinun bæjarins o.fl.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
47
18. fundur
Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar síðustu daga og vikur og þær breytingar sem líklega verða á skólahaldi eftir 4. maí.
Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og æðruleysi í störfum sínum.
Bæjarráð Garðabæjar
48
14.(1923). fundur
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi áhrif af Covid19 og greindi frá að samkomubann hefur verið framlengt til 4. maí nk. Bæjarstjóri sagði frá að verið er að fara yfir tillögur sviðstjóra um hagræðingu í rekstri til að mæta samdrætti í tekjum. Fram kom að gert er ráð fyrir að næstu tvær til þrjár vikur geti verið mjög erfiðar og það geti reynt á þolmörk á ýmsum sviðum. Í því sambandi þurfum við að skoða vel starfsemina á fjölskyldusviði, stöðuna í skólunum, sorphirðumál og starfsmannamál. Gerður hefur verið listi yfir starfsmenn Garðabæjar sem mögulega er hægt flytja milli starfa til að mæta veikindum eða sinna nauðsynlegum verkefnum. Bæjarstjóri sagði einnig frá samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu við úrlausn margra verkefna. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er að undirbúa að eiga samtal við ríkið um hvernig stutt verður við starfsemi sveitarfélaganna.
Sviðsstjórar fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Félagsmálastjóri sagði frá því að verið er að hringja í eldri borgara og í forgangi eru þeir sem búa einir. Heimaþjónustan sinnir reglulega þjónustu við um 280 heimili en um 50 heimili hafa afpantað heimaþjónustu. Í undirbúningi er að gera það aðgengilegt á vef Garðabæjar að tilkynna brot og vanrækslu gagnvart börnum. Bæjarverkfræðingur sagði frá því að starfsemi sviðsins gangi almennt vel og nefndi í því sambandi vetrarþjónustu, starfsemi veitna og sorphirðu. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála og sagði að starfsemin gangi vel miðað við aðstæður. Á ákveðnum stöðum hefur þurft að endurskipuleggja starfsemina m.t.t. aðstæðna s.s. veikinda o.fl. Fram kom að sálfræðingar sem starfa hjá bænum hafa boðið starfsmönnum skólanna aðstoð við þessar erfiðu aðstæður. Ákveðin óvissa er hvernig ástandið verður eftir páska.
Lagt fram yfirlit framkvæmdastjóra almannavarna um verkefni og útgáfu á leiðbeiningum til 27. mars sl.
Bæjarstjóri sagði frá því að farið er að huga að endurreisnarstarfi sem felst í að fara vel yfir hvernig við komum starfseminni í gang að nýju eftir þungt högg og er í undirbúningi hjá almannavörnum að útbúa gátlista fyrir sveitarfélögin til leiðbeiningar.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Ingvar Arnarson, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir, voru á fundi bæjarráð undir þessum dagskrárlið og þá voru einnig á fundinum undir þessum dagskrárlið fulltrúar í neyðarstjórn Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
49
13. (1922). fundur
Bæjarstjóri gerði grein stöðu mála og samstarfi við almannavarnir vegna áhrifa Covid19 og sagði að neyðarstjórn Garðabæjar komi saman til fundar þrisvar í viku.
Sviðsstjórar fóru yfir starfið á sínum sviðum. Upplýsingastjóri sagði frá upplýsingamiðlun til bæjarbúa um starfsemina, fyrirkomulag á innheimtu gjalda og hvatningu um að stunda hreyfingu og útivist.
Bæjarráð Garðabæjar
50
12. (1921). fundur
Á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-4 sátu Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Vala Dröfn Hauksdóttir, deildarstjóri tölvudeildar.
Bæjarstjóri kynnti reglur um hertar takmarkanir á samkomubanni sem gera ráð fyrir að viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður og að fjarlægð milli manna verði yfir tveimur metrum.
Þessi fyrirmæli hafa áhrif á þjónustu sveitarfélaga:
Öllum sundlaugum, íþróttamiðstöðvum, söfnum og bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað frá þriðjudagsmorgninum 24. mars.
Skólar og leikskólar verða áfram opnir en þeir foreldrar eða forráðamenn sem af einhverjum ástæðum senda ekki börnin sín í skólann þurfa að tilkynna það til skólans líkt og um skólaleyfi sé að ræða.
Önnur þjónusta sveitarfélaganna mun áfram haldast órofin eins og kostur er.
Fyrirmæli þessi tóku gildi frá og með mánudeginum 23. mars kl. 24:00 og gilda þar til annað verður ákveðið.
Sviðstjórar gerðu grein fyrir aðgerðum og helstu áherslum sem verið er að vinna að varðandi starfsemi sem fellur undir þeirra svið. Upplýsingastjóri gerði grein fyrir að unnið er að sameiginlegri upplýsingamiðlun til almennings í samráði við aðgerðastjórn almannavarna ásamt því sem áhersla er lögð á að koma gagnlegum skilaboðum á framfæri við íbúa á vef Garðabæjar.
Upplýst var að á bæjarskrifstofunum þar sem starfa fleiri en 20 manns hefur vinnustaðnum verið skipt upp í tvö aðgreind svæði og þá eru margir starfsmenn að vinna heima.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir vinnu fjármálastjóra á höfuðborgarsvæðinu við að meta áhrifa Covid19 á efnahag sveitarfélaganna. Fyrir liggja drög að sviðsmyndum með áætlun um áhrif á fjárhag Garðabæjar þar sem fram kemur samdráttur í tekjum og áætlun um aukin útgjöld hjá félagsþjónustu og annars kostnaður vegna Covid 19. Í undirbúningi er að vinna að tillögum að til að mæta tekjutapi með hugmyndum um hagræðingu og lækkun útgjalda.
Bæjarráð Garðabæjar
51
11. (1920). fundur
Bæjarstjóri gerði almennt grein fyrir aðgerðum bæjarins vegna neyðarstigs almannavarna og reglum heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólahaldi og samkomum. Lýsti hann verkefninu framundan við að halda starfsemi bæjarins gangandi og hvernig einstaka vinnustaðir eru að bregðast við til að veita þjónustu en um leið að verja vinnustaðinn og starfsmennina með takmörkun á aðgengi og fjarvinnu. Bæjarstjóri sagði frá hugmyndum um aðkomu sveitarfélaganna að efnahagsaðgerðum.
Sviðstjórar gerðu grein fyrir aðgerðum og helstu áherslum sem verið er að vinna að varðandi starfsemi sem fellur undir þeirra svið.
Upplýsingastjóri sagði frá samskiptum og samráði við almannavarnir og upplýsingastjóra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi almenna upplýsingamiðlun til íbúa á rsvæðinu.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
53
9. (1918). fundur
Í framhaldi af fyrsta smiti kórónaveiru (Covid19) hefur ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkjað hættustig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðuskýrslu sem lögð var fram á fundi almannavarnanefndar föstudaginn 28. febrúar sl. Þar er m.a. farið yfir opinberar aðgerðir.
Boðað hefur verið til fundar forstöðumanna stofnana og bæjarfulltrúa með slökkviliðsstjóra í dag kl. 08:45.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
54
17. fundur
Farið yfir hvernig upplýsingar berast til skóla og foreldra varðandi viðbrögð við veirunni. Forstöðumönnum bæjarins er gert að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum frá almannavörnum og embætti landlæknis
Bæjarráð Garðabæjar
55
5. (1914). fundur
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, deildarstjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins sátu fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Gestir fundarins gerðu grein fyrir þýðingu þess að lýst hefur verið yfir óvissustigi almannavarna vegna kórónaveiru. Farið var nánar yfir viðbrögð almannavarnarnefndar og nauðsyn á auknu samstarfi stofnanna og samræmdri upplýsingamiðlun til almennings.