Beint í efni

5. (1963). fundur

09.02.2021
Bæjarráð Garðabæjar

5. (1963). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

09.02.2021

Kl. 08:00 - 09:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.

Dagskrá

Málsnúmer 2102129

01

Borgarlínan - frumdrög að fyrstu lotu - kynning á skýrslu.

Á fund bæjarráð kom Hrafnkell Á Proppé verkefnastjóri Borgarlínu og gerði grein fyrir frumdragaskýrslu sem komin er út og fjallar um 1. lotu verkefnisins - forsendur og frumdrög. Fyrsta lota borgarlínu mun standa yfir frá 2021-2025 og verður 14 km löng frá Ártúnshöfða niður í miðbæ Reykjavíkur og yfir Fossvog í Hamraborg í Kópavogi. Áætlaður heildarkostnaður er 24,9 milljarðar.

Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir og Gunnar Valur Gíslason sátu fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.

Málsnúmer 2001444

02

COVID-19 - stöðuskýrsla AHS - 31.01.2021.

Lögð fram og kynnt stöðuskýrsla Almannavarna fyrir janúar 2021.

Ný reglugerð tók gildi 8. febrúar þar sem gerðar eru varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum. Reglugerðin gildir til 8. mars 2021.

Upplýst var um meginniðurstöður vinnuhóps um mögulegar staðsetningar bólusetningar. Hópurinn leggur til að gerð verði áætlun um nýtingu á húsnæði anddyri Laugardalshallar og fjórum öðrum stórum íþróttahúsum á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt er að bólusetja um 1.000 manns á klst og aðgangur er að um 500 bílastæðum.

Málsnúmer 2012036

03

Maríugata 31 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ESAIT ehf., kt. 580713-1810, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 31.

Málsnúmer 2102104

04

Maríugata 33 - umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ESAIT ehf., kt. 580713-1810, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 33.

Málsnúmer 2102105

05

Maríugata 35 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ESAIT ehf., kt. 580713-1810, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 35.

Málsnúmer 2102106

06

Maríugata 37 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ESAIT ehf., kt. 580713-1810, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 37.

Málsnúmer 1804367

07

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland, dags. 05.02.21.

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið samþykkt bæjarstjórnar á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland en getur ekki staðfest breytinguna fyrr en niðurstaða liggur fyrir um eftirfarandi atriði.

Tenging í Hnoðraholti, tenging við gatnakerfi Kópavogsbæjar.

Flóðavarnir og ofanvatnslausnir í Vetrarmýri.

Loftgæði íbúðarbyggðar í Vetrarmýri.

Bæjarstjóri upplýsti um að fyrirhugaður fundur með Skipulagsstofnun í dag og í undirbúningi er að halda fund með fulltrúm Kópavogsbæjar.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2101532

08

Umsókn um leyfi til halda eRally á Íslandi 2021, dags. 28.01.21.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2102026

09

Bréf Samgöngustofu varðandi beiðni um umsögn um staðsetningu ökutækjaleigu að Garðatorgi 7, dags. 01.02.21.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Guðmundi Þorsteinssyni, kt. 310380-3859 f.h. Stólabíla, ehf., kt. 580121-1280 verði veitt leyfi til að starfrækja ökutækjaleigu að Garðatorgi 7, 210 Garðabæ. Í umsókn kemur fram að sótt er um leyfi fyrir einu ökutæki í útleigu.

Málsnúmer 2102038

10

Starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12.

Hildigunnur Árnadóttir, yfirfélagsráðgjafi kynnti undirbúning að starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12.

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Málsnúmer 2102073

11

Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfisins, dags. 04.02.21.

Lögð fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.

Málsnúmer 1909412

12

Reglur Garðabæjar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Lögð fram tillaga að sameiginlegum reglum sveitarfélaganna Kópavogs Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2102107

13

Erindi Byggingarfélags Gylfa og Gunnars varðandi uppbyggingu og breytingar á skipulagi Setbergs.

Í erindinu er leitað til bæjaryfirvalda um að hafinn verði undirbúningur að breytingum á skipulagi Setbergsholts m.t.t. landnotkunar, þéttleika byggðar og gatnakerfis en landsvæðið er í eigu erindishafa.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102109

14

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál., dags. 04.02.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2102112

15

Bréf Alþingis vaðandi frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál., dags. 05.02.21.

Lagt fram.