Reglur Garðabæjar um stuðningsþjónustu.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (884). fundur
Bæjarstjórn samþykkir reglur Garðabæjar um stuðningsþjónustu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (1970). fundur
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
03
2. fundur
Lögð eru fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar voru upphaflega unnar í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og byggðar á grunni reglna Reykjavíkurborgar um sama málefni. Breytingar hafa verið gerðar á fjölskyldusviði Garðabæjar til aðlögunar og leiðréttinga. Samskonar reglur um stuðning við fullorðna eru á undirbúningsstigi í áðurnefndu samstarfi.
Tekið er fyrir mál nr. 1909412, drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Samráðshópurinn fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir. Samþykkt er af hálfu samráðshóps um málefni fatlaðs fólk að leggja drögin fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
3. (881). fundur
Bæjarstjórn samþykkir reglur Garðabæjar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Fjölskylduráð Garðabæjar
07
3. fundur
Lögð eru fyrir fjölskylduráð drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar voru upphaflega unnar í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og byggðar á grunni reglna Reykjavíkurborgar um sama málefni.
Breytingar hafa verið gerðar á fjölskyldusviði Garðabæjar til aðlögunar og leiðréttinga. Samskonar reglur um stuðning við fullorðna eru á undirbúningsstigi í áðurnefndu samstarfi.
Tekið er fyrir mál nr. 1909412, drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir. Samþykkt er af hálfu fjölskylduráðs að leggja drögin fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks, bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.
Bæjarráð Garðabæjar
08
5. (1963). fundur
Lögð fram tillaga að sameiginlegum reglum sveitarfélaganna Kópavogs Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
09
3. fundur
Tekið fyrir mál nr. 1909412 reglur um skammtímadvöl. Lagt fram til kynningar og rætt.
Fjölskylduráð Garðabæjar
10
8. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 190412 reglur um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir fundinum liggja drög að reglum sem eru samhljóða fyrir sveitarfélögin, Garðabæ, Kópavog, Hafnarfjörð, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes.
Reglurnar öðlast gildi fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig þegar bæjarstjórn hefur samþykkt þær.
Fjölskylduráð fjallar um drögin og samþykkir að senda þau til kynningar í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks og til afgreiðslu bæjarráðs.