Beint í efni

3. fundur

17.02.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

3. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

17.02.2021

Kl. 16:00 - 20:25

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Pála Marie Einarsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2102306

01

Úttekt á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ

Kynning á niðurstöðum úttektar innra gæðaeftirlits með þjónustu á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ.

Mál nr. 2102306 tekið fyrir, kynning Ellýjar Þorsteinsdóttur á niðurstöðu innra eftirlits og úttekta á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ sem var framkvæmt á tímabilinu janúar til desember 2020 með vísan til 5. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi þjónustuþarfir nr. 38/2018. Niðurstöður liggja fyrir sem voru almennt jákvæðar, gripið hefur verið til úrbóta á grundvelli þeirra athugasemda sem gerðar voru og áætlanir liggja fyrir um frekari úrbætur.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911163

02

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar.

Mál nr. 1911163 lagt fram til kynningar, Hulda Hauksdóttir fer yfir stöðu vinnslu lýðræðisstefnu Garðabæjar og framvindu hennar. Fjölskylduráð leggur áherslu á að stefnan verði reglulega á dagskrá ráðsins til að tryggja upplýsingaflæði og gefa tækifæri á umræðu og athugasemdum.

Málsnúmer 2002291

03

Staða biðlista í félagslegu leiguhúsnæði

Lagðar eru fram til kynningar upplýsingar um stöðu félagslegs húsnæðis í Garðabæ í febrúar 2021, fjölda umsókna á biðlista félagslegs leiguhúsnæðis og móttekinna umsókna sem ekki hafa verið samþykktar á biðlista. Snædís Björnsdóttir, verkefnastjóri, kynnir stöðuna.

Mál nr. 2002291, tekið fyrir, kynning Snædísar Björnsdóttur verkefnastjóra á fjölskyldusviði á stöðu biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í Garðabæ og samanburði við stöðu í mars 2020. Fjölskylduráð fjallar um málið og starfsmenn svara spurningum ráðsins.

Málsnúmer 2012368

04

Umsókn um félagslega heimaþjónustu

Lagt er fyrir mál, nr. 2012368, áfrýjun vegna synjunar á umsókn um félagslega heimaþjónustu.

Tekið er fyrir mál, nr. 2012368, áfrýjun vegna synjunar á umsókn um félagslega heimaþjónustu. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu afgreiðslufundar stuðningsþjónustu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1801090

05

Umsókn um aukningu á NPA vinnustundum

Lagt er fyrir mál nr. 1801080, áfrýjun vegna synjunar á beiðni um hækkun á úthlutuðum NPA vinnustundum.

Tekið er fyrir mál nr. 1801080, áfrýjun vegna synjunar á beiðni um hækkun á úthlutuðum NPA vinnustundum. Fjölskylduráð fjallar um málið og staðfestir afgreiðslu afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu í tveimur af þremur liðum en vísar einum þeirra til afgreiðslu á fjölskyldusviði. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2006352

06

Umsókn um aukningu á NPA vinnustundum

Lagt er fyrir mál nr. 2006352, áfrýjun vegna synjunar á beiðni um hækkun á úthlutuðum NPA vinnustundum.

Tekið er fyrir mál nr. 2006352, áfrýjun vegna synjunar á beiðni um hækkun á úthlutuðum NPA vinnustundum. Fjölskylduráð fjallar um málið og ákvörðun tekin um frestun þess þar til endurskoðun á NPA taxta hefur verið lokið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2102038

07

Heimili fyrir börn

Starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12.

Mál nr. 2102038 lagt fram til kynningar, Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi kynnir undirbúning að starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12. Fjölskylduráð telur framkvæmdina gæfuspor í þágu þjónustu við fötluð börn í þörf fyrir búsetu utan heimilis.

Málsnúmer 1901223

08

Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd

Greinargerð um endurúttekt á stuðningsfjölskyldu lögð fyrir fjölskylduráð til ákvörðunartöku.

Mál nr. 1901223 lagt fram, greinargerð vegna endurúttektar á stuðningsfjölskyldu. Fjölskylduráð mælir með að viðkomandi stuðningsfjölskyldu verði áfram veitt stuðningsfjölskylduleyfi. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.

Málsnúmer 2101203

09

Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu

Lögð fyrir greinagerð vegna úttektar á stuðningsfjölskyldu á grundvelli beiðnar Keðjunnar.

Mál nr. 2101203 lagt fram, greinargerð vegna úttektar á stuðningsfjölskyldu. Fjölskylduráð mælir með að viðkomandi stuðningsfjölskyldu verði veitt stuðningsfjölskylduleyfi. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.

Málsnúmer 1909412

10

Reglur Garðabæjar um stuðningsþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra

Lögð eru fyrir fjölskylduráð drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar voru upphaflega unnar í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og byggðar á grunni reglna Reykjavíkurborgar um sama málefni.

Breytingar hafa verið gerðar á fjölskyldusviði Garðabæjar til aðlögunar og leiðréttinga. Samskonar reglur um stuðning við fullorðna eru á undirbúningsstigi í áðurnefndu samstarfi.

Tekið er fyrir mál nr. 1909412, drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir. Samþykkt er af hálfu fjölskylduráðs að leggja drögin fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks, bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.

Málsnúmer 2009056

11

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020

Íbúakönnun Gallup 2020 lögð fram til kynningar.

Mál nr. 2009056 lagt fram til kynningar, þjónustukönnun Gallup 2020. Í meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildina litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Niðurstöður þeirra málaflokka er heyra undir fjölskylduráð (ánægja þjónustu við fatlað fólk, eldri borgara og barnafjölskyldur) standa í stað á milli ára en eru yfir landsmeðaltali.

Fjölskylduráð hvetur fjölskyldusvið til að rýna frekar í niðurstöðu þjónustukönnunarinnar og nýta í umbótarstarf á sviðinu.

Málsnúmer 2101187

12

Sérfræðingateymi vegna barna með fjölþættan vanda

Bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi skipun sérfræðingateymis til ráðgjafar sveitarfélögum vegna þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir, dags. 12.01.21.

Mál nr. 2101187 lagt fram til kynningar, stofnun sérfræðingateymis vegna barna með fjölþættan vanda. Gert var ráð fyrir stofnun teymisins með setningu laga nr. 38/2018 en var ekki komið á legg fyrr en nú. Teyminu er ætlað að vera sveitarfélögum til ráðgjafar um viðeigandi þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir sem þurfa á annars konar og meiri þjónustu að halda en unnt er að veita á heimili fjölskyldna þeirra.

Málsnúmer 2102035

13

Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafn Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Mál nr. 2102035, tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1, lagt fram til kynningar. Tillagan hefur það að markmiði að undirbúa stækkun Hönnunarsafns Íslands og auka þjónustu á Garðatorgi enn frekar með bættri aðstöðu fyrir fjölskyldur, börn og ungmenni. Fjölskylduráð felur fjölskyldusviði að skoða sérstaklega hvernig húsnæðið gæti gagnast frístundastarfi fatlaðs fólks og annarri þjónustu við börn og ungmenni.

Garðabæjarlistinn lagði fram sér bókun undir þessum lið:

Við í Garðabæjarlistanum fögnum ákvörðun meirihlutans að taka tvær af frábærum tillögum Garðabæjarlistans og setja þær í annan búning og leggja svo fram sem sína tillögu í bæjarstjórn þann 4. febr. s.l. Þann 20. september 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær setti á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhús. Einnig kom fram í þeirri tillögu að íþrótta- og tómstundaráð, menningar og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. Þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir Hönnunarsafn Ísland og um leið fyrir aðra starfsemi. Á sama augnabliki og við fögnum því að meirihlutinn taki upp okkar góðu tillögur að þá verðum við smá sorgmædd yfir þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn viðhefur. Það að vísa okkar tillögum í nefndir og láta þær svo hverfa í svarthol tillagna til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir okkur vera dapurleg vinnubrögð.

Málsnúmer 2101428

14

Skýrsla starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara.

Skýrsla starfshóps varðandi tillögur að heilsuefnilgu eldri borgara lögð fram.

Mál nr. 2101428 lagt fram til kynningar, skýrsla starfshóps um heilsueflingu aldraðra. Fjölskylduráð fjallar um málið og tekur undir markmið skýrslunnar og mikilvægi þess að stuðla að frekari forvörnum og heilsueflingu með samstarfi ríkis og sveitarfélaga í forgrunni. Garðabær er heilsueflandi samfélag og fylgist því grannt með stöðu mála í Garðabæ og leggur ríka áherslu á heilsueflingu í sinni stefnumótun í málaflokknum, með forvirkar aðgerðir að leiðarljósi.