Beint í efni

Leigusamningur um húsnæði að Garðatorgi 1.

Málsnúmer 2102035

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

3. (2010). fundur

Bæjarráð samþykkir leigusamning við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. um leigu á 370,6 fermetrar rými í húsnæði að Garðatorgi 1.

Bæjarráð Garðabæjar

02

26. (1984). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir greinargerð og önnur gögn varðandi nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Bæjarráð vísar hugmyndum um nýtingu og endurbætur á húsnæði Garðatorgs 1 til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 og áframhaldandi viðræðna við mennta- og menningarmálaráðuneytið varðandi fullnustu samnings um framlag til stofnkostnaðar fyrir Hönnunarsafnið.

Bæjarráð samþykkir að samningur við leigusala sem rann út í lok júní verði framlengdur til ársloka.

Fylgiskjöl

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

03

1.. fundur

Lögð fram til kynningar tillaga sem lögð var fram í bæjarstjórn um skoðun á heilstæðri nýtingu húsnæðisins að Garðatorgi 1. Nefndarmenn eru sammála um að þetta sé gott málefni.

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

22. fundur

Fræðslustjóri kynnti tillögu að nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

28. fundur

Tillaga lögð fram til kynningar og umfjöllunar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

3. fundur

Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafn Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Mál nr. 2102035, tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1, lagt fram til kynningar. Tillagan hefur það að markmiði að undirbúa stækkun Hönnunarsafns Íslands og auka þjónustu á Garðatorgi enn frekar með bættri aðstöðu fyrir fjölskyldur, börn og ungmenni. Fjölskylduráð felur fjölskyldusviði að skoða sérstaklega hvernig húsnæðið gæti gagnast frístundastarfi fatlaðs fólks og annarri þjónustu við börn og ungmenni.

Garðabæjarlistinn lagði fram sér bókun undir þessum lið:
Við í Garðabæjarlistanum fögnum ákvörðun meirihlutans að taka tvær af frábærum tillögum Garðabæjarlistans og setja þær í annan búning og leggja svo fram sem sína tillögu í bæjarstjórn þann 4. febr. s.l. Þann 20. september 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær setti á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhús. Einnig kom fram í þeirri tillögu að íþrótta- og tómstundaráð, menningar og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. Þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir Hönnunarsafn Ísland og um leið fyrir aðra starfsemi. Á sama augnabliki og við fögnum því að meirihlutinn taki upp okkar góðu tillögur að þá verðum við smá sorgmædd yfir þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn viðhefur. Það að vísa okkar tillögum í nefndir og láta þær svo hverfa í svarthol tillagna til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir okkur vera dapurleg vinnubrögð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Skipulagsnefnd tekur undir framkomna tillögu og vísar henni til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði. Þar skal sérstaklega metið hvort breytingar með þessum hætti kalli á skipulagsferli.

Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:

"Nú undir lok kjörtímabils skal loks eitthvað gert í málefnum Garðatorgs 1 og Hönnunarsafnsins.
Minnt skal á að í upphafi kjörtímabils, fyrir bráðum 3 árum síðan lagði Garðabæjarlistinn fram tillögur um nákvæmlega sama efni í bæjarstjórn. - Fyrst þann 20. september 2018 um að Garðabær kæmi á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhúsi. Einnig lagt þar til að íþrótta- og tómstundaráð, menningar- og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. - Síðar eða þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn jafnframt fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að skapa aukið rými fyrir Hönnunarsafn Íslands og um leið fyrir aðra starfsemi. Það hefur sem sé tekið meirhlutann heil 3 ár að stauta sig í gegnum tillögu minnihlutans og smíða úr þeim nákvæmlega sömu tillögur. Ef þetta er birtingarmynd margrómaðrar lýðræðistefnu bæjarins þá er hér hér framkominn nýr vinkill á þá skilgreiningu.
Um leið og ég fagna því að meirihlutinn sé vaknaður af menningardvalanum þá harma ég vinnubrögðin sem meirihlutinn viðhefur hér með dæmigerðu ólýðræðislegu „eignanámi“ tillagna minnihlutans. Að vísa tillögum minnihlutans í nefndir og svæfa þar, til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir mér bera vitni um grátbrosleg vinnubrögð.
Hér má að lokum af þessu tilefni vitna í Ladda (Þórhalls Sigurðssonar) í gervi Eiríks Fjalar sem sagði um eigin „lagasmíðar“ - „Þetta er frumsamið eftir sjálfan mig“. "

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

08

1. fundur

Mál númer 2102035 lagt fram til kynningar, tillaga um að fela fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar að skoða heildstæða nýtingu húsnæðis á Garðatorgi 1, áframhaldandi uppbyggingu Hönnunarsafn Íslands og að skoðað verði að koma á fót ungmennahúsi sem myndi m.a. myndi sinna frístundastarfi fyrir fötluð börn og ungmenni.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

29. fundur

Lagt fram.
Bókun Garðabæjarlistans:
"Við í Garðabæjarlistanum fögnum ákvörðun meirihlutans að taka tvær af frábærum tillögum Garðabæjarlistans og setja þær í annan búning og leggja svo fram sem sína tillögu í bæjarstjórn þann 4. febr. s.l.
Þann 20. september 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær setti á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhús. Einnig kom fram í þeirri tillögu að íþrótta- og tómstundaráð, menningar og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. Þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir Hönnunarsafn Ísland og um leið fyrir aðra starfsemi.
Á sama augnabliki og við fögnum því að meirihlutinn taki upp okkar góðu tillögur að þá verðum við smá sorgmædd yfir þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn viðhefur. Það að vísa okkar tillögum í nefndir og láta þær svo hverfa í svarthol tillagna til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir okkur vera dapurleg vinnubrögð.?
Við gerum athugasemd við að tillögur okkar hafa ekki verið ræddar í nefndum og óskum eftir að svo verði. Nefndum ber að afgreiða tillögur sem þangað koma inn.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

10

28. fundur

Til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

11

28. fundur

Fyrir fundinum lá samþykkt bæjarstjórnar frá 4. febrúar sl. um að fela fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar að skoða heildstæða nýtingu húsnæðis á Garðatorgi 1.
Málið hefur verið vísað til fræðslu- og menningarsviðs til úrvinnslu.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

2. (880). fundur

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Áslaugu Huldu Jónsdóttur og Björgu Fenger

"Bæjarstjórn samþykkir að fela fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar að skoða heildstæða nýtingu húsnæðis á Garðatorgi 1 þar sem annars vegar verði mótuð tillaga að áframhaldandi uppbyggingu Hönnunarsafns Íslands í húsinu og hins vegar tillaga að því hvernig nýta megi betur önnur rými á 2. hæð, jarðhæð og í kjallara hússins ásamt aðliggjandi yfirbyggðri göngugötu undir fjölbreytta menningarstarfsemi fyrirtækja og félagasamtaka á sviði lista og menningar, Ungmennahús, frístundastarf fatlaðs fólks og samkomustað fjölskyldna í bænum.
Stefnt skal að því að tillögur fræðslu- og menningarsviðs ásamt greiningu stofnkostnaðar og reksturskostnaðar valkosta liggi fyrir eigi síðar en í lok apríl 2021."

Greinargerð
Þann 1. janúar 2007 tók Garðabær við rekstri og stjórn Hönnunarsafns Íslands. Hönnunarsafnið starfar sem stofnun á vegum bæjarfélagsins og ber safnið ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim þætti menningarsögu íslendinga sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900. Á undanförnum árum hefur starfsemi safnsins á sviði stafrænnar menningar eflst, safnið stendur fyrir vönduðum viðburðum fyrir börn og á árinu 2019 tók Hönnunarskóli Hönnunarsafnsins til starfa fyrir ungmenni á aldrinum 13-16 ára.
Allt frá árinu 2015 hafa fulltrúar Garðabæjar, með hléum, átt viðræður við fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis um hvernig leysa megi húsnæðismál Hönnunarsafnisins en hætt var við að reisa nýja safnbyggingu í kjölfar hrunsins árið 2008. Gengið er út frá því að ákvæði í samkomulagi aðilanna frá árinu 2006 um stofnframlag ríkisins vegna safnbyggingar sé enn í fullu gildi og að það framlag ríkisins framreiknað til verðlags 2021 fari til uppbyggingar safnsins á Garðatorgi 1, s.s. til að bæta aðgengi að safninu, auka öryggi muna, stækka rými fyrir sýningar og innrétta fjölnotasal. Einnig hefur verið til umræðu ráðstöfun styrktar- og rekstrarframlags í fjárlögum til starfsemi Hönnunarsafnsins.
Markmið með úttektinni er annars vegar að undirbúa stækkun Hönnunarsafnsins í núverandi húsnæði og hins vegar að auka menningarlíf og þjónustu á Garðatorgi enn frekar með vísi að Blackbox rými; t.d. með Ungmennahúsi, bættri aðstöðu fyrir leiklist, myndlist og aðrar listgreinar ásamt aðstöðu fyrir frístundastarf fatlaðs fólks. Mikilvægt er að úttektin sé unnin í fullu samráði við húseiganda og aðra hagaðila í húsinu m.a. með tilliti til þátttöku í breytingum á húsnæði.
Með bættum húsakosti Hönnunarsafnsins á Garðatorgi 1 með betri og varanlegri sýningar- og geymsluaðstöðu, aðgengi fyrir alla og bættri ásýnd, þróun Ungmennahúss fyrir 16 ára og eldri og aukinni aðstöðu fyrir menningu, listir, frístundir fatlaðs fólks og samveru fjölskyldunnar er stuðlað að áframhaldandi uppbyggingu öflugs miðbæjar Garðabæjar á Garðatorgi í sambýli við þá verslun, þjónustu og íbúðarbyggð sem þar er til staðar nú.

Ingvar Arnarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun Garðabæjarlistans.

"Við í Garðabæjarlistanum fögnum ákvörðun meirihlutans að taka tvær af frábærum tillögum Garðabæjarlistans og setja þær í annan búning og leggja svo fram sem sína tillögu í bæjarstjórn núna.
Þann 20. september 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær setti á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhús. Einnig kom fram í þeirri tillögu að íþrótta- og tómstundaráð, menningar og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. Þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir Hönnunarsafn Ísland og um leið fyrir aðra starfsemi.
Á sama augnabliki og við fögnum því að meirihlutinn taki upp okkar góðu tillögur að þá verðum við smá sorgmædd yfir þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn viðhefur. Það að vísa okkar tillögum í nefndir og láta þær svo hverfa í svarthol tillagna til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir okkur vera dapurleg vinnubrögð."

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls og kom með ábendingu um að tillögunni verði vísað til umfjöllunar nefnda.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók undir ábendingu um að vísa tillögunni til umfjöllunar nefnda.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.