Beint í efni

1.. fundur

15.04.2021
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

1.. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

15.04.2021

Kl. 08:00 - 09:05

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Eiríkur Þorbjörnsson
  • Einar Örn Magnússon
  • Sigrún Gísladóttir
  • Sólveig Guðrún Geirsdóttir
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
  • Edda Björg Sigurðardóttir - deildarstjóri skóladeildar

Ritari

  • Laufey Ólafsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2104103

01

Starfsemi Tónlistarskólans fram á sumar á tímum Covid-19.

Skólastjóri fór yfir skólastarfið undanfarnar vikur og sagði frá starfseminni á covid tímum. Skóladagatal 2021-22 var lagt fyrir til samþykktar. Skóladagatalið var samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2104103

02

Skólagjöld

Lögð fram tillaga um 4% hækkun skólagjalda fyrir starfsárið 2021-2022. Var sú tillaga samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2104103

03

Biðlistar - staða.

Farið var yfir stöðu biðlista við tónlistarskólann og eru nú rúmlega 200 nemendur á biðlistanum. Skólanefndin leggur mikla áherslu á að tekið verði mið af biðlistum við eflingu skólans, stöðugildum fjölgað og að tónlistarskólinn stækki í samræmi við þá miklu fjölgun íbúa sem hefur orðið á síðustu árum og stefnir í að verði áfram.

Málsnúmer 2102035

04

Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Lögð fram til kynningar tillaga sem lögð var fram í bæjarstjórn um skoðun á heilstæðri nýtingu húsnæðisins að Garðatorgi 1. Nefndarmenn eru sammála um að þetta sé gott málefni.

Málsnúmer 2009056

05

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020

Lagt fram til kynningar.