Beint í efni

Starfsemi Tónlistarskólans 2021-2022.

Málsnúmer 2104103

Ferill máls

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

01

2. fundur

Skólastjóri fór yfir skólastarfið undanfarnar vikur og sagði frá starfseminni. Skólastarfið fór vel af stað og nú er hægt að halda úti allri starfsemi skólans í ljósi núgildandi sóttvarnarreglna. Fram undan eru hausttónleikar skólans í húsnæði skólans í Kirkjulundi og í nýjum sal grunnskólans á Álftanesi. Þá heldur stórsveit skólans stórtónleika ásamt söngnemendum 26. október nk. Fram undan eru masterklassar með ýmsum listamönnum fyrir lengra komna nemendur skólans.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

02

2. fundur

Undanfarna mánuði hefur farið fram vinna við endurgerð menntastefnu Garðabæjar til ársins 2030. Formaður fór stuttlega í gegnum þá vinnu og rætt var um málefni Tónlistarskóla Garðbæjar í væntanlegri menntastefnu.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

03

2. fundur

Rætt um óskir um kaup á búnaði og um fjölgun stöðugilda við skólann til að mæta biðlistum. Þá var rætt um óskir um að stækkun skólans í Kirkjulundi yrði sett á áætlun og gert væri ráð fyrir stækkun tónlistarskólans í samræmi við fjölgun íbúa á Álftanesi. Skólanefndin styður þessar óskir og bendir á að fjölgun íbúa í Garðabæ kalli á stækkun tónlistarskólans.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

8. (886). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2021-2022.

Bæjarráð Garðabæjar

05

18. (1976). fundur

Bæjarráð vísar tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um gjaldskrá fyrir skólaárið 2020-2021 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

06

1.. fundur

Farið var yfir stöðu biðlista við tónlistarskólann og eru nú rúmlega 200 nemendur á biðlistanum. Skólanefndin leggur mikla áherslu á að tekið verði mið af biðlistum við eflingu skólans, stöðugildum fjölgað og að tónlistarskólinn stækki í samræmi við þá miklu fjölgun íbúa sem hefur orðið á síðustu árum og stefnir í að verði áfram.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

07

1.. fundur

Lögð fram tillaga um 4% hækkun skólagjalda fyrir starfsárið 2021-2022. Var sú tillaga samþykkt samhljóða.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

08

1.. fundur

Skólastjóri fór yfir skólastarfið undanfarnar vikur og sagði frá starfseminni á covid tímum. Skóladagatal 2021-22 var lagt fyrir til samþykktar. Skóladagatalið var samþykkt samhljóða.