Beint í efni

8. (886). fundur

20.05.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

8. (886). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

20.05.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Stella Stefánsdóttir
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Harpa Þorsteinsdóttir
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Starfsmenn

  • Eva Ósk Ármannsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. maí 2021 er lögð fram.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs með vísan til umræðu um leikskólamál.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs um leikskólamál.

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs um leikskólamál.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs um leikskólamál.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs um leikskólamál.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs um leikskólamál.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju um leikskólamál.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs að nýju um leikskólamál.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs að nýju um leikskólamál.

Dagskrá

Málsnúmer 2105011F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 11/5 ´21.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi, 7. tl., bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar, 12. tl., bréf foreldrafélags Urriðaholtsskóla varðandi leikskólaþjónustu í Urriðaholti, 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ og 17. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi höfuðborgarkort, dags. 07.05.21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 13. og 14. tl., umsagnir um umsóknir um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í Urriðaholti og við Litlatún.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi , 7. tl., bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar.

Björg Fenger, ræddi 11. tl., tilkynningu félagsmálaráðuneytisins um úthlutun styrks til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu og 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar, 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ og 19. tl., ársreikning Strætó bs.

Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2105024F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 18/5 ´21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 16. tl., áskorun Samtaka grænkera á Íslandi til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum og 12. tl., bréf orlofsnefndar Kvenfélags Gullbringu- og Kjósarsýslu varðandi greiðslu vegna orlofs húsmæðra.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 11. tl., ályktun Húsfélagsins að Þorrasölum 1-3 varðandi lagningu Vorbrautar við Þorrasali.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., útboð á þjónusta iðnaðarmanna og lagði fram fyrirspurn til bæjarstjóra varðandi málið.

Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., útboð á þjónusta iðnaðarmanna og 12. tl., bréf orlofsnefndar Kvenfélags Gullbringu- og Kjósarsýslu varðandi greiðslu vegna orlofs húsmæðra.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 5. tl., úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun og 10. tl., erindi listamanna varðandi vinnustofuaðstöðu að Garðatorgi.

Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., ályktun Húsfélagsins að Þorrasölum og 6. tl., útboð á þjónusta iðnaðarmanna.

Fundargerðin sem er 23 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Fylgiskjöl

2.22 - 1911043 - Endurnýjun samstarfssamnings við Skógræktarfélag Reykjarvíkur.

"Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun samnings við Skógræktarfélag Reykjavíkur um rekstur Heiðmerkur. Samningurinn gildir til ársloka 2023 og er árlegt fjárframlag kr. 7.000.000."

Fylgiskjöl

2.4 - 2006130 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - viðauki nr. 1.

„Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Sambýli
Gerð hefur verið nokkur breyting á rekstri sambýla. Sigurhæð er ekki lengur rekið sem heimili fyrir fatlað fólk en heimilismenn þar fluttu á heimilin að Ægisgrund og Krókamýri. Vegna fjölgunar íbúa þarf að fjölga starfsmönnum á heimilum fyrir fatlað fólk.

Krókamýri fjölgun starfsmanna kr. 14.000.000 02563-
Ægisgrund fjölgun starfsmanna kr. 14.000.000 02561-
Búsetuúrræði og sólarhringsþjónusta (lækkun) kr. -13.400.000 02566-
Samtals aukin kostnaður kr. 14.600.000

Mýrin - íþróttamiðstöð
Vegna endurnýjunar á markaklukku í Mýrinni er lagt til að bæta við 10 m.kr. á framkvæmdaáætlun ársins.
Mýrin framkvæmdir kr. 10.000.000 32010-

Sjóvarnargarðar
Á fundi bæjaráðs 23.3. sl. var samþykkt erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað var staðfestingar á að Garðabær tæki þátt í sjóvörnum á Álftanesi skv. samþykktri samgönguáætlun. Áætlaður heildarkostnaður er 25,1 m.kr. þar af er hlutur Garðabæjar 3,1 m.kr. á fjárhagsáætlun er 1 m.kr.
Sjóvarnir kr. 2.100.000 07440-4520

Framlag til Sorpu bs.
Leggja þarf Sorpu bs. til aukið fjármagn á árinu 2021 sbr. samþykkt þar um á árinu 2020. Eigendur leggja til Sorpu bs. 1.000 millj.kr. á árunum 2020 og 2021. Hlutur Garðabæjar á árinu 2021 er 36,3 m.kr.
Stofnframlag til Sorpu kr. 36.300.000 08210-9911

Samtals útgjaldaauki kr. 63.000.000

Fjármögnun viðauka.

Fasteignaskattur - hækkun kr. -34.000.000 00060-0011
Lóðarleiga - hækkun kr. -5.000.000 00350-0310
Vatnsgjald - hækkun kr. -7.000.000 43110-0214
Holræsagjald - hækkun kr. -17.000.000 43410-0213
Samtals kr. -63.000.000

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105018F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/5 ´21.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., stuðning við knattspyrnuiðkun innflytjenda, 4. tl., Qigong - kínverska leikfimi fyrir almenning í Bæjargarði, 7. tl., forvarnarviku í Garðabæ 2021 og 10. tl., Stjörnuhlaupið 2021.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 10. tl., Stjörnuhlaupið 2021 og 5. tl., niðurstöður Rannsóknar og greiningar um líðan barna í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., niðurstöður Rannsóknar og greiningar um líðan barna í Garðabæ.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., niðurstöður Rannsóknar og greiningar um líðan barna í Garðabæ.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 5. tl., niðurstöður Rannsóknar og greiningar um líðan barna í Garðabæ.

Almar Guðmundsson ræddi 1. tl., samning um rekstrarstyrk til KFG og 10. tl., Stjörnuhlaupið 2021.

Björg Fenger, ræddi 5. tl., niðurstöður Rannsóknar og greiningar um líðan barna í Garðabæ.

Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., Stjörnuhlaupið 2021.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2105009F

04

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 12/5 ´21.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2101346

05

Fundargerð stjórnar SSH frá 3/5 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., skilavegi - yfirfærslu vega til sveitarfélaga.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., stjórnsýslu byggðasamlaganna og 12. tl., skipun starfshóps um heildarendurskoðun á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., skilavegi - yfirfærslu vega til sveitarfélaga.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., skilavegi - yfirfærslu vega til sveitarfélaga, 12. tl., skipun starfshóps um heildarendurskoðun á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þá ræddi Gunnar hugmynd um Áfangastofu höfuðborgarsvæðisins og samræmingu á þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2104103

06

Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2021-2022.