Fundargerð bæjarráðs frá 18/5 ´21.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (886). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 16. tl., áskorun Samtaka grænkera á Íslandi til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum og 12. tl., bréf orlofsnefndar Kvenfélags Gullbringu- og Kjósarsýslu varðandi greiðslu vegna orlofs húsmæðra.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 11. tl., ályktun Húsfélagsins að Þorrasölum 1-3 varðandi lagningu Vorbrautar við Þorrasali.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., útboð á þjónusta iðnaðarmanna og lagði fram fyrirspurn til bæjarstjóra varðandi málið.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., útboð á þjónusta iðnaðarmanna og 12. tl., bréf orlofsnefndar Kvenfélags Gullbringu- og Kjósarsýslu varðandi greiðslu vegna orlofs húsmæðra.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 5. tl., úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun og 10. tl., erindi listamanna varðandi vinnustofuaðstöðu að Garðatorgi.
Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., ályktun Húsfélagsins að Þorrasölum og 6. tl., útboð á þjónusta iðnaðarmanna.
Fundargerðin sem er 23 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.