Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 11/5 ´21.

Málsnúmer 2105011F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (886). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi, 7. tl., bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar, 12. tl., bréf foreldrafélags Urriðaholtsskóla varðandi leikskólaþjónustu í Urriðaholti, 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ og 17. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi höfuðborgarkort, dags. 07.05.21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 13. og 14. tl., umsagnir um umsóknir um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í Urriðaholti og við Litlatún.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi , 7. tl., bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar.

Björg Fenger, ræddi 11. tl., tilkynningu félagsmálaráðuneytisins um úthlutun styrks til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu og 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar, 16. tl., erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ og 19. tl., ársreikning Strætó bs.

Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.