Beint í efni

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020

Málsnúmer 2009056

Ferill máls

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

01

1.. fundur

Lagt fram til kynningar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

29. fundur

Rætt um niðurstöður þjónustukönnunar sem Gallup gerði í lok árs 2020. Farið var yfir niðurstöður könnunarinnar sem snúa að menningarmálum.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

3. fundur

Íbúakönnun Gallup 2020 lögð fram til kynningar.

Mál nr. 2009056 lagt fram til kynningar, þjónustukönnun Gallup 2020. Í meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildina litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Niðurstöður þeirra málaflokka er heyra undir fjölskylduráð (ánægja þjónustu við fatlað fólk, eldri borgara og barnafjölskyldur) standa í stað á milli ára en eru yfir landsmeðaltali.

Fjölskylduráð hvetur fjölskyldusvið til að rýna frekar í niðurstöðu þjónustukönnunarinnar og nýta í umbótarstarf á sviðinu.

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

21. fundur

Tekin var til umfjöllunar íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup sem lögð var fyrir 6. til 20. desember 2020. Leikskólanefnd lýsir ánægju með niðurstöður hennar og þakkar starfsfólki leikskóla vel unnin störf á krefjandi tímum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Íbúakönnun lögð fram.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

06

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2009056, árleg íbúakönnun Gallup er lögð fram til kynningar. 422 einstaklingar svöruðu könnuninni. Það sem meðal annars snýr að þjónustu við fatlað fólk er spurning um hversu ánægt eða óánægt fólk er með þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu. Þar skorar Garðabær 3,5 bæði árið 2019 og 2020, það er því ekki um breytingu að ræða milli ára. Garðabær er yfir landsmeðaltali sem er 3,4. Umræða skapaðist um vöntun á húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk og stefnu í þeim málum. Kröfurnar eru að aukast og umsóknir um sérstök húsnæðisúrræði að berast fyrr en áður, eða strax við 18 ára aldur. Það er ekki biðlisti eftir annari þjónustu í málaflokknum en húsnæðisúrræðum hjá Garðabæ.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

07

28. fundur

Lagt fram og rætt út frá íþróttaaðstöðu og aðstöðu til heilsuræktar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

29. fundur

Formaður umhverfisnefndar fer yfir könnunina og helstu niðurstöður hennar. Könnunin hefur almennt komið vel út í Garðabæ og hafa niðurstöður hennar og vísbendingar verið nýttar til að bregðast við og bæta þjónustuna. Umhverfisnefnd leggur áherslu á nákvæma rýningu niðurstaðna og að skoða tækifæri til úrbóta.

Öldungaráð

09

1. fundur

Lagt fram til kynningar. Fyrirtækið Gallup hefur sl. ár unnið þjónustukönnun á meðal íbúa í 20 stærstu sveitarfélögum landsins og spurt þar um viðhorf til þjónustu sveitarfélaga. Árið 2020 eru 422 sem svara í Garðabæ.
Það sem m.a. snýr að eldri borgurum er spurning um hversu ánægður/óánægður ertu með þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu. Þar skorum við 3, 8 bæði 2019 og 2020 ( til samanburðar þá skorum við 4, 1 mtt. aðstöðu til íþróttaiðkunar. Í samanburði við önnur sveitarfélög þá erum við í 3,8 meðan þau eru í 3,5.

Tekið fyrir mál nr. 2009056, íbúakönnun Gallup 2020 í Garðabæ lögð fram til kynningar og umræðu. Formaður öldungaráðs fer yfir könnunina og helstu niðurstöður hennar. Könnunin hefur almennt komið vel út í Garðabæ og hafa niðurstöður hennar og vísbendingar verið nýttar til að bregðast við og bæta þjónustuna, til að mynda með notkun rýnihópa. Öldungaráð leggur áherslu á nákvæma rýningu niðurstaðna og að skoða tækifæri til úrbóta.

Bæjarráð Garðabæjar

10

1. (1959). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2020. Í öllum meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildinna litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.

Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir sátu bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.

Fylgiskjöl