21. fundur
21. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
17.02.2021
Kl. 08:30 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
- Snævar Sigurðsson - varamaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Kristín Valgarðsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Benedikt D. Valdez Stefánsson - fulltrúi foreldra
- Ína Sigrún Þórðardóttir - fulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
01
Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum
Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi lögð fram til umfjöllunar. Í leikskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt fæði þar sem grænmeti og ávextir eru á boðstólum fyrir börn á hverjum degi.
02
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020
Tekin var til umfjöllunar íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup sem lögð var fyrir 6. til 20. desember 2020. Leikskólanefnd lýsir ánægju með niðurstöður hennar og þakkar starfsfólki leikskóla vel unnin störf á krefjandi tímum.
03
Öryggismál í leikskólum
Leikskólanefnd var upplýst um framkvæmd úttekta á leikskólalóðum og hvernig staðið verður að umbótum í kjölfar þeirra. Úttektir á vegum BSI munu fara fram í maí nk.
04
Áhersluþættir þróunarsjóðs leikskóla 2022
Áhersluþættir leikskóla settir fram. Að þessu sinni munu þeir beinast að vellíðan og vináttu, upplýsingatækni og þátttökumiðuðu námi.
05
Stytting vinnuvikunnar í leikskólum
Kynnt var framkvæmd vinnustyttingar á leikskólum Garðabæjar. Hver og einn leikskóli framkvæmdir vinnustyttingu í samræmi við niðurstöður kosninga innan viðkomandi skipulagsheildar.
06
Skóladagatal leik - og grunskóla 2021 til 2022
Skóladagatal lagt fram og samþykkt.