Áskorun Samtaka grænkera á Íslandi til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
18. (1976). fundur
Áskorun samtakanna um sama efni var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sem haldinn var 12. janúar sl. og gerði þá sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs grein fyrir þróun á framboði matar í skólunum og sagði frá að kallað er eftir framboði á fjölbreyttu fæði. Bæjarráð vísaði þá áskoruninni til umfjöllunar skólanefndar og leikskólanefndar. Á fundum nefndanna var bókað að í grunnskólum og leikskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt fæði þar sem grænmeti og ávextir eru á boðstólum fyrir börn á hverjum degi.
Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsvið falið að svara bréfinu og gera grein fyrir viðbrögðum bæjarins og möguleikum nemenda í skólum bæjarins á grænkerafæði.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
28. fundur
Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi lögð fram til umfjöllunar. Í grunnskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt fæði þar sem grænmeti og ávextir eru á boðstólum fyrir börn á hverjum degi.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
21. fundur
Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi lögð fram til umfjöllunar. Í leikskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt fæði þar sem grænmeti og ávextir eru á boðstólum fyrir börn á hverjum degi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
1. (1959). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir þróun á framboði matar í skólunum og sagði frá að kallað er eftir framboði á fjölbreyttu fæði.
Bæjarráð vísar áskoruninni til umfjöllunar skólanefndar, leikskólanefndar og ungmennaráðs.