28. fundur
28. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.03.2021
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
- Silja Kristjánsdóttir - fulltrúi kennara
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2102516
01
Þróunarsjóður grunnskóla - vefsíða
Upplýsingastjóri Garðabæjar kynnti nýja vefsíðu Þróunarsjóðs leik- og grunnskóla Garðabæjar. Nefndarmenn lýsa ánægju með vefsíðuna.
Málsnúmer 2012042
02
Skólastefna Garðabæjar 2020
Farið var yfir stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun stefnunnar er skv. áætlun.
Málsnúmer 2102506
03
Kynningar og innritun í grunnskóla 2021
Farið yfir innritunarferli og fyrirkomulag kynninga sem standa yfir 8.- 12. mars 2021.
Málsnúmer 2102145
04
Skóladagatal leik - og grunnskóla 2021 til 2022
Lagt fram til kynningar og samþykktar. Skólanefnd bendir á að faglegar forsendur liggja til grundvallar við gerð skóladagatals og reynt er að tryggja að skipulagsdagar grunnskóla falli ekki ítrekað á sömu vikudaga.
Málsnúmer 2102515
05
Skólamatur í grunnskólum
Farið yfir stöðu Skólamatar í grunnskólum Garðabæjar.
Málsnúmer 2010048
06
Skólahjúkrunarfræðingar í grunnskólum Garðabæjar
Farið var yfir stöðu skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum Garðabæjar. Nefndin óskar eftir að fulltrúi Heilsugæslu Garðabæjar komi á fund nefndarinnar að hausti við upphaf skólaársins 2021-2022.
Málsnúmer 2101175
07
Ráðning skólastjóra
Farið var yfir umsóknarferil við ráðningu nýs skólastjóra í Sjálandsskóla.
Málsnúmer 2012379
08
Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum
Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi lögð fram til umfjöllunar. Í grunnskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt fæði þar sem grænmeti og ávextir eru á boðstólum fyrir börn á hverjum degi.
Málsnúmer 2102035
09
Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.
Tillaga lögð fram til kynningar og umfjöllunar.