Beint í efni

Skólamáltíðir í skólum Garðabæjar

Málsnúmer 2102515

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

1 (22-26). fundur

Fræðslustjóri Garðabæjar, sagði frá niðurstöðum á útboði vegna Skólamáltíða í grunn- og leikskólum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (2030). fundur

Eftirfarandi tilboð eru lögð fram að nýju í skólamáltíðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2022 -2026


Magn Umhverfisvaktin Matartíminn Skólamatur
Skóli Verð kr. Verð kr. Verð kr.
Flataskóli 310 284.890 264.430 265.050
Garðaskóli 490 377.790 418.950
Sjálandsskóli 415 381.385 333.660 354.825
Hofsstaðaskóli 300 275.700 270.300 256.500
Álftanesskóli 200 193.000 171.000
Urriðaholtsskóli 150 144.750 138.000
Leikskóli Urriðah.sk. 120 135.360 151.440
Samtals Urriðah. sk 280.110 289.440
Mánahvoll - 60 60.780 74.520
Sunnuhvoll - 27 58.050 52.434
Bæjarból - 79 89.507 98.118

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór nánar yfir tilboðin gerði m.a. grein fyrir niðurstöðum skoðunar næringarfræðings á matseðlum. Niðurstaðan er að Matartíminn (Sölufélag garðyrkjumanna) og Skólamatur uppfylli þau skilyrði sem sett voru fram í útboðs- og verklýsingu verkkaupa.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Matartíma í máltíðir fyrir eftirfarandi skóla.

Flataskóla, Garðaskóla, Sjálandsskóla, Urriðaholtsskóla, Leikskólann Mánahvol og Leikskólann Bæjarból.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Skólamats í máltíðir fyrir eftirfarandi skóla.

Hofsstaðaskóla, Álftanesskóla og Leikskólann Sunnuhvol.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fræðslu og menningarsviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (905). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

21. (2028). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð í skólamáltíðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2022-2025.

Magn Umhverfisvaktin Matartíminn Skólamatur
Skóli Verð kr. Verð kr. Verð kr.
Flataskóli 310 284.890 264.430 265.050
Garðaskóli 490 377.790 418.950
Sjálandsskóli 415 381.385 333.660 354.825
Hofsstaðaskóli 300 275.700 270.300 256.500
Álftanesskóli 200 193.000 171.000
Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli 150 144.750 138.000
Leikskóli Urriðah 120 135.360 151.440
Samtals Urriðah. - 280.110 289.440
Mánahvoll - 60 60.780 74.520
Sunnuhvoll - 27 58.050 52.434
Bæjarból - 79 89.507 98.118

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs upplýsti að næringarfræðingur er að yfirfara matseðla og munu niðurstöður liggja fyrir innan 14. daga. Stefnt er því að taka tilboðin fyrir að nýju í bæjarráði 28. júní nk.

Bæjarráð Garðabæjar

05

13. (2020). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir helstu atriðum útboðslýsingarinnar en útboðið nær til allra grunnskólanna og þriggja leikskóla.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur bæjarstjóra að auglýsa útboð skólamáltíða í skólum Garðabæjar

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

06

40. fundur

Drög útboðs á skólamáltíðum í leik- og grunnskólum Garðabæjar lagt fram til kynningar.

Bæjarráð Garðabæjar

07

3. (2010). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar um að farið verði í útboð á skólamat fyrir skólana í bænum og felur bæjarstjóra að vinna að útboðslýsingu sem lögð verður fram til samþykktar í bæjarráði.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

08

37. fundur

Skólanefnd samþykkir að farið verði í útboð á skólamat sem fyrst og leggur áherslu á að hægt verði að bjóða bæði í mötuneyti allra skólanna samhliða og einstaka skóla. Áhersla verði lögð á fjölbreytni og hollustu.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

09

30. fundur

Farið yfir stöðu Skólamatar í grunnskólum. Fræðslustjóri leggur fram tillögu um að gengið verði til samninga við Skólamat um framlengingu á samningi í öllum grunnskólum Garðabæjar um eitt ár sbr. heimild í 4. grein samnings Garðabæjar við Skólamat. Skólanefnd samþykkir tillögu fræðslustjóra.


Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

10

28. fundur

Farið yfir stöðu Skólamatar í grunnskólum Garðabæjar.