1 (22-26). fundur
1 (22-26). fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
24.08.2022
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - varaformaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
- Þorgerður Elín Brynjólfsdóttir - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Kosning fastanefnda til fjögurra ára.
Ný skólanefnd boðin velkomin til fyrsta fundar nýs kjörtímabils. Samþykkt var að Jóhann Steinar Ingimundarson verði varaformaður nefndarinnar. Skólanefnd voru kynntar reglur Garðabæjar um starfsemi og starfshætti nefnda. Formaður ræddi mikilvægi samvinnu og fagmennsku í nefndarstarfinu og að hlutverk nefndarinnar væri að hafa eftirlit með og styðja við öflugt skólastarf í Garðabæ.
02
Skólabyrjun 2022-2023. Fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar.
Rædd var skólabyrjun skólaársins 2022-2023. Á ágúst hófu 2570 nemendur nám við grunnskólana í Garðabæ. 2338 nemendur hófu nám við bæjarskólana og 232 nemandi í sjálfstætt starfandi skólum. Þar af er 231 barn skráð í 1.bekk. Skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi traustrar stoðþjónustu.
03
Ársskýrslur grunnskóla 2021-2022
Lagðar voru fram skólaskýrslur grunnskólanna skólaársins 2021-2022. Skólanefnd færir þakkir til skólafólks fyrir fagleg og vel unnin störf við gerð skýrslnanna, þær bera vott um metnaðarfullt og gott skólastarf auk þess sem þær eru mikilvæg heimild og tæki til stefnumótunar í skólastarfinu.
04
Menntastefna Garðabæjar 2022-2030
Farið yfir Menntastefnu Garðabæjar 2022-2030 og innleiðing stefnunnar rædd.
05
Skólamáltíðir í skólum Garðabæjar
Fræðslustjóri Garðabæjar, sagði frá niðurstöðum á útboði vegna Skólamáltíða í grunn- og leikskólum.
06
Endurgerð eineltisstefnu
Kynnt var áætlun vinna um endurgerð eineltisstefnu sem mun hefjast á haustmánuðum.
07
Drög að reglugerð um tengiliði og málstjóra í samráðsgátt stjórnvalda
Lagt fram til kynningar.
08
Ákall til sveitarstjórna um allt land - MENNTUN TIL SJÁLFBÆRNI.
Lagt fram til kynningar.