Kosning fastanefnda til fjögurra ára.
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
1 (22-26). fundur
Ný skólanefnd boðin velkomin til fyrsta fundar nýs kjörtímabils. Samþykkt var að Jóhann Steinar Ingimundarson verði varaformaður nefndarinnar. Skólanefnd voru kynntar reglur Garðabæjar um starfsemi og starfshætti nefnda. Formaður ræddi mikilvægi samvinnu og fagmennsku í nefndarstarfinu og að hlutverk nefndarinnar væri að hafa eftirlit með og styðja við öflugt skólastarf í Garðabæ.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (906). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Söru Dögg Svanhildardóttir, sem varamann í fjölskylduráð í stað Ástu Sigríðar Guðjónsdóttur sem beðist hefur lausnar frá störfum varamanns.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (2030). fundur
Lögð fram samantekt um nokkur atriði er varða starfshætti nefnda. Samantektin hefur verið send öllum nefndarfulltrúum ásamt tilkynningu um kosningu fulltrúa í fastanefndir bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
22. (2029). fundur
Eftirfarandi tillögu var vísað til bæjarráðs á fundi bæjarstjórnar 2. júní 2022.
„Bæjarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja til við bæjarstjórn Garðabæjar að farið verði í endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar um áheyrnarfulltrúa.
Lagt er til að öll framboð sem hafi kjörinn bæjarfulltrúa en hafa ekki fulltrúa í sérhverri fastri nefnd Garðabæjar eigi rétt á að skipa þar áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt. Farið verði eftir reglum um áheyrnarfulltrúa í bæjarráð og að áheyrnarfulltrúar fái greitt fyrir nefndarsetu, líkt og aðrir fastir nefndarfulltrúar.“
Greinargerð.
Í 50. gr sveitarstjórnarlaga segir:. ,,Hafi sveitarstjórn verið kjörin bundinni hlutfallskosningu og einhver framboðsaðili sem fulltrúa á í sveitarstjórn nær ekki kjöri í byggðarráð er fulltrúum þessa aðila heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum nefndarinnar. Hið sama á við um fastanefndir sem falið hefur verið fullnaðarákvörðunarvald í málum. Sveitarstjórn er enn fremur heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að sama regla gildi um aðrar fastanefndir.?
Í samþykktum um stjórn Garðabæjar er ekki gert ráð fyrir fulltrúum allra flokka eða framboða sem hljóta kjör til bæjarstjórnar í nefndum þ.e.a.s. ekki er gert ráð fyrir áheyrnafulltrúum þar sem flokkur með kjörinn bæjarfulltrúa á ekki fulltrúa í nefnd.
Framangreind tillaga er lögð fram til þess að tryggja lýðræðislega aðkomu allra flokka eða framboða að nefndum eins vel og mögulegt er líkt og fram kemur í 50. gr sveitarstjórnarlaga.
Það er ekki sjálfgefið að samstarf líkt og orðið hefur á milli þeirra flokka sem skipta þurfa með sér einum nefndarmanni inn í allar nefndir takist og því mikilvægt að tryggja sem best má aðkomu allra að þeirri umræðu sem fram fer innan nefnda.
Því leggjum við í Viðreisn ásamt bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins fram framangreinda tillögu.
Bæjarráð vísar tillögunni á þessu stigi til frekari vinnslu hjá bæjarstjóra.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
9. (905). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Kristrúnu Jóhannsdóttur, sem varamann í yfirkjörstjórn Garðabæjar og Ástu Leonhards, sem varaáheyrnarfulltrúa.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Jónu Sæmundsdóttur, sem varamann í heilbrigðisnefnd Garðabæjar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
8. (904). fundur
a) Fjölskylduráð 5 5
b) Íþrótta- og tómstundaráð 5 5
c) Yfirkjörstjórn 3 3 2 áheyrnarfulltrúar
d) Leikskólanefnd 5 5
e) Menningar- og safnanefnd 5 5
f) Skipulagsnefnd 5 5
g) Skólanefnd grunnskóla 5 5
h) Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar 5 5
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands 3 3
j) Umhverfisnefnd 5 5
a) Fjölskylduráð
Aðalmenn:
Gunnar Valur Gíslason, formaður, Sturla Þorsteinsson, María Guðjónsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Brynja Dan Gunnarsdóttir.
Varamenn:
Eymundur Sveinn Einarsson, Berglind Víðisdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Theódóra Fanndal, Ásta S. Guðjónsdóttir.
b) Íþrótta- og tómstundaráð
Aðalmenn:
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður, Harpa Rós Gísladóttir, Laufey Jóhannsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Einar Örn Ævarsson.
Varamenn:
Lilja Lind Pálsdóttir, Daníel Þorri Hauksson, Stefanía Magnúsdóttir, Sigurður Þórðarson, Árni Björn Kristjánsson.
c) Yfirkjörstjórn
Aðalmenn: Soffía Eydís Björgvinsdóttir, Jóhann Steinar Ingimundarson, Gunnar Hólmsteinn Ársælsson.
Varamenn: Finnur Magnússon, Hrafnhildur Helgadóttir.
Áheyrnarfulltrúar: Erlendur Kristjánsson.
d) Leikskólanefnd
Aðalmenn:
Margrét Bjarnadóttir, formaður, Haukur Þór Hauksson, Inga Rós Reynisdóttir, Finnur Jónsson, Rakel Vilhjálmsdóttir.
Varamenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, Þorri Geir Rúnarsson, Eydís Sigurðardóttir, Maru Aleman, Benedikt D. Valdez Stefánsson.
e) Menningar- og safnanefnd
Aðalmenn:
Guðfinnur Sigurvinsson, formaður, Guðrún Arna Sturludóttir, Torfi Geir Símonarson, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Guðlaugur Kristmundsson.
Varamenn:
Steinunn Vala Sigfúsdóttir, Laufey Arnalds Johansen, Jóhann Jónsson, Björn Gabríel Björnsson, Elín Jóhannsdóttir.
f) Skipulagsnefnd
Aðalmenn:
Björg Fenger, formaður, Lúðvík Örn Steinarsson, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Baldur Ólafur Svavarsson, Hlynur Bæringsson.
Varamenn:
Sigþrúður Ármann, Eiríkur Svavarsson, Sigríður Indriðadóttir, Ingvar Arnarson, Ásta Leonards.
g) Skólanefnd grunnskóla
Aðalmenn: Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður, Jóhann Steinar Ingimundarson, Bryndís Ásgeirsdóttir, Hannes Ingi Geirsson, Rakel Steinberg Sölvadóttir
Varamenn:
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir, Magnús Árni Sigfússon, Eva Björg Torfadóttir, Hulda Gísladóttir, Hlynur Bæringsson.
h) Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
Aðalmenn:
Lilja Lind Pálsdóttir, formaður, Einar Örn Magnússon, Sigrún Antonsdóttir, Ingvar Arnarson, Tinna Borg.
Varamenn:
Guðjón Máni Blöndal, Védís Hervör Árnadóttir, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Sólveig Guðrún Geirsdóttir, Rakel Norðfjörð.
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður Vera Rut Ragnarsdóttir, Guðlaugur Kristmundsson.
Varamenn:
Margrét Gunnlaugsdóttir, Magnús Kristinn Einarsson, Thomas Möller.
j) Umhverfisnefnd
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Jóna Sæmundsdóttir, Eiríkur Þorbjörnsson, Gréta Ósk Óskarsdóttir, Eyþór Eðvarðsson.
Varamenn:
Viktoría Jensdóttir, Sófus Gústavsson, Hrönn K. Sch Hallgrímsdóttir, Guðrún Elín Herbertsdóttir, Einar Þór Einarsson.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Brynju Dan Gunnarsdóttur.
„Bæjarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja til við bæjarstjórn Garðabæjar að farið verði í endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar um áheyrnarfulltrúa.
Lagt er til að öll framboð sem hafi kjörin bæjarfulltrúa en hafa ekki fulltrúa í sérhverri fastri nefnd Garðabæjar eigi rétt á að skipa þar áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt. Farið verði eftir reglum um áheyrnarfulltrúa í bæjarráð og að áheyrnarfulltrúar fái greitt fyrir nefndarsetu, líkt og aðrir fastir nefndarfulltrúar.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Viðreisnar
Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknarflokks
Greinargerð.
Í 50. gr sveitarstjórnarlaga segir:. ,,Hafi sveitarstjórn verið kjörin bundinni hlutfallskosningu og einhver framboðsaðili sem fulltrúa á í sveitarstjórn nær ekki kjöri í byggðarráð er fulltrúum þessa aðila heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum nefndarinnar. Hið sama á við um fastanefndir sem falið hefur verið fullnaðarákvörðunarvald í málum. Sveitarstjórn er enn fremur heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að sama regla gildi um aðrar fastanefndir.?
Í samþykktum um stjórn Garðabæjar er ekki gert ráð fyrir fulltrúum allra flokka eða framboða sem hljóta kjör til bæjarstjórnar í nefndum þ.e.a.s. ekki er gert ráð fyrir áheyrnafulltrúum þar sem flokkur með kjörinn bæjarfulltrúa á ekki fulltrúa í nefnd.
Framangreind tillaga er lögð fram til þess að tryggja lýðræðislega aðkomu allra flokka eða framboða að nefndum eins vel og mögulegt er líkt og fram kemur í 50. gr sveitarstjórnarlaga.
Það er ekki sjálfgefið að samstarf líkt og orðið hefur á milli þeirra flokka sem skipta þurfa með sér einum nefndarmanni inn í allar nefndir takist og því mikilvægt að tryggja sem best má aðkomu allra að þeirri umræðu sem fram fer innan nefnda.
Því leggjum við í Viðreisn ásamt bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins fram framangreinda tillögu.
Almar Guðmundsson. tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn styður tillögu Framsóknar og Viðreisnar, enda er aukin aðkoma og aðgengi allra flokka að nefndarstarfi mikilvægt lýðræðismál og mun stuðla að upplýstari umræðu og því að fulltrúar allra kjósenda í Garðabæ geti uppfyllt skyldur sínar.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.