8. (904). fundur
8. (904). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
02.06.2022
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Gunnar Valur Gíslason, sem er aldursforseti þeirra sem eiga að baki lengsta setu í bæjarstjórn setti fund. Gunnar Valur bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýkjörinnar bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir kjörtímabilið 2022 - 2026 og óskaði þeim til hamingju með kjör þeirra til bæjarstjórnar. Gunnar Valur færði fyrrum bæjarfulltrúum þakkir fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins og þakkaði þeim samstarfið.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. maí 2022 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2201001
01
Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 14/5 og 18/5´22
Lagðar fram.
Málsnúmer 2205412
02
Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.
Tillaga kom fram um Sigríði Huldu Jónsdóttir, sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók við stjórn fundarins og þakkaði bæjarfulltrúum traustið, Sigríður Hulda bauð bæjarfulltrúa velkomna til starfa og hvatti þá til góðra verka og samstöðu um framgang mikilvægra mála fyrir samfélagið í Garðabæ.
Tillaga kom fram um Guðfinn Sigurvinsson, sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.
Tillaga kom fram um Ingvar Arnarson, sem 2. varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.
Málsnúmer 2205413
03
Ráðning bæjarstjóra.
Björg Fenger, lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráða Almar Guðmundsson í starf bæjarstjóra Garðabæjar kjörtímabilið 2022 - 2026.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð og til staðfestingar í bæjarstjórn.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og gerði grein fyrir ástæðu þess að hún situr hjá við afgreiðslu á tillögu um ráðningu bæjarstjóra.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn situr hjá við þessa atkvæðagreiðslu þar sem við teljum mikilvægt að bæjarstjóri Garðabæjar sé fyrst og fremst ráðinn á faglegum grundvelli. Okkur finnst eðlilegt að bæjarstjóri sé framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og fylgi stefnu bæjarstjórnar en sitji ekki báðum megin borðsins.
Björg Fenger, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í maí sl. kynntu frambjóðendur Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ að oddvitinn, Almar Guðmundsson, væri bæjarstjóraefni flokksins. Niðurstaða kosninganna liggur fyrir og ljóst að bæjarbúar styðja þá stefnu flokksins, enda býr Almar yfir góðri menntun og víðtækri reynslu af málefnum bæjarins og stjórnunarstörfum sem mun nýtast vel í starfi bæjarstjóra.“
Tillaga um ráðningu bæjarstjóra samþykkt með sjö atkvæðum. (AG,BF,SHJ,MB,HBE,GVG,GS,) Fjórir bæjarfulltrúar sitja hjá. (ÞÞ,IA,SDS,BDG)
Málsnúmer 2205415
04
Kosning nefnda til eins árs.
a) Bæjarráð fimm aðalmenn og tilnefning eins áheyrnarfulltrúa
Bæjarráð fimm aðalmenn
Aðalmenn: Björg Fenger, formaður, Gunnar Valur Gíslason, varaformaður, Margrét Bjarnadóttir, Ingvar Arnarson og Sara Dögg Svanhildardóttir.
Áheyrnarfulltrúi: Brynja Dan Gunnarsdóttir
Varamenn taka sæti í bæjarráði í þeirri röð sem þeir skipa á sama lista og aðalfulltrúar.
Málsnúmer 2205416
05
Kosning nefnda til tveggja ára.
a) Stjórn Sorpu bs. - Aðalmaður og einn til vara
b) Stjórn Strætó bs. - Aðalmaður og einn til vara
a. Stjórn Sorpu bs.
Aðalmaður:
Guðfinnur Sigurvinsson.
Varamaður:
Sigríður Hulda Jónsdóttir.
b. Stjórn Strætó bs.
Aðalmaður:
Hrannar Bragi Eyjólfsson.
Varamaður:
Gunnar Valur Gíslason.
Málsnúmer 2205417
06
Kosning fastanefnda til fjögurra ára.
a) Fjölskylduráð 5 5
b) Íþrótta- og tómstundaráð 5 5
c) Yfirkjörstjórn 3 3 2 áheyrnarfulltrúar
d) Leikskólanefnd 5 5
e) Menningar- og safnanefnd 5 5
f) Skipulagsnefnd 5 5
g) Skólanefnd grunnskóla 5 5
h) Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar 5 5
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands 3 3
j) Umhverfisnefnd 5 5
a) Fjölskylduráð
Aðalmenn:
Gunnar Valur Gíslason, formaður, Sturla Þorsteinsson, María Guðjónsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Brynja Dan Gunnarsdóttir.
Varamenn:
Eymundur Sveinn Einarsson, Berglind Víðisdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Theódóra Fanndal, Ásta S. Guðjónsdóttir.
b) Íþrótta- og tómstundaráð
Aðalmenn:
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður, Harpa Rós Gísladóttir, Laufey Jóhannsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Einar Örn Ævarsson.
Varamenn:
Lilja Lind Pálsdóttir, Daníel Þorri Hauksson, Stefanía Magnúsdóttir, Sigurður Þórðarson, Árni Björn Kristjánsson.
c) Yfirkjörstjórn
Aðalmenn: Soffía Eydís Björgvinsdóttir, Jóhann Steinar Ingimundarson, Gunnar Hólmsteinn Ársælsson.
Varamenn: Finnur Magnússon, Hrafnhildur Helgadóttir.
Áheyrnarfulltrúar: Erlendur Kristjánsson.
d) Leikskólanefnd
Aðalmenn:
Margrét Bjarnadóttir, formaður, Haukur Þór Hauksson, Inga Rós Reynisdóttir, Finnur Jónsson, Rakel Vilhjálmsdóttir.
Varamenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, Þorri Geir Rúnarsson, Eydís Sigurðardóttir, Maru Aleman, Benedikt D. Valdez Stefánsson.
e) Menningar- og safnanefnd
Aðalmenn:
Guðfinnur Sigurvinsson, formaður, Guðrún Arna Sturludóttir, Torfi Geir Símonarson, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Guðlaugur Kristmundsson.
Varamenn:
Steinunn Vala Sigfúsdóttir, Laufey Arnalds Johansen, Jóhann Jónsson, Björn Gabríel Björnsson, Elín Jóhannsdóttir.
f) Skipulagsnefnd
Aðalmenn:
Björg Fenger, formaður, Lúðvík Örn Steinarsson, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Baldur Ólafur Svavarsson, Hlynur Bæringsson.
Varamenn:
Sigþrúður Ármann, Eiríkur Svavarsson, Sigríður Indriðadóttir, Ingvar Arnarson, Ásta Leonards.
g) Skólanefnd grunnskóla
Aðalmenn: Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður, Jóhann Steinar Ingimundarson, Bryndís Ásgeirsdóttir, Hannes Ingi Geirsson, Rakel Steinberg Sölvadóttir
Varamenn:
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir, Magnús Árni Sigfússon, Eva Björg Torfadóttir, Hulda Gísladóttir, Hlynur Bæringsson.
h) Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
Aðalmenn:
Lilja Lind Pálsdóttir, formaður, Einar Örn Magnússon, Sigrún Antonsdóttir, Ingvar Arnarson, Tinna Borg.
Varamenn:
Guðjón Máni Blöndal, Védís Hervör Árnadóttir, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Sólveig Guðrún Geirsdóttir, Rakel Norðfjörð.
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður Vera Rut Ragnarsdóttir, Guðlaugur Kristmundsson.
Varamenn:
Margrét Gunnlaugsdóttir, Magnús Kristinn Einarsson, Thomas Möller.
j) Umhverfisnefnd
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Jóna Sæmundsdóttir, Eiríkur Þorbjörnsson, Gréta Ósk Óskarsdóttir, Eyþór Eðvarðsson.
Varamenn:
Viktoría Jensdóttir, Sófus Gústavsson, Hrönn K. Sch Hallgrímsdóttir, Guðrún Elín Herbertsdóttir, Einar Þór Einarsson.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Brynju Dan Gunnarsdóttur.
„Bæjarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja til við bæjarstjórn Garðabæjar að farið verði í endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar um áheyrnarfulltrúa.
Lagt er til að öll framboð sem hafi kjörin bæjarfulltrúa en hafa ekki fulltrúa í sérhverri fastri nefnd Garðabæjar eigi rétt á að skipa þar áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt. Farið verði eftir reglum um áheyrnarfulltrúa í bæjarráð og að áheyrnarfulltrúar fái greitt fyrir nefndarsetu, líkt og aðrir fastir nefndarfulltrúar.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Viðreisnar
Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknarflokks
Greinargerð.
Í 50. gr sveitarstjórnarlaga segir:. ,,Hafi sveitarstjórn verið kjörin bundinni hlutfallskosningu og einhver framboðsaðili sem fulltrúa á í sveitarstjórn nær ekki kjöri í byggðarráð er fulltrúum þessa aðila heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum nefndarinnar. Hið sama á við um fastanefndir sem falið hefur verið fullnaðarákvörðunarvald í málum. Sveitarstjórn er enn fremur heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að sama regla gildi um aðrar fastanefndir.?
Í samþykktum um stjórn Garðabæjar er ekki gert ráð fyrir fulltrúum allra flokka eða framboða sem hljóta kjör til bæjarstjórnar í nefndum þ.e.a.s. ekki er gert ráð fyrir áheyrnafulltrúum þar sem flokkur með kjörinn bæjarfulltrúa á ekki fulltrúa í nefnd.
Framangreind tillaga er lögð fram til þess að tryggja lýðræðislega aðkomu allra flokka eða framboða að nefndum eins vel og mögulegt er líkt og fram kemur í 50. gr sveitarstjórnarlaga.
Það er ekki sjálfgefið að samstarf líkt og orðið hefur á milli þeirra flokka sem skipta þurfa með sér einum nefndarmanni inn í allar nefndir takist og því mikilvægt að tryggja sem best má aðkomu allra að þeirri umræðu sem fram fer innan nefnda.
Því leggjum við í Viðreisn ásamt bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins fram framangreinda tillögu.
Almar Guðmundsson. tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn styður tillögu Framsóknar og Viðreisnar, enda er aukin aðkoma og aðgengi allra flokka að nefndarstarfi mikilvægt lýðræðismál og mun stuðla að upplýstari umræðu og því að fulltrúar allra kjósenda í Garðabæ geti uppfyllt skyldur sínar.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.
Málsnúmer 2205418
07
Kosning í samstarfsnefndir.
a) Almannavarnanefnd 1 1
b) Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 1 1
c) Heilbrigðisnefnd 1 1
d) Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 2 2
e) Stjórn Hjálparsjóðs Garðasóknar 1 1
f) Stjórn Reykjanesfólkvangs 1 1
g) Stjórn SSH bæjarstjóri 1
h) Stjórn SHS bæjarstjóri 1
i) Öldungaráð 3
j) Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks 3
k) Stefnuráð byggðasamlaganna 3
l) Stefnuráð áfangastaðarins hfbsv. 2 2
a) Almannavarnanefnd
Aðalmenn:
Almar Guðmundsson, Björg Fenger.
Varamenn:
Sigríður Hulda Jónsdóttir og Margrét Bjarnadóttir.
b) Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Aðalmenn:
Bjarni Th. Bjarnason.
Varamenn:
Björg Fenger.
c) Heilbrigðisnefnd
Aðalmaður:
Ingibjörg Hauksdóttir.
Varamaður:
Jón Bjarni Þorsteinsson.
d) Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
Aðalmenn:
Björg Fenger, Ingvar Arnarson.
Varamenn:
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Baldur Ólafur Svavarsson.
e) Stjórn Styrktarsjóðs Garðasóknar
Aðalmaður:
Einar Farestveit.
Varamaður:
Hrannar Bragi Eyjólfsson.
f) Stjórn Reykjanesfólkvangs
Aðalmaður:
Stella Stefánsdóttir.
Varamaður:
Jóna Sæmundsdóttir.
g) Stjórn SSH
Aðalmaður:
Almar Guðmundsson
Varamaður:
Björg Fenger.
h) Stjórn SHS
Aðalmaður:
Almar Guðmundsson.
Varamaður
Björg Fenger.
i) Öldungaráð
Harpa Rós Gísladóttir, Jörundur Jökulsson, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir.
j) Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Kristín Einarsdóttir, Sveinbjörn Halldórsson, Hjördís Guðmundsdóttir.
k) Stefnuráð byggðasamlaganna
Almar Guðmundsson, Björg Fenger, Sara Dögg Svanhildardóttir.
l) Stefnuráð áfangastaðarins höfuðborgarsvæðisins
Guðfinnur Sigurvinsson, Einar Þór Einarsson.
Málsnúmer 2205419
08
Kosning fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aðalmenn:
Björg Fenger, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Ingvar Arnarson og Sara Dögg Svanhildardóttir.
Varamenn:
Hrannar Bragi Eyjólfsson, Gunnar Valur Gíslason, Guðfinnur Sigurvinsson, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Brynja Dan Gunnarsdóttir.
Málsnúmer 2205012F
09
Fundargerð bæjarráðs frá 10/5´22
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., fyrirspurn um fjölda tilkynninga er varðar þjónustu við fatlað fólk og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn hvetur til þess að Garðabær kalli eftir því að athugasemdir sem berast réttindagæslunni er varða þjónustu við fatlað fólk verði greindar niður á sveitarfélög. Þannig má fá betri upplýsingar um það sem betur má fara enda gagnsæi og tölulegar upplýsingar um þjónustu mikilvægur liður í mati á því hvernig megi almennt bæta þjónustu.“
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti og 3. tl., útboðslýsingu vegna framkvæmda við 2. áfanga Urriðaholtsskóla og mat á fjárhagslegum áhrifum.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Björg Fenger, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2205022F
10
Fundargerð bæjarráðs frá 17/5´22
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., drög að samningi um rekstur leikskóla í Urriðaholti og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn fagnar þeirri ákvörðun að samið hafi verið við sjálfstætt starfandi rekstraraðil til þess að reka nýjan leikskóla í Garðabæ. Slík ákvörðun er ekki einungis til þess fallin að bjóða upp á fjölbreytt val foreldra og barna heldur er á sama tíma verið að auka mikilvægt val starfsfólks um starfsumhverfi innan sveitarfélagsins.“
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., drög að samningi um rekstur leikskóla í Urriðaholti og framkomna bókun.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 3. tl., bréf mennta- og barnamálaráðherra varðandi stuðning við móttöku barna á flótta frá Úkraínu.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., bréf mennta- og barnamálaráðherra varðandi stuðning við móttöku barna á flótta frá Úkraínu og 4. tl., erindi Sentia sálfræðistofu um aðstöðu í Heiðmörk fyrir námskeiðahald.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., bréf mennta- og barnamálaráðherra varðandi stuðning við móttöku barna á flótta frá Úkraínu
Fundargerðin sem er 6 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2205032F
11
Fundargerð bæjarráðs 24/5´22
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun:
„Það er ljóst að taka verður betur utan um þau börn og ungmenni sem þurfa á sértækum stuðning að halda inn á námskeið sem boðið er upp á yfir sumartímann. Garðabær verður að tryggja meiri fyrirsjáanleika þegar kemur að sumarafþreyingu allra barna.
Sumarfrístund á vegum sveitarfélagsins er leið sem Viðreisn og Framsóknarflokkurinn leggja áherslu á að verði valmöguleiki þar sem sumarnámskeið á vegum íþróttahreyfingarinnar eða annarra utanaðkomandi aðila henta ekki öllum börnum.“
Sara Dögg Svanhildardóttir bæjarfulltrúi Viðreisnar
Brynja Dan Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknarflokks
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir og 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir og 7. tl., skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 8. tl., erindi Fjölbrautaskólans í Garðabæ varðandi samstarf um staðsetningu frisbígolfvallar við skólann.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóma.
Málsnúmer 2204032F
12
Fundargerð fjölskylduráðs frá 27/4´22
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., samstarf við Hugarafl um endurhæfingaúrræði.
Þorbjörg Þorvaldsson, ræddi 4. tl., samstarf við Hugarafl um endurhæfingaúrræði.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2205006F
13
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 16/5´22
Björg Fenger, ræddi 2. tl., beiðni um styrk vegna Evrópumóts stúlknalandsliða í golfi 2022 og önnur mál, ásókn íþróttafélaga um aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi önnur mál, ásókn íþróttafélaga um aðstöðu til íþróttaiðkunar og vakti athygli á tillögu sem lögð var fram um skipun rýnihóps um framtíðarstarfsemi Miðgarðs.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2205028F
14
Fundargerð leikskólanefndar frá 17/5´22
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., helstu verkefni leikskólanefndar á síðasta kjörtímabili.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2204003F
15
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 4/5´22
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup og 3. tl., niðurstöður skýrslu Rannsóknar og greiningar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og nýtti tækifærið til að þakka fyrir samstarfið i skólanefnd á síðasta kjörtímabili.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls og þakkaði Söru Dögg og öðrum fulltrúum í skólanefnd samstarfið á síðasta kjörtímabili.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2205023F
16
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 17/5´22
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands og 2. tl., viðræður við menningar- og viðskiptaráðuneytið um nýjan rekstrar- og uppbyggingarsamning.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2205016F
17
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/5´22
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands og 2. tl., viðræður við menningar- og viðskiptaráðuneytið um nýjan rekstrar- og uppbyggingarsamning.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201292
18
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 11/3 og 1/4 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201365
19
Fundargerð stjórnar SSH frá 2/5 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og ræddi tillögu sem lögð hefur verð fram á vettvangi SSH um frístundastarf fatlaðra barna og ungmenna.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi sama mál og tók undir mikilvægi þess að bjóða upp á félagsstarf fyrir fötluð börn og ungmenni.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201214
20
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 29/4 ´22.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 5. tl., endurskoðun fjárhagsáætlunar Strætó og vísaði einnig til 1. tl., eigendafundar þar sem fjallað var um sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2203555
21
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 23/5 ´22.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 3. tl., rekstur almenningssamgangna
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201001
22
Kæra M - lista um ólögmæti sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ.
Lögð fram kæra M-lista til úrskurðarnefndar kosningamála ásamt umsögn yfirkjörstjórnar.
Á fundinum var upplýst að kveðinn hefur verið upp úrskurður í málinu og í úrskurðarorði kemur fram að kröfu M-lista um ógildingu sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ er hafnað.
Garðabæ, 27. maí 2022