Beint í efni

Ráðning bæjarstjóra.

Málsnúmer 2205413

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (946). fundur

Bæjarstjórn staðfestir viðauka við ráðningarsamning bæjarstjóra, dags. 10. september 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

02

33. (2134). fundur

Viðauki við ráðningarsamning bæjarstjóra er samþykktur.

Viðaukinn verður lagður fram til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

03

24. (2077). fundur

Samkvæmt ráðningarsamningi bæjarstjóra á fjárhæð launa að taka breytingum 1. júní ár hvert í samræmi við breytingar á launavísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands og skal miða við grunnvísitölu júnímánaðar 2022.

Lagt fram samkomulag við bæjarstjóra sem felur í sér að laun bæjarstjóra hækka um 2,5% þann 1. júní 2023 í stað hækkunar samkvæmt ráðningarsamningi, dags. 7. júní 2022.

Bæjarráð samþykkir samkomulag við bæjarstjóra um breytingu á launakjörum samkvæmt ráðningarsamningi, dags. 7. júní 2022.

Bæjarstjóri og starfsmenn aðrir en bæjarritari viku af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (905). fundur

Bæjarstjórn staðfestir ráðningarsamning bæjarstjóra með sjö atkvæðum. (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS) Fjórir bæjarfulltrúar sitja hjá. (ÞÞ, GÓÓ, SDS, BDG)

Bæjarráð Garðabæjar

05

20. (2027). fundur

Lagður fram ráðningarsamningur bæjarstjóra.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Hérna höfum við samning sem er gerður af Sjálfstæðisflokknum við oddvita þeirra og það án allrar aðkomu minnihlutans. Við í Garðabæjarlistanum viljum hafa laun bæjarstjóra lægri en þau sem eru í þessum samningi. Við teljum þetta of há laun fyrir þau störf sem bæjarstjóri í 18.000 manna sveitarfélagi á að fá.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun og viðaukatillögu.

„Laun bæjarstjóra Garðabæjar eru í engu samræmi við almenna launaþróun í landinu og með engu móti hægt að styðja við þau launakjör sem hér um ræðir sé tekið mið af umfangi sveitarfélagsins Garðabæjar.
Þá er ráðningarsamningur við bæjarstjórann efnislega ófullnægjandi þegar horft er til þeirra réttinda og skyldna sem tilgreind eru í ráðningarsamningum í dag. Þannig er hvergi tilgreint hvernig greiðslum skuli háttað í séreignarsjóð, orlofssjóð, sjúkrasjóð, aðild í stéttarfélag o.þ.h. Ennfremur ávinnslu orlofs, veikindadaga, réttinda úr sjúkrasjóði o.fl. Gildir þar einu hvort um almenn eða sérákvæði sé að ræða, ákvæðin þurfa að vera skýr gagnvart bæði launagreiðanda og launþega. Þá er hvergi minnst á hvernig greiðslum skuli háttað varðandi síma, net og annan aðbúnað eins og kveðið er á um í öllum ráðningarsamningum í dag.
Hér er um hagsmunagæslu fyrir bæði launþega og launagreiðanda að ræða. Þetta varðar réttindi og skyldur beggja og samningurinn þarf að vera skýr hvað þetta varðar.
Hér er tækifæri til að sýna gott fordæmi fyrir þá gagnsæju stjórnsýslu sem starfandi bæjarstjórn hét bæjarbúum. Vöndum til verka og látum ráðningarsamning við bæjarstjórann vera fyrstu afurðina í þeim efnum hjá þessari bæjarstjórn.“

„Viðreisn leggur til við bæjarráð að gerð verði starfslýsing fyrir starf bæjarstjóra í þágu gagnsæis, nútímalegri og faglegri vinnubragða.“

Viðaukatillaga Söru Daggar við ráðningarsamning bæjarstjóra er felld með atkvæðum Bjargar Fenger, Gunnars Vals Gíslasonar og Hrannars Braga Eyjólfssonar. Ingvar Arnason og Sara Dögg Svanhildardóttir greiða atkvæði með tillögunni.

Ráðningarsamningur við bæjarstjóra er samþykktur með atkvæðum Bjargar Fenger, Gunnars Vals Gíslasonar og Hrannars Braga Eyjólfssonar. Ingvar Arnarson, greiðir atkvæði gegn samþykkt samningsins. Sara Dögg Svanhildardóttir, situr hjá.

Björg Fenger lagði fram eftirfarandi bókun.

„Við gerð ráðningarsamnings um starfskjör bæjarstjóra Garðabæjar var horft til starfskjara bæjarstjóra í sveitarfélögunum í kring. Starfskjör bæjarstjóra Garðabæjar voru því bæði einfölduð og lækkuð frá því sem áður var. Þess má geta að í ráðningarsamningnum er nú kveðið á um bifreiðastyrk vegna afnota bæjarstjóra á eigin bíl í stað þess að bæjarstjóra sé látið í té bifreið vegna starfsins.
Fullyrðingu um að Garðabær sé á einhvern hátt að taka sér stöðu gegn almennri launaþróun í landinu er hafnað.“

Samningurinn verður lagður fram í bæjarstjórn til staðfestingar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

8. (904). fundur

Björg Fenger, lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráða Almar Guðmundsson í starf bæjarstjóra Garðabæjar kjörtímabilið 2022 - 2026.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð og til staðfestingar í bæjarstjórn.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og gerði grein fyrir ástæðu þess að hún situr hjá við afgreiðslu á tillögu um ráðningu bæjarstjóra.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn situr hjá við þessa atkvæðagreiðslu þar sem við teljum mikilvægt að bæjarstjóri Garðabæjar sé fyrst og fremst ráðinn á faglegum grundvelli. Okkur finnst eðlilegt að bæjarstjóri sé framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og fylgi stefnu bæjarstjórnar en sitji ekki báðum megin borðsins.

Björg Fenger, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í maí sl. kynntu frambjóðendur Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ að oddvitinn, Almar Guðmundsson, væri bæjarstjóraefni flokksins. Niðurstaða kosninganna liggur fyrir og ljóst að bæjarbúar styðja þá stefnu flokksins, enda býr Almar yfir góðri menntun og víðtækri reynslu af málefnum bæjarins og stjórnunarstörfum sem mun nýtast vel í starfi bæjarstjóra.“

Tillaga um ráðningu bæjarstjóra samþykkt með sjö atkvæðum. (AG,BF,SHJ,MB,HBE,GVG,GS,) Fjórir bæjarfulltrúar sitja hjá. (ÞÞ,IA,SDS,BDG)