Beint í efni

24. (2077). fundur

20.06.2023
Bæjarráð Garðabæjar

24. (2077). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

20.06.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2306292

01

Skólastarf grunnskóla Garðabæjar - kynning grunnskólafulltrúa.

Á fund bæjarráðs kom Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi og gerði grein fyrir skólastarfi grunnskóla Garðabæjar og Tónlistarskóla Garðabæjar. Farið var yfir fjölda nemenda í skólunum sagt frá starfi í einstaka skólum. Upplýst var um samstarf grunnskólanna, tónlistarskólans og Hönnunarsafnsins varðandi menningartengda viðburði. Edda Björg sagði frá starfi samstarfshóps á vegum SSH um skólamál og verkefnum sem samstarfshópurinn hefur komið að. Fram kom að á vegum skólaskrifstofu hefur verið boðið upp á sameiginlega fræðslu fyrir starfsmenn skólanna og þá eru verkefni sem hlotið hafa styrk úr þróunarsjóði kynnt á sameiginlegum Menntadegi.

Málsnúmer 2212136

02

Framkvæmdir við endurbætur á skólahúsnæði.

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir stöðu framkvæmda við endurbætur og viðhald í húnsæði Hofsstaðaskóla, Garðaskóla, Flataskóla og Álftanesskóla. Gerð var grein fyrir framgangi verkefnisins og farið nánar yfir framkvæmdir í einstaka skólum sem eru fyrirhugaðar í sumar. Áhersla er lögð á að öllum megin framkvæmdum verði lokið fyrir skólabyrjun þannig að ekki verði röskun á skólastarfi í haust.

Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2305246

03

Bæjarból Leikskóli v/Bæjarbr - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði leyfi til að reisa viðbyggingu við leikskólann Bæjarból við Bæjarbraut.

Málsnúmer 2305257

04

Vetrarbraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vetrarmýrinni ehf., kt. 550121-1580, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 72 íbúðum að Vetrarbraut 2-4.

Málsnúmer 2305337

05

Víðiholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 25 íbúðum að Víðiholti 1.

Málsnúmer 2306192

06

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi drög að frumgreiningu á legu græna stígsins, dags 10.06.23.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.

Málsnúmer 2306214

07

Bréf Samtaka aldraðra varðandi kynningu á verkefnum þess, dags. 08.06.23.

Lagt fram bréf Samtaka aldraðra þar sem starfsemi félagsins er kynnt en tilgangur og markmið félagsins er að reisa með sem hagkvæmustu kjörum íbúðir fyrir félagsmenn sína til eigin afnota.

Málsnúmer 2209604

08

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði varðandi framlög til stuðnings tónlistarnáms, dags. 16.06.23.

Í fylgigögnum með tilkynningunni kemur fram að framlag til Garðabæjar nemur kr. 35.148.168 skólaárið 2023-2024.

Málsnúmer 2209603

09

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði varðandi enduráætlun á framlögum til málaflokks fatlaðs fólks, dags. 16.06.23.

Í fylgigögnum er lögð fram áætlun nr. 3 þar sem fram kemur að framlag til Garðabæjar árið 2023 nemur kr. 1.087 þkr.

Málsnúmer 2306193

10

Tilkynning frá Mosfellsbæ varðandi heildarendurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar 2022-2040, dags. 13.06.23.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2306048

11

Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á útgáfu byggingarleyfis vegna viðbyggingar að Bakkaflöt 5, dags. 05.06.23.

Í kærunni var gerð krafa um stöðvun framkvæmda og hefur af hálfu bæjarins verið brugðist við þeim þætti málsins. Ívari Pálssyni, lögmanni hefur verið falið að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 2205413

12

Launa- og starfsmannamál.

Samkvæmt ráðningarsamningi bæjarstjóra á fjárhæð launa að taka breytingum 1. júní ár hvert í samræmi við breytingar á launavísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands og skal miða við grunnvísitölu júnímánaðar 2022.

Lagt fram samkomulag við bæjarstjóra sem felur í sér að laun bæjarstjóra hækka um 2,5% þann 1. júní 2023 í stað hækkunar samkvæmt ráðningarsamningi, dags. 7. júní 2022.

Bæjarráð samþykkir samkomulag við bæjarstjóra um breytingu á launakjörum samkvæmt ráðningarsamningi, dags. 7. júní 2022.

Bæjarstjóri og starfsmenn aðrir en bæjarritari viku af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.