Beint í efni

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Málsnúmer 2212136

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

21. fundur

Fræðslustjóri og grunnskólafulltrúi fóru yfir stöðu framkvæmda í þeim grunnskólum þar sem greinst hafa rakaskemmdir. Framkvæmdir hafa gengið vel í sumar og er þeim nú að mestu lokið nema í Garðaskóla. Framkvæmdum verður haldið áfram í skólanum í vetur og þess gætt að þær raski sem minnst skólastarfi.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

13. fundur

Grunnskólafulltrúi fóru yfir stöðu vegna rakaskemmda sem komu upp í Garðaskóla. Þá var farið yfir stöðu framkvæmda í Flata-, Urriða- og í Hofsstaðaskóla.

Bæjarráð Garðabæjar

03

39. (2092). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir framkvæmdir við endurbætur og viðhald á skólahúsnæði þar sem unnið hefur verið að viðgerðum vegna rakaskemmda. Gerð var grein fyrir framkvæmdum í einstaka skólahúsnæði og farið yfir helstu verkþætti.

Lögð fram samantekt á kostnaði vegna framkvæmda og upplýst um að unnið er að gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna fjárheimilda.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

12. fundur

Fræðslustjóri og grunnskólafulltrúi fóru yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Farið yfir verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir og fleira í húsnæði stofnana bæjarins.

Farið yfir verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir og fleira í húsnæði stofnana bæjarins.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

06

11. fundur

Fræðslustjóri og fulltrúi fræðslusviðs fóru yfir stöðu framkvæmda í þeim grunnskólum þar sem greinst hafa rakaskemmdir. Upplýst var að framkvæmdir hafa gengið vel í sumar og nú er unnið að lokafrágangi. Lausar kennslustofur í Garðaskóla verða komnar í notkun í lok september og í Urriðaholtsskóla í október.

Bæjarráð Garðabæjar

07

31. (2084). fundur

Farið var í skoðunarferð í eftirfarandi skóla til að skoða aðstæður og framkvæmdir sem unnið hefur verið að í sumar við viðhald á húsnæði skólanna.

Hofsstaðaskóli, Flataskóli, Garðaskóli og Álftanesskóli.

Bæjarráð Garðabæjar

08

30. (2083). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu framkvæmda sem unnið hefur verið að í sumar við viðhald á skólahúsnæði. Fram kom að framkvæmdir hafa gengið vel og almennt verður skólahúsnæðið tilbúið til notkunar við skólasetningu sem verður 23. ágúst 2023.

Bæjarráð Garðabæjar

09

24. (2077). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir stöðu framkvæmda við endurbætur og viðhald í húnsæði Hofsstaðaskóla, Garðaskóla, Flataskóla og Álftanesskóla. Gerð var grein fyrir framgangi verkefnisins og farið nánar yfir framkvæmdir í einstaka skólum sem eru fyrirhugaðar í sumar. Áhersla er lögð á að öllum megin framkvæmdum verði lokið fyrir skólabyrjun þannig að ekki verði röskun á skólastarfi í haust.

Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

10

10. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Almaxxx deildarstjóri frá Mannvit Garðabæjar sagði frá niðurstöðurstöðum rakamælinga og stöðu framkvæmda í grunnskólum.

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Alma Dagbjört Ívarsdóttir frá Mannvit sögðu frá niðurstöðum rakamælinga og stöðu framkvæmda í grunnskólum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

11

9. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Alma Dagbjört Ívarsdóttir frá Mannvit, kynnti stöðu framkvæmda grunnskólum í tengslum við rakaskemmdir í húsnæði sveitarfélagsins.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

12

8. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir og Sigurjón Árnason verkefnisstjóri hjá Mannvit, fóru yfir niðurstöður úr sýnatökum og framkvæmdir í tengslum við rakaskemmdir í grunnskólum. Starfsmenn og foreldrar fá reglubundnar upplýsingar á samráðsfundum þar sem fulltrúar þeirra sitja ásamt fulltrúum eignasviðs, fræðsluskrifstofu og bæjarstjóra. Skólanefnd er meðvituð um þá stöðu sem nemendur og starfsfólk eru í. Starfsfólk hefur sýnt þrautseigju og lausnarmiðaða nálgun í flóknum aðstæðum. Nemendum, forráðamönnum og starfsfólki skólanna eru færðar bestu þakkir.

Bæjarráð Garðabæjar

13

9. (2062). fundur

Skólastarf í Flataskóla og Hofsstaðaskóla er að færast sem mest í eðlilegt horf með þeim röskunum sem fylgir færslu á bekkjum milli stofa og kennslu í lausum kennslustofum. Viðgerðir sem stefnt var að í þessar lotu hafa gengið vel og skemmt efni verið fjarlægt úr húsnæðinu. Í undirbúningi er að gera útboðsskilmála vegna frekari framkvæmda og lagfæringa á húsnæði skólanna sem munu hefjast í sumar eftir skólaslit.

Niðurstöður sýna úr Álftanesskóla, Tónlistarskóla og skammtímaheimili að Móaflöt hafa borist og eru þau að hluta til jákvæð. Bregðast þarf við með lokun og viðgerðum á rýmum í Álftanesskóla og Móaflöt. Í Tónlistarskólanum þarf að þrífa sal skólans og gera við lítinn leka en ekki er talin ástæða til að loka salnum nema tímabundið á meðan þrifin fara fram.

Bæjarráð Garðabæjar

14

8. (2061). fundur

Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála í Flataskóla og Hofsstaðskóla að loknu vetrarfríi. Framkvæmdir við Flataskóla gengu vel en ekki tókst að ljúka framkvæmdum við þrjár stofur. Skólastarf hófst í húsnæði Flataskóla í gær en kennsla 7. bekkjar var í lausum kennslustofum og rými á Garðatorgi. Í Hofsstaðaskóla er enn unnið að viðgerðum á hluta húsnæðisins og var almennt skólahald fellt niður í gær og í dag. Dagana 22. til 24. febrúar verða svo svokallaðir uppbrotsdagar þar sem dagskrá og stundatöflu er þjappað saman og skóladagurinn verður frá kl. 8.30 til 12.00.

Bæjarstjóri upplýsti um að gerður hefur verið samningur við Auðnast sem veitir heildstæða þjónustu á sviði heilsuverndar. Sú þjónusta felur í sér að gæta heilsutengdra hagsmuna starfsfólks.

Bæjarráð Garðabæjar

15

7. (2060). fundur

Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála og sagði m.a. frá fundi með foreldrum Flataskóla sem haldinn var síðastliðinn þriðjudag. Sagt var frá að unnið er að viðgerðum á hluta húsnæðis Flataskóla og stefnt er að því að skólahald hefjist strax að loknu vetrafríi en mögulega með einhverjum frávikum.

Niðurstöður sýna úr Hofsstaðaskóla bárust í síðustu viku og eftir greiningu þeirra var tekin ákvörðun um að loka skólanum föstudaginn 10. febrúar sl. til að hefjast handa við viðgerðir með það að markmiði að opna hluta skólans að nýju í vikunni eftir vetrarfrí.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

16

6. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Alma Dagbjört Ívarsdóttir verkefnisstjóri hjá Mannvit fóru yfir niðurstöður myglumælinga í Flata- og í Hofsstaðaskóla. Frá sl. hausti hefur verið unnið að ítarlegum heildarúttektum á Flata- og Hofsstaðaskóla og brugðist við með aðgerðum eftir því sem niðurstöður og þekking hafa gefið tilefni til í þágu heilsu og öryggis. Samkvæmt verkferlum Garðabæjar var kennslustofum og svæðum þar sem vísbendingar voru um rakaskemmdir lokað þegar í stað. Hafnar eru viðgerðir vegna skemmda í Flataskóla og í undirbúningi eru viðgerðir í Hofsstaðaskóla. Starfsmenn, nemendur og forráðamenn fá reglubundnar upplýsingar um leið og þær berast í gegnum tölvupóst, á fundum með samráðshópum auk þess er boðað til funda eftir framvindu mála. Allar fyrirliggjandi upplýsingar eru gerðar opinberar, settar á heimasíðu Garðabæjar þar sem finna má skýrslur og upplýsingar vegna rakaskemmda. Lögð er áhersla að upplýsa skólasamfélagið eins hratt og kostur er og mæta þörfum nemenda og starfsmanna eins og mögulegt er. Skólanefnd harmar þau óþægindi og álag sem nemendur og starfsfólk verða fyrir vegna þessara mála og þakkar nemendum, forráðamönnnum og starfsfólki bæjarins sveigjanleika og skilning.

Bæjarráð Garðabæjar

17

6. (2059). fundur

Eins og upplýst hefur verið um var, í framhaldi af niðurstöðum úr sýnatökum sem bárust á fimmtudaginn, tekin ákvörðun um að loka Flataskóla til miðvikudagsins 8. febrúar. Hafnar eru framkvæmdir við viðgerðir og verða næstu tvær vikur nýttar með áhlaup til viðgerða þannig að skólastarf geti hafist á nýju í hluta húsnæði skólans að loknu vetrarfríi mánudaginn 20. febrúar nk.
Svör við fyrirspurnum Garðabæjarlistans og Viðreisnar frá 19. janúar sl. lögð fram.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

18

5. (2058). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs upplýsti að verið er að bíða eftir niðurstöðum greiningar úr síðustu sýnatökum sem eru liður í heildarúttekt á húsnæði Flataskóla og Hofsstaðaskóla. Framkvæmd var sótthreinsun í húsnæði skólanna um síðustu helgi. Fram kom að unnið er að undirbúningi uppsetningar á lausum kennslustofum á skólasvæði við Flata- og Garðaskóla ásamt því að verið er að skoða aðra tímabundna valkosti varðandi húsnæði fyrir skólana. Sagt var frá því að starfsemi leikskóladeildar Flataskóla hefur verið færð í Urriðaból í Kauptúni.

Bæjarráð Garðabæjar

19

4. (2057). fundur

Lagt fram minnisblað um stöðu heildarúttektar á húsnæði Hofsstaðaskóla og yfirlit um ástandsskýrslur og endurbætur á húsnæðinu undanfarin ár.

Bæjarstjóri upplýsti að í gær bárust niðurstöður úr sýnatökum bæði úr Flataskóla og Hofsstaðaskóla sem kalla á að gripið verði til þess ráðs að loka rýmum í báðum skólunum. Foreldrar, forráðamenn og starfsfólk fengu upplýsingar um stöðu mála sendar í tölvupósti í gær og tilkynnt hefur verið um að kennsla muni raskast í skólunum vegna þessa næstu tvo daga fyrir ákveðnar bekkjadeildir. Lögð er áherslu á að grípa til aðgerða strax til að tryggja öryggi starfsfólks og nemenda

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

20

5. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs og Alma Dagbjört Ívarsdóttir verkefnisstjóri hjá Mannviti fóru yfir niðurstöður úr sýnatökum í skólahúsnæði Garðabæjar og kynntu verkferla vegna aðgerða í tengslum við rakaskemmdir. Lagt var fram minnisblað um stöðu heildarúttektar á húsnæði Flataskóla og yfirlit og endurbætur undanfarin ár. Þá var farið yfir ályktun starfsfólks Flataskóla. Upplýst var að skólastarf er hafið í færanlegum kennslustofum við Hofsstaðaskóla. Í undirbúningi er að hefja viðgerðir vegna skemmda og umbætur á húsnæði skólanna. Þá var farið yfir niðurstöður úr sýnatökum í Álftanesskóla. Þekking á málefninu hefur aukist síðustu ár og vinnulag byggir nú á gagnsæi og opnum samskiptum, ávallt með heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Starfsmenn, foreldrar og nemendur fá reglubundnar upplýsingar um stöðu mála í gegnum tölvupóst og á heimasíðu Garðabæjar, þar sem finna má upplýsingar um endurbætur vegna rakaskemmda. Skólanefnd þykir ákaflega leitt að börn og starfsfólk hafi þurft að upplifa álag og óþægindi vegna þessara mála.

Bæjarráð Garðabæjar

21

3. (2056). fundur

Lagt fram minnisblað um stöðu heildarúttektar á húsnæði Flataskóla og yfirlit um ástandsskýrslur og endurbætur undanfarin ár.

Einnig er lögð fram ályktun starfsfólks Flataskóla varðandi stöðu húsnæðismála skólans.

Á fund bæjarráðs kom Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur hjá Mannviti og fór hún yfir næstu skref varðandi niðurstöður úr heildarúttekt sem unnið er að á húsnæði Flataskóla

Jafnframt gerði Alma Dagbjört grein fyrir stöðu mála varðandi úttekt og aðgerðir í Hofsstaðaskóla. Upplýst var að skólastarf er hafið í færanlegum kennslustofum við Hofsstaðskóla. Í undirbúningi er að hefja viðgerðir vegna skemmda og umbætur á húsnæði skólans.

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir helstu atriði í minnisblaði er varða endurbætur á húsnæði Flataskóla undanfarin ár.

Bæjarstjóri greindi frá að haldnir hafa verið tveir fundir með starfsmönnum skólans þar sem farið var yfir stöðu úttektar og aðgerðir samkvæmt verkferli sem kynnt hefur verið en allar upplýsingar eru aðgengilegar á vefsíðu bæjarins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

22

46. (2053). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs upplýsti að í undirbúningi er að gera samning um leigu á fimm lausum kennslustofum fyrir Hofsstaðaskóla sem verða staðsettar á bílastæði skólans. Stefnt er að því að skólastarf geti hafist í stofunum í byrjun næsta árs. Í Flataskóla er í undirbúningi að gera heildarúttekt á húsnæði skólans og fyrirhugað er að fara í viðgerðir á skilgreindum stöðum vegna rakaskemmda.

Bréf til forráðamanna í Flataskóla og Hofsstaðaskóla var sent í gær og þar kemur fram að sett hefur verið upp upplýsingasíða á vef Garðabæjar vegna aðgerða sem verður farið í varðandi viðgerðir á húsnæði skólanna. Reglulega verða settar inn upplýsingar um stöðu mála hverju sinni.

Bæjarráð Garðabæjar

23

45. (2052). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur hjá Mannviti og gerði nánari grein fyrir niðurstöðum sýnatöku í Flataskóla og Hofsstaðaskóla. Alma Dagbjörg lýsti nánar fyrstu aðgerðum sem m.a. felast í sjónskoðun og sýnatöku þar sem grunur er á að geti verið gró vegna rakaskemmda. Farið var yfir niðurstöður sýnatöku í skólunum og hvernig var brugðist við að loka rýmum þar sem sýni eru með myglugró. Skólastarf er aðlagað að þessum breytingum með tilfærslum á starfinu eftir því sem við á og unnið er að aðgerðaráætlun í tengslum við framkvæmd viðgerða. Þá fór Alma Dagbjört yfir næstu skref varðandi sýnatökur og ástandsmats á húsnæði skólanna en fyrirhugað er að fara í frekari sýnatökur í Hofsstaðskóla og heildstæða úttekt í Flataskóla.

Bæjarstjóri upplýsti um fundi sem haldnir voru í síðustu viku með starfsfólki og foreldrum skólanna og sagði frá að verið er að vinna samskiptaáætlun til að tryggja miðlun upplýsinga til allra hlutaðeigandi um stöðu málsins og ráðgjöf til stjórnenda.

Farið var yfir uppfært verkferli vegna aðgerða og viðbragða við rakaskemmdum í húsnæði stofnana bæjarins.

Bæjarráð leggur áherslu á að fram fari vönduð heildarúttekt á húsnæði skólanna og ástand einstakra rýma skoðað m.t.t. til vísbendinga um mögulegar rakaskemmdir. Bæjarráð telur mikilvægt að unnið sé eftir uppfærðu verkferli og að starfsmenn, foreldrar og nemendur fá reglubundnar upplýsingar um stöðu mála. Þá áréttar bæjarráð að í samþykktri fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á húsnæði stofnana bæjarins.

Fylgiskjöl