30. (2083). fundur
30. (2083). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.08.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2208308
01
Lautargata 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bergmótum ehf., kt. 611217-0460, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 19 íbúðum að Lautargötu 2.
Málsnúmer 2308136
02
Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um kæru varðandi uppbyggingu byggðar við Víðiholt á Álftanesi.
Lögð fram tilkynning um kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kynningu og framkvæmdir við Víðiholt.
Bæjarstjóra falið að gæta hagsmuna bæjarins og upplýsa kæranda um stöðu mála.
Málsnúmer 2308137
03
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi ársskýrslu umboðsmanns barna fyrir árið 2022.
Lögð fram tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem fram kemur að umboðsmaður barna hafi afhent forsætisráðuneytinu ársskýrslu embættisins fyrir árið 2022.
Málsnúmer 2306142
04
Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2023.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2023. Fyrirhugað er að veita viðkomandi aðilum viðurkenningar við athöfn á Garðatorgi miðvikudaginn 30. ágúst nk. kl. 17:00.
Málsnúmer 2308185
05
Opnun tilboða í endurnýjun vallarlýsingar á Stjörnuvelli við Ásgarð.
Eitt tilboð barst frá Metatron ehf. að fjárhæð kr. 44.178.000. Kostnaðaráætlun er kr. 50.800.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Metatron ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2306198
06
Opnun tilboða í vetrarþjónustu göngu- og hjólreiðastíga í Garðabæ 2023-2026.
Eftirfarandi tilboðs bárust í vetrarþjónustu göngu- og hjólreiðastíga í Garðabæ 2023-2026.
Colas Ísland hf. kr. 77.850.000.
Stjörnugarðar ehf. kr. 44.550.000.
Garðlist ehf. kr. 57.450.000.
Kostnaðaráætlun kr. 80.665.000.
Afgreiðslu málsins frestað.
Málsnúmer 2308187
07
Drög að þjónustusamningi við Ás styrktarfélags um sértæka búsetuþjónustu að Brekkuási 2.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði nánari grein fyrir drögum að þjónustusamningi við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu í íbúðakjarna að Brekkuási 2. Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að Garðabær greiði Ás Styrktarfélagi kr. 295.977.006 á ársgrundvelli.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2212136
08
Staða framkvæmda við viðhald á skólahúsnæði.
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu framkvæmda sem unnið hefur verið að í sumar við viðhald á skólahúsnæði. Fram kom að framkvæmdir hafa gengið vel og almennt verður skólahúsnæðið tilbúið til notkunar við skólasetningu sem verður 23. ágúst 2023.
Málsnúmer 2206112
09
Tillaga að breytingum á gjaldskrám í september 2023.
Bæjarstjóri kynnti tillögu að hækkun á eftirfarandi gjaldskrám um 3% frá og með 1. september 2023.
Gjaldskrá skólamálsverða.
Gjaldsakrá frístundaheimila
Gjaldskrá leikskóla.
Gjaldskrá sundlaugar
Gjaldskrá frístundabíls.
Hækka skal stakt gjald í sundlaugar úr kr. 820 í kr. 1.000.
Gjaldsskrá frístundabíls
Haustönn hækkar úr kr. 8.000 í kr. 8.800
Vorönn hækkar úr kr. 10.250 í kr. 11.250
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2308194
10
Bréf Ingvars Arnarsonar um tímabundna lausn frá störfum bæjarfulltrúa, dags. 11.08.23.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.