Þjónustusamningur við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu.
Málsnúmer 2308187
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (925). fundur
Lagður fram til afgreiðslu þjónustusamningur við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu að Brekkuási 2.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þjónustusamning við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu að Brekkuási 2.
Bæjarráð Garðabæjar
02
30. (2083). fundur
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði nánari grein fyrir drögum að þjónustusamningi við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu í íbúðakjarna að Brekkuási 2. Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að Garðabær greiði Ás Styrktarfélagi kr. 295.977.006 á ársgrundvelli.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.