10. (925). fundur
10. (925). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.08.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði. Forseti bauð bæjarfulltrúa velkomna til starfa að loknu sumarleyfi bæjarstjórnar.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. júní sl. er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2306021F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/6 ´23.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2306031F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/6 ´23.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 6/6 ´23, varðandi staðsetningu endurvinnslustöðvar.
Almar Guðmundsson, ræddi 11. tl., fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 6/6, varðandi staðsetningu endurvinnslustöðvar Sorpu og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2306041F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/7 ´23.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2307003F
04
Fundargerð bæjarráðs frá 11/7 ´23.
Fundargerðin sem er 16 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2307015F
05
Fundargerð bæjarráðs frá 25/7 ´23.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 10. tl., erindi Stjörnunnar varðandi stuðning og þátttöku í Októberfest Stjörnunnar dagana 24. - 27. ágúst 2023.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er nær til svæðis í upplandi bæjarins og afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulagsskilmála fyrir sama svæði og samþykkt um friðlýsingu, sbr. dagskrárliðir 3 - 8 í fundargerðinni.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2307021F
06
Fundargerð bæjarráðs frá 1/8 ´23.
Fundargerðin sem er 7 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2308011F
07
Fundargerð bæjarráðs frá 15/8 ´23.
Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2306022F
08
Fundargerð fjölskylduráðs frá 21/6 ´23.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., verkefnið vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ og 5. tl. aðgerðaráætlun varðandi verkefnið gott að eldast.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., verkefnið vinna og virkni fyrir fatlað fólk í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., verkefnið vinna og virkni fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Þá ræddi Þorbjörg um stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd sem vísað hefur verið úr landi og aðkomu sveitarfélaga að málinu.
Almar Guðmundsson, ræddi stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd sem vísað hefur verið úr landi og aðkomu sveitarfélaga að málinu og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2306014F
09
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/6 ´23.
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 2. tl., íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og óskaði Golfklúbbnum Oddi til hamingju með glæsilega framkvæmd Íslandsmótsins í golfi sem fram fór á Urriðavelli dagana 10. - 13. ágúst 2023.
Almar Guðmundsson, tók undir hamingjuóskir til Golfklúbbsins Odds. Þá ræddi Almar 2. tl., íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2306015F
10
Fundargerð leikskólanefndar frá 13/6 ´23.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., kynningu á starfsemi nýstofnaðrar leikskóladeildar í Sjálandsskóla og almennt um þróunarverkefni sem unnið er að í leikskólum bæjarins. Þá ræddi Margrét 3. tl., innritun í leikskóla haustið 2023.
Brynja Dan Gunnardóttir, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla haustið 2023.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla haustið 2023.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2306036F
11
Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/6 ´23.
Gunnar Valur Gíslason vék af fundi við umræðu um fundargerðina vegna tengsla við mál samkvæmt dagskrárlið 27.3 á afgreiðslufundi skipulagsstjóra.
Björg Fenger, ræddi 6. tl., lýsingu tillagna að breytingum á 4. kafla aðalskipulags Garðabæjar 2016 - 2030, þar sem fjallað er um samgöngu- og þjónustukerfi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2306006F
12
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 2/6 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2306005F
13
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 8/6 ´23.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., drög að nýjum samningi við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins og 2. tl., leka í sýningarsal safnsins.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., leka í sýningarsal safnsins.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2306013F
14
Fundargerð umhverfisnefndar frá 15/6 ´23.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 7. tl., mengunarmælingar 2023.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., mengunarmælingar 2023 og svaraði fyrirspurn.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 7. tl., mengunarmælingar 2023.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301664
15
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 3/7 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301458
16
Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 29/3 til 21/6 ´23.
Björg Fenger ræddi 1. tl., fg. frá 21/6, stöðu snjóframleiðslu í Bláfjöllum.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 2306255
17
Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 24/4 og 23/5 ´23.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., fg. frá 24/4, áform Reykjavíkurborgar um að draga sig úr rekstri Reykjanesfólkvangs.
Almar Guðmundsson, 3. tl., fg. frá 24/4, áform Reykjavíkurborgar um að draga sig úr rekstri Reykjanesfólkvangs og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 2308187
18
Þjónustusamningur við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu.
Lagður fram til afgreiðslu þjónustusamningur við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu að Brekkuási 2.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þjónustusamning við Ás styrktarfélag um sértæka búsetuþjónustu að Brekkuási 2.
Málsnúmer 2206112
19
Tillaga að breytingum á gjaldskrám.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á eftirfarandi gjaldskrám.
Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá frístundaheimila
Gjaldskrá sundlauga
Gjaldskrá skólamálsverða
Gjaldskrá frístundabíls
Breyting á ofangreindum gjaldskrám tekur gildi 1. september 2023.
Málsnúmer 2308194
20
Bréf Ingvars Arnarsonar bæjarfulltrúa um tímabundna lausn frá störfum bæjarfulltrúa.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi bæjarfulltrúa Ingvars Arnarsonar, um leyfi frá störfum og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja erindið.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarfulltrúa Ingvari Arnarsyni, leyfi frá störfum í bæjarstjórn tímabundið frá 1. september 2023 til 30. apríl 2024 samkvæmt heimild í 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 1. mgr. 31. gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Harpa Þorsteinsdóttir, varabæjarfulltrúi mun taka sæti sem aðalmaður í bæjarstjórn á ofangreindu tímabili.
Bæjarstjórn samþykkir að Þorbjörg Þorvaldsdóttir, gegni embætti 2. varaforseta á ofangreindu tímabili.