Beint í efni

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)

Málsnúmer 2206112

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

29 (22-26). fundur

tillögur umhverfisnefndar til fjárhagsáætlunar 2026

Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2026.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

21 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2025.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

18. (933). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki nr. 3.

Brekkuás 2 - nýr íbúakjarni fyrir fatlað fólk.

Í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 var gert ráð fyrir að forstöðumaður yrði ráðinn í nóvember til að undirbúa rekstur á árinu 2024. Framkvæmdir við byggingu hússins gengu betur en áætlað var. Því var ákveðið að taka búsetukjarnann í notkun í haust.
Samþykkt var að ganga til samninga við Ás styrktarfélag um umsjón með rekstrinum og var samningur undirritaður 14. september sl. Fyrstu íbúar fluttu í íbúðirnar í lok október sl., fyrr en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarframlag á árinu 2023 40.000.000

Strætó bs.
Aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta skv. niðurstöðu Landsréttar vegna útboðsmáls sbr. bréf Strætó dags. 13. desember 2023.

Aukaframlag til Strætó 27.000.000

Samtals útgjaldauki 67.000.000

Fjármögnun

Staðgreiðsla útsvars -67.000.000

Samtals -67.000.000“

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

18. (933). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

48. (2101). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki nr. 3.

Brekkuás 2 - nýr íbúakjarni fyrir fatlað fólk.

Í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 var gert ráð fyrir að forstöðumaður yrði ráðinn í nóvember til að undirbúa rekstur á árinu 2024. Framkvæmdir við byggingu hússins gengu betur en áætlað var. Því var ákveðið að taka búsetukjarnann í notkun í haust.
Samþykkt var að ganga til samninga við Ás styrktarfélag um umsjón með rekstrinum og var samningur undirritaður 14. september sl. Fyrstu íbúar fluttu í íbúðirnar í lok október sl., fyrr en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarframlag á árinu 2023 40.000.000

Strætó bs.
Aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta skv. niðurstöðu Landsréttar vegna útboðsmáls sbr. bréf Strætó dags. 13. desember 2023.

Aukaframlag til Strætó 27.000.000

Samtals útgjaldauki 67.000.000

Fjármögnun

Staðgreiðsla útsvars -67.000.000
Samtals -67.000.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

17. (932). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. (Mál nr. 2206112)

Viðauki 2.
1. Rekstrarútgjöld
a) Launakostnaður vegna kjarasamningshækkana
Launahækkanir vegna áhrifa kjarasamninga á árinu 2023 nema um 650 m.kr. 650.000.000
Varasjóður gerði ráð fyrir 400 m.kr.
Launahækkanir skv. breytingum á kjarasamningum á árinu

Fjármögnun
Varasjóður -400.000.000
Útsvar -250.000.000

b) Fræðslumál
i. Aukin rekstrarkostnaður stofnana vegna viðgerða við rakaskemmdir 75.000.000
Viðbótarrekstrarkostnaður allra stofnana þar sem mygla hefur mælst
er um 75 m.kr. um er að ræða ýmsar rekstrarvörur svo sem hreinlætisvörur,
þrif og ýmsan smávægilegan búnað sem ekki er eignfærður.



ii Sjálfstætt starfandi skólar 160.000.000
Vegna kjarasamningsbreytinga á árinu og fjölgunar nemenda í
Alþjóðaskólanum þarf að bæta við fjárhagsáætlun um 160 m.kr.
Framlög til sjálfstætt starfandi skóla sem starfræktir eru í Garðabæ
nema skv. fjárhagsáætlun 2023 1.755 m.kr.

iii. Námsvistargjöld í sérskólum 64.000.000
Vegna samþykkta um fjölgun barna í Klettaskóla þarf að bæta við
fjármagni. Á árinu 2023 bættust við sex börn frá Garðabæ í skólann.

iv. Frístund í sérskólum 37.000.000
Vegna fjölgunar barna með stuðning í sérskólum á árinu þarf að bæta
við fjármagni til að standa straum af auknum kostnaði. Einnig er fjölgun
barna í sjálfstætt starfandi skólum sem eru í frístund.

v. Biðlistagreiðslur 32.000.000
Fleiri foreldrar hafa notið foreldragreiðslna á árinu en fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir.

Fjármögnun
Byggingarréttur -368.000.000

c) Annað:
i. Snjómokstur 100.000.000
Vegna mikils kostnaðar við snjómokstur og hálkuvarnir á fyrri hluta
ársins þarf að bæta við fjármagni til verkefnisins. Snjómokstur
síðustu 5 ár hefur sveiflast frá því að vera frá 117 m.kr. til 215 m.kr.

ii. Fjármagnsgjöld 600.000.000
Kostnaður vegna fjármagnsgjalda er um 600 m.kr. hærri en
áætlun gerir ráð fyrir vegna meiri verðbólgu en spár gerðu ráð fyrir.

Fjármögnun:
Byggingarréttur -700.000.000

2. Framkvæmdir
i. Eignfærður framkvæmdakostnaður vegna endurbóta við skólahúsnæði 1.050.000.000
Framkvæmdakostnaður umfram 600 m. kr. viðhalds sem þegar
var á áætlun er um 1.050.000.000 kr.

ii. Miðgarður 55.000.000
Uppgjör vegna framkvæmda við Miðgarðs sbr. samkomulag lagt fram
í bæjarráði 3.10.2023

Fjármögnun
Byggingarréttur 1.105.000.000“

Bæjarráð Garðabæjar

07

45.(2098). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 2.
1. Rekstrarútgjöld

a) Launakostnaður vegna kjarasamningshækkana
Launahækkanir vegna áhrifa kjarasamninga á árinu 2023 nema um 650 m.kr.
Varasjóður gerði ráð fyrir 400 m.kr.

Launahækkanir skv. breytingum á kjarasamningum á árinu 650.000.000

Fjármögnun
Varasjóður -400.000.000
Útsvar -250.000.000

b) Fræðslumál
i. Aukin rekstrarkostnaður stofnana vegna viðgerða við rakaskemmdir 75.000.000
Viðbótarrekstrarkostnaður allra stofnana þar sem mygla hefur mælst
er um 75 m.kr. um er að ræða ýmsar rekstrarvörur svo sem hreinlætisvörur, þrif
og ýmsan smávægilegan búnað sem ekki er eignfærður.

ii Sjálfstætt starfandi skólar 160.000.000
Vegna kjarasamningsbreytinga á árinu og fjölgunar nemenda í Alþjóðaskólanum
þarf að bæta við fjárhagsáætlun um 160 m.kr. Framlög til sjálfstætt starfandi skóla
sem starfræktir eru í Garðabæ nema skv. fjárhagsáætlun 2023 1.755 m.kr.
iii. Námsvistargjöld í sérskólum 64.000.000
Vegna samþykkta um fjölgun barna í Klettaskóla þarf að bæta við fjármagni
Á árinu 2023 bættust við sex börn frá Garðabæ í skólann.

iv. Frístund í sérskólum 37.000.000
Vegna fjölgunar barna með stuðning í sérskólum á árinu þarf að bæta
við fjármagni til að standa straum af auknum kostnaði. Einnig er fjölgun
barna í sjálfstætt starfandi skólum sem eru í frístund.

v. Biðlistagreiðslur
Fleiri foreldrar hafa notið foreldragreiðslna á árinu en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. 32.000.000

Fjármögnun
Byggingarréttur -368.000.000

c) Annað:
i. Snjómokstur
Vegna mikils kostnaðar við snjómokstur og hálkuvarnir á fyrri hluta ársins þarf 100.000.000
að bæta við fjármagni til verkefnisins.
Snjómokstur síðustu 5 ár hefur sveiflast frá því að vera frá 117 m.kr. til 215 m.kr.

ii. Fjármagnsgjöld 600.000.000
Kostnaður vegna fjármagnsgjalda er um 600 m.kr. hærri en áætlun gerir ráð fyrir
vegna hærri verðbólgu en spár gerðu ráð fyrir.

Fjármögnun:
Byggingarréttur -700.000.000

2. Framkvæmdir
i. Eignfærður framkvæmdakostnaður vegna endurbóta við skólahúsnæði 1.050.000.000
Framkvæmdakostnaður umfram 600 m. kr. viðhalds sem þegar var á áætlun er
um 1.050.000.000 kr.

ii. Miðgarður 55.000.000
Uppgjör vegna framkvæmda við Miðgarðs sbr. samkomulag lagt fram í bæjarráði
3.10.2023

Fjármögnun
Byggingarréttur 1.105.000.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

15. (930). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2311_51G. Um er að ræða lán til sjö ára sem er endurgreitt með einni afborgun í lok lánstíma 2. nóvember 2030. Lánið er bundið vísitölu neysluverðs til verðtryggingar með grunnvísitölu í nóvember 2023 sem er 599,9 stig. Vextir eru verðtryggðir og reiknast af höfuðstól lánsins frá útborgunardegi. Vextirnir eru 3,70% árlegir og eru fastir allan lánstímann.

„Bæjarstjórn Garðabæ samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.000.000.000,- með lokagjalddaga þann 2. nóvember 2030, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum við Urriðaholtsskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Bæjarráð Garðabæjar

09

41 (2094). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Lánið er til 7 ára og endurgreitt með einni afborgun í lok lánstíma 2. nóvember 2030. Lánið er bundið vísitölu neysluverðs til verðtryggingar með grunnvísitölu í nóvember 2023 sem er 599,9 stig. Vextir eru verðtryggðir og reiknast af höfuðstól lánsins frá útborgunardegi. Vextirnir eru 3,70% árlegir og eru fastir allan lánstímann.
Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið fjármögnun framkvæmda við byggingu Urriðaholtsskóla. Fyrir liggja drög að lánssamningi nr. 2311_50.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

10

13 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2024.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

12. (927). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 900.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2309_40. Um er að ræða jafngreiðslulán með lokagjalddaga 20. febrúar 2039, verðtryggt með 3,70% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 900.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almar Guðmundsson, kt. 030572-2979, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Bæjarráð Garðabæjar

12

34. (2087). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 900.000.000. Lánið er jafngreiðslulán með lokagjalddaga 20. febrúar 2039, verðtryggt með 3,70% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið fjármögnun framkvæmda við byggingu Urriðaholtsskóla. Fyrir liggja drög að lánssamningi nr. 2309_40.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

11. (926). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. (Mál nr. 2206112)

Viðauki 1
Fjölskyldusvið:
NPA samningar - hækkun taxta.
Vegna hækkunar á töxtum NPA (notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar) kemur til hækkunar á fjárframlögum til einstaklinga sem eru með NPA samninga.

Hækkunin er afturvirk frá 1. nóvember 2022 og nemur 45 millj. kr.
NPA samningar 45.000.000 02530-4993

Fræðslusvið:
Urriðaholtsskóli
Aukið fjárframlag til Urriðaholtsskóla vegna fjölgunar á nemendum en nemendur er um 320 haustið 2023 og hefur þá fjölgað um 120 frá hausti 2022.
Urriðaholtsskóli 190.000.000 04216 -

Frístund Urriðaholtsskóla
Aukið fjárframlag til frístundar vegna fjölgunar nemenda.
Frístund Urriðaholtsskóla 40.000.000 04287 -

Félagsmiðstöð Urriðaholtsskóla - ný deild
Frá og með skólaárinu 2023 til 2024 er gert ráð fyrir nýrri deild við skólann, félagsmiðstöð. Frá sama tíma hættir félagsmiðstöðin Klakinn í Sjálandsskóla að sjá um þá þjónustu við skólann.
Félagsmiðstöð Urriðaholtsskóla 9.000.000

Leikskóladeild Sjálandsskóla - ný deild
Ný leikskóladeild með um 25 fimm ára börnum hefur tekið til starfa við Sjálandsskóla frá og með ágúst 2023.
Leikskóladeild Sjálandsskóla 30.000.000 4124-

Garðahraun - frístundastarf
Aukið fjárframlag til Garðahrauns vegna fjölgunar á nemendum.
Garðahraun 26.000.000 04288 -

Samtals útgjaldaauki 340.000.000

Útgjaldaauka er mætt með eftirfarandi hækkun á skatttekjum:
Fasteignaskattur -24.000.000 00060 -0011
Jöfnunarsjóður -241.000.000 00100 -0148
Lóðarleiga -8.000.000 00350 -0310
Staðgreiðsla útsvars -67.000.000 00010 -0021
Samtals -340.000.000“

Bæjarráð Garðabæjar

14

31. (2084). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 1

Fjölskyldusvið:
NPA samningar ? hækkun taxta.
Vegna hækkunar á töxtum NPA (notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar) kemur til hækkunar á fjárframlögum til einstaklinga sem eru með NPA samninga.

Hækkunin er afturvirk frá 1. nóvember 2022 og nemur 45 millj. kr.

NPA samningar 45.000.000 02530-4993

Fræðslusvið:
Urriðaholtsskóli
Aukið fjárframlag til Urriðaholtsskóla vegna fjölgunar á nemendum en nemendur er um 320 haustið 2023 og hefur þá fjölgað um 120 frá hausti 2022.
Urriðaholtsskóli 190.000.000 04216 -

Frístund Urriðaholtsskóla
Aukið fjárframlag til frístundar vegna fjölgunar nemenda.
Frístund Urriðaholtsskóla 40.000.000 04287 -

Félagsmiðstöð Urriðaholtsskóla - ný deild
Frá og með skólaárinu 2023 til 2024 er gert ráð fyrir nýrri deild við skólann, félagsmiðstöð. Frá sama tíma hættir félagsmiðstöðin Klakinn í Sjálandsskóla að sjá um þá þjónustu við skólann.
Félagsmiðstöð Urriðaholtsskóla 9.000.000

Leikskóladeild Sjálandsskóla - ný deild
Ný leikskóladeild með um 25 fimm ára börnum hefur tekið til starfa við Sjálandsskóla frá og með ágúst 2023.
Leikskóladeild Sjálandsskóla 30.000.000 4124-


Garðahraun - frístundastarf
Aukið fjárframlag til Garðahrauns vegna fjölgunar á nemendum.
Garðahraun 26.000.000 04288 -

Samtals útgjaldaauki 340.000.000

Útgjaldaauka er mætt með eftirfarandi hækkun á skatttekjum:
Fasteignaskattur -24.000.000 00060 -0011
Jöfnunarsjóður -241.000.000 00100 -0148
Lóðarleiga -8.000.000 00350 - 0310
Staðgreiðsla útsvars -67.000.000 00010 -0021
Samtals -340.000.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

10. (925). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á eftirfarandi gjaldskrám.

Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá frístundaheimila
Gjaldskrá sundlauga
Gjaldskrá skólamálsverða
Gjaldskrá frístundabíls

Breyting á ofangreindum gjaldskrám tekur gildi 1. september 2023.

Bæjarráð Garðabæjar

16

30. (2083). fundur

Bæjarstjóri kynnti tillögu að hækkun á eftirfarandi gjaldskrám um 3% frá og með 1. september 2023.

Gjaldskrá skólamálsverða.
Gjaldsakrá frístundaheimila
Gjaldskrá leikskóla.
Gjaldskrá sundlaugar
Gjaldskrá frístundabíls.

Hækka skal stakt gjald í sundlaugar úr kr. 820 í kr. 1.000.

Gjaldsskrá frístundabíls
Haustönn hækkar úr kr. 8.000 í kr. 8.800
Vorönn hækkar úr kr. 10.250 í kr. 11.250

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

17

26. (2079). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja.

Garðakórinn kr. 450.000
Garðaálfar - kór eldri borgara á Álftanesi kr. 450.000
Stígamót kr. 600.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 600.000
ADHD - samtökin kr. 300.000
Sjálfsbjörg - Samvera og súpa kr. 100.000
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi kr. 250.000
Bjarkahlíð -miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 400.000
Kvennaráðgjöfin kr. 250.000
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins kr. 100.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

8. (923). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2306_34. Um er að ræða jafngreiðslulán með lokagjalddaga 20. febrúar 2039, verðtryggt með 3,20% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.


„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.000.000.000,- , með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almar Guðmundsson, kt. 030572-2979, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Bæjarráð Garðabæjar

19

21. (2074. fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Lánið er jafngreiðslulán með lokagjalddaga 20. mars 2039, verðtryggt með 3,20% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið fjármögnun framkvæmda við byggingu Urriðaholtsskóla. Fyrir liggja drög að lánssamningi nr. 2306_34.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

20

17. (2070). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir framkvæmdir við viðgerðir á skólahúsnæði sem staðið hafa yfir undanfarið vegna rakaskemmda. Almennt hafa framkvæmdir gengið vel og verið er að undirbúa framkvæmdir sem farið verður í eftir skólaslit í vor.

Sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðbrögðum gagnvart aðstæðum starfsmanna vegna álags o.fl.

Bókfærður kostnaður við viðgerða á skólahúsnæði vegna rakaskemmda 2022 og 2023 nemur um 400 mkr.

Bæjarstjórn Garðabæjar

21

4. (919). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2303_14G. Um er að ræða jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,12% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 23. mars 2040, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Þá hefur bæjarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni. Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu Svansvottaðs leikskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

Bæjarráð Garðabæjar

22

9. (2062). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000. Lánið er jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,12% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu og uppfyllir skilyrði sem sett eru fram í grænni umgjörð sjóðsins, nánar tiltekið fjármögnun á byggingu svansvottaðs leikskóla. Verkefnið telst þess eðlis að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og sporna gegn loftslagsbreytingum. Fyrir liggja drög að lánssamningi.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

23

2. (917). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 600.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2302_04G. Um er að ræða jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,05% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 600.000.000, með lokagjalddaga þann 23. mars 2040, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Þá hefur bæjarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni. Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu Svansvottaðs leikskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku.

Bæjarráð Garðabæjar

24

5. (2058). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 600.000.000. Lánið er jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,05% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu og uppfyllir skilyrði sem sett eru fram í grænni umgjörð sjóðsins, nánar tiltekið fjármögnun á byggingu svansvottaðs leikskóla. Verkefnið telst þess eðlis að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og sporna gegn loftslagsbreytingum. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánssamningi.

Bæjarstjórn Garðabæjar

25

1. (916). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um hagræðingarkröfu sviða.

Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Fjölskyldusvið 23.000.000 3.308.757.179 0,7%
02340 - Úrræði á heimili vegna barna 1.000.000 26.050.000 3,84%
02310 - Umdæmisráð barnaverndar 1.000.000 13.300.000 7,52%
02330 ? Vistun barna utan heimilis 2.000.000 50.000.000 4,00%
02420 - Félags- og íþróttastarf eldri borgara 3.000.000 95.368.000 3,15%
02490 - Önnur þjónusta við aldraða, akstur 3.000.000 43.700.000 6,86%
02581 - Sumarúrræði fyrir fatlaða 5.000.000 58.325.000 8,57%
02582 - Lengd viðvera fatlaðra ungmenna 6.000.000 60.000.000 10,00%
02564 - Miðskógar 2.000.000 124.365.000 1,61%

Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Fræðslu- og menningarsvið 104.000.000 14.196.332.808 0,7%
04010 - Skólaskrifstofa 23.000.000 466.674.000 4,9%
04LEI - Leikskólar 21.000.000 2.582.976.000 0,8%
04170 - Greiðslur til dagforeldra 3.000.000 81.495.000 3,7%
04GRU - Grunnskólar 34.000.000 4.711.960.000 0,7%
04264 - Alþjóðaskólinn 10.000.000 74.098.000 13,5%
04515 - Námsvistargjöld í tónlistarskólum 3.500.000 16.000.000 21,9%
06511 ? Íþróttamiðstöðvar 9.500.000 1.022.026.569 0,9%

Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Umhverfissvið 17.000.000 2.658.871.924 0,6%
09220 - Aðaskipulag 3.000.000 46.200.000 6,49%
09230 - Deiliskipulag 3.000.000 58.440.000 5,13%
10310 - Viðhald gatna og gangstétta 5.500.000 98.500.000 5,58%
10770 - Strætisvagnaskýli 1.000.000 17.542.000 5,70%
11520 - Vorhreinsun lóða 4.500.000 25.130.000 17,91%

Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Fjármála-og stjórnsýslusvið 6.000.000 861.092.110 0,7%
21400 - Bæjarskrifstofa 2.000.000 847.351.626 0,24%
21450 - Stafræn þróun 1.000.000 25.000.000 4,00%
21600 - Starfsmannakostnaður 2.000.000 49.700.000 4,02%
21850 - Ýmis útgjöld 1.000.000 23.500.000 4,26%


Bæjarstjórn samþykkir tillögu að útfærslu á hagræðingarkröfu sviða samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.

Bæjarráð Garðabæjar

26

3. (2056). fundur

Bæjarstjóri og sviðstjórar gerðu grein fyrir tillögu um útfærslu á hagræðingarkröfu sviða að fjárhæð kr. 150.000.000 sem skiptist á eftirfarandi hátt.

Fjölskyldusvið kr. 23.000.000
Fræðslu- og menningarsvið kr. 104.000.000
Umhverfissvið kr. 17.000.000
Fjármála- og stjórnsýslusvið kr. 6.000.000

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

27

2. (2055). fundur

Bæjarráð samþykkir gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar fyrir árið 2023.

Bæjarráð Garðabæjar

28

2. (2055). fundur

Bæjarráð samþykkir reglur um greiðslur til dagforeldra árið 2023.

Bæjarráð Garðabæjar

29

2. (2055). fundur

Bæjarráð samþykkir gjaldskrá stuðningsþjónustu fyrir árið 2023.

Bæjarstjórn Garðabæjar

30

19. (915). fundur

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu sem fylgdi fundarboði.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

„Einstaklingar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Einstaklingar með tekjur árið 2021 allt að kr. 6.330.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.500 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.880.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Hjón með tekjur árið 2021 allt að kr. 8.070.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 14.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 9.470.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).

Ekki þarf að sækja um lækkunina.“

Tillagan byggir á hækkun launavísitölu október 21 / október 22 sem er 8%.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

31

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá sundlauga Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir 7,0% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

32

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir starfsemi frístundar þar sem gert er ráð fyrir 7,0% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með níu atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,BThB,SDS,BDG) Tveir bæjarfulltrúar sitja hjá (ÞÞ,IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

33

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir frístundarheimili þar sem gert er ráð fyrir 7,0% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með níu atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,BThB,SDS,BDG) Tveir bæjarfulltrúar sitja hjá (ÞÞ,IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

34

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir 7,0% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með níu atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,BThB,SDS,BDG) Tveir bæjarfulltrúar sitja hjá (ÞÞ,IA).

Bæjarstjórn Garðabæjar

35

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá fráveitu þar sem fram kemur að fráveitugjald verði 0,085% af álagningarstofni.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

36

17. (913). fundur

Lagðar fram reglur um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Samkvæmt reglunum er gert ráð fyrir tekjutengingu afslátta af ofangreindum gjöldum frá og með 1. ágúst 2023 að undanskildum systkinaafslætti sem helst óbreyttur.

Reglurnar samþykktar samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

37

17. (913). fundur

Eftirfarandi tillaga lögð fram.

Fasteignaskattur skal vera 0,166% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Fasteignaskattur skal vera 1,52% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0% samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Vatnsgjald skal vera 0,08% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur. [Sjá gjaldskrá]
Aukavatnsskattur skal á árinu 2023 vera 25,5 kr/tonn m.v. BVT í des 2021.
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.

Fráveitugjöld skulu vera 0,085% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005. [Sjá gjaldskrá]
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 34.400.

Sorphirðugjald skal vera kr. 53.000 á hverja íbúð. [Sjá gjaldskrá].

Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera 350.000 á hvert hús. [Sjá gjaldskrá].

Fasteignaskattur og fráveitugjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

38

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá leikskóla þar sem gert er ráð fyrir 7,0% hækkun. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.

Gjaldskráin samþykkt með níu atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,BThB,SDS,BDG) Tveir bæjarfulltrúar sitja hjá. (ÞÞ,IA)

Bæjarstjórn Garðabæjar

39

17. (913). fundur

Lögð fram samþykkt um breytingu á gjaldskrá vatnsgjalds þar sem fram kemur að vatnagjald verði 0,08% af fasteignamati húsa og lóða.

Breyting á gjaldskrá vatnsgjalds samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

40

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá um hreinsun taðþróa í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum þar sem fram kemur að taðþróargjald verði kr. 350.000.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

41

17. (913). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og fór yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Bæjarstjóri þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra aðkomu að gerð fjárhagsáætlunar og íbúum fyrir ábendingar sem fram komu á vef Garðabæjar. Bæjarstjóri lýsti ánægju með gott samstarf allra bæjarfulltrúa við umfjöllum um fjárhagsáætlun.

Bæjarstjóri fjallaði um helstu niðurstöður sem koma fram í frumvarpinu og greinargerð sem lögð er fram nú við síðari umræðu.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögum að breytingum við frumvarpið eins og það var lagt fram við fyrri umræðu.

A-sjóður
Staðgreiðsla útsvars -160.000.000
Jöfnunarsjóður, málefni fatlaðra -90.000.000
Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði -43.000.000
Byggingarréttargjöld -175.000.000

Farsæld barna 54.000.000
Aðkeypt sólarhringsþjónusta fatlaðra 90.000.000
Barnavernd PMTO 1.300.000
Aðkeypt þjónusta Arnarskóla 4.400.000
Innleiðing menntastefnu 6.000.000
Sumarfrístund 20.000.000
Nýtt stöðugildi eignasjóður 14.000.000
Sétæk verkefni umhverfissvið, mávar og vötn 7.000.000
Stöðugildi fjármála- og stjórnsýslusvið 13.500.000
Hagræðingarkrafa fjölskyldusviðs -23.000.000
Hagræðingarkrafa fræðslu- og menningarsvið -104.000.000
Hagræðingarkrafa umhverfissvið -17.000.000
Hagræðingarkrafa fjármála- og stjórnsýslusvið -6.000.000
Hækkun samninga við félög 20.000.000
Rekstrarframlög til Strætó 19.000.000
Móttaka flóttamanna, fjárhagsaðstoð 40.000.000
Móttaka flóttamanna, fjárhagsaðstoð endurgr. ríkis -40.000.000
Hvatapeningar 14.000.000
Opnunartími sundlauga, tilraunaverkefni 20.000.000
Þróunarsjóður skapandi greina 3.000.000
Vinna og virkni eldri borgarar 3.000.000
Forvarnir og fræðsla félagsmiðstöðvar 5.000.000
Kirkjugarðar 2.000.000
Byggðasamlög A-hluti v.br. á bókhaldsreglum 135.000

Niðurstaða skv. fyrri umræðu 270.000.000
Breytingar á tekjum -468.000.000
Breytingar á útgjöldum 146.446.000
Jákvæð afkoma A- sjóðs skv. seinni umræðu - 51.554.000

B sjóður
Lækkun holræsa og vatnsgjalds 214.000.000
Nýtt stöðugildi Samveitna 14.000.000
Byggðasamlög B-hluti v. br. á bókhaldsreglum 2.173.000

Niðurstaða A og B skv. fyrri umræðu -498.000.000
Breytingar á tekjum -254.000.000
Breytingar á útgjöldum 162.568.000
Jákvæð afkoma A og B sjóðs skv. seinni umræðu -589.432.000

Tillögur um breytingar við framkvæmdayfirlit.

2023
Garðabær miðbær 20.000.000
Félagsaðstaða eldri borgara / Jónshús -25.000.000
Urriðaholtsskóli 2. áfangi 50.000.000
Leikskóli tímabundin ráðstöfun 75.000.000
Miðgarður 20.000.000
Loftgæðabúnaður 19.000.000
Búnaður / endurnýjun tölva og áhalda 30.000.000

Samtals skv. fyrri umræðu 5.800.000.000
Samtals skv. síðari umræðu 5.989.000.000
Byggaðsamlög 164.898.000
Samtals með byggðasamlögum 6.153.898.000

2024
Búnaður / endurnýjun tölva og áhalda 30.000.000

Samtals skv. fyrri umræðu 4.900.000.000
Samtals skv. síðari umræðu 4.930.000.000
Byggðasamlög 115.191.000
Samtals með byggðasamlögum 5.045.191.000

2025
Mannlífsmiðstöð á Álftanesi 20.000.000
Fráveita, verkframkvæmdir -50.000.000
Búnaður / endurnýjun tölva og áhalda 30.000.000

Samtals skv. fyrri umræðu 5.100.000.000
Samtals skv. síðari umræðu 5.100.000.000
Byggðasamlög 43.349.000
Samtals með byggðasamlögum 5.143.349.000

2026
Mannlífsmiðstöð á Álftanesi 300.000.000
Búnaður / endurnýjun tölva og áhalda 30.000.000

Samtals skv. fyrri umræðu 4.600.000.000
Samtals skv. síðari umræðu 4.930.000.000
Byggðasamlög 55.134.000
Samtals með byggðasamlögum 4.985.134.000


Til máls tóku.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 einkennist af skynsemi og ábyrgð. Ábyrgð gagnvart íbúum og þeirri lögbundnu þjónustu sem okkur ber að veita, með áherslu á aukna velferð í allri þjónustu. Skynsemi vegna þess hvernig fjármunum er fyrst og fremst varið til uppbyggingar innviða sem tryggja lögbundna þjónustu.
Við í Viðreisn samþykkjum fjárhagsáætlun Garðabæjar sem einkennist af mennsku, velferð og ábyrgri rekstrarniðurstöðu þar sem hverjum rekstrarlið hefur verið velt við og rýndur.
,,Vinstri velferð, hægri hagstjórn“, gamalt slagorð Viðreisnar, á sérstaklega vel við hér við afgreiðslu þessarar fjárhagsáætlunar.“

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Við vinnu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 komum við bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans til samtals á milli meiri- og minnihluta með það að markmiði að geta mögulega samþykkt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun þrátt fyrir ólíka pólitíska sýn. Þau samtöl hafa gengið vel og skilningur verið á mismunandi áherslum. Við þökkum meirihlutanum kærlega fyrir þessa fundi og vonumst til þess að þetta vinnulag sé komið til að vera. Það er þó ekkert launungamál að í þessari áætlun hefðum við viljað sjá frekari aðgerðir til að koma fjárhagslega til móts við lágtekjuhópa og barnafjölskyldur.
Á sama tíma og fasteignagjöld eru lækkuð og útsvarinu áfram haldið í lægstu lægðum, sem hvort tveggja gagnast hlutfallslega efnaðasta fólkinu hér í bænum mest, horfum við fram á aukna skuldsetningu sveitarfélagsins vegna framkvæmda og innviðauppbyggingar sem ráðast þarf í. Kostnaður við lántöku mun til lengri tíma skila sér í minna svigrúmi til þess að sinna grunnþjónustu. Þessi forgangsröðun eykur að okkar mati ójöfnuð í samfélaginu okkar og því teljum við mikilvægt að grípa til aðgerða fyrir þá hópa sem falla milli skips og bryggju.
Við í Garðabæjarlistanum höfum lagt fram nokkrar tillögur frá síðustu kosningum og hafa þær flestallar fengið góðan hljómgrunn, bæði meðal bæjarbúa og þvert á flokka í bæjarstjórn. Sem dæmi má nefna tillögu um hækkun hvatapeninga í 75 þúsund, um tekjutengdan afslátt á matarkostnað í leikskólum, um grænmetis- og ávaxtastund í grunnskólum, um samstarf við Samtökin ’78, um örugg hjólaskýli, hjólreiðaáætlun o.fl. Þá höfum við í haust lagt áherslu á að haldið verði aftur af gjaldskrárhækkunum, t.d. á leikskólagjöld og gjöld fyrir frístund, enda eru þjónustugjöld almennt afar há í Garðabæ og prósentuhækkanir koma því verr við lágtekjuhópa og barnafjölskyldur hér en annarsstaðar, þrátt fyrir að hækkunin fylgi ekki verðlagi að fullu. Við sátum þess vegna hjá við afgreiðslu þessara gjaldskráa, sem táknræna andstöðu við há gjöld hér í bæ.
Garðabæjarlistinn hefði viljað fá tækifæri til þess að setja skýrara mark á þessa fjárhagsáætlun. Við gerum okkur þó grein fyrir því að við breytum ekki stóru myndinni á meðan við erum í minnihluta, en tillögur okkar sem hafa miðað að því að létta undir með fólki hafa margar hlotið brautargengi, hvort sem það er í hluta eða heild eða enn til skoðunar. Mörg önnur mál, t.a.m. vísir að sumarfrístund, viðhald á mannvirkjum, innviðauppbygging, uppbygging Garðatorgs og aukin fjárfesting í félagslegu húsnæði á næstu árum eru síðan mál sem voru hluti af okkar kosningaáherslum.
Við samþykkjum því fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 með von um enn meira og betra samráð á komandi ári.“

Bjarni Th. Bjarnason, tók til máls

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Margrét Bjarnadóttir, tók til máls.

Björg Fenger, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 er í samræmi við áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár um gott mannlíf með vellíðan og lífsgæði bæjarbúa að leiðarljósi.
Áhersla er lögð á að viðhalda festu við stjórn fjármála og skilvirkni í rekstri bæjarins. Álögum verður stillt í hóf þar sem útsvar verður áfram 13,70%, álagningarhlutfall fasteignagjalda lækkar til mótvægis við mikla hækkun fasteignamats og gjaldskrár munu ekki hækka til samræmis við almennar kostnaðarhækkanir á yfirstandandi ári. Í áætluninni er jafnframt gerð krafa á stofnanir bæjarins um hagræðingu í rekstri enda mikilvægt að þjónustan sé reglulega rýnd og verkefnum forgangsraðað.
Fjárhagsáætlunin var unnin í opnu og gagnsæju ferli og tóku fjölmargir Garðbæingar virkan þátt með því að senda inn greinargóðar ábendingar í samráðsgátt bæjarins.
Í áætluninni er lögð mikil áhersla á farsæld, virkni og vellíðan íbúa, forvarnir, sjálfbærni og umhverfismál en þau mál rýma vel við þær ábendingar sem íbúar sendu inn.
Garðabær er barnvænt samfélag sem leggur áherslu á öryggi og farsæld barna í þjónustu sem er veitt í þeirra þágu í skólastarfi og tómstundum. Þessar áherslur koma vel fram í framlagðri áætlun þar sem vegleg viðbótarframlög er að finna ásamt mikilvægum nýframkvæmdum og endurbótum. Sömu sögu er að segja um áherslu á heilsutengdar forvarnir, virkni og einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir eldra fólk. Í þeim mikilvæga málaflokki eru stigin mikilvæg skref í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023.
Samkvæmt framkvæmdaáætlun ársins 2023 eru miklar fjárfestingar áformaðar í innviðum enda er Garðabær í örum vexti. Markmiðið er að byggja undir vöxt sveitarfélagsins og velferð íbúa á komandi árum. Uppbyggingin snýr að stærstum hluta að skólahúsnæði, leikskólum, nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk, gatnagerð, stígakerfum og úthlutun lóða þar sem fjölbreyttir húsnæðiskostir séu í boði. Aukinn kraftur er settur í viðhald og endurbætur mannvirkja auk þess sem fjárfest er í eflingu miðbæjar Garðabæjar, auknu umferðaröryggi, umhverfi og sjálfbærni þar sem vatns- og fráveitukerfi sveitarfélagsins eru fyrirferðamest.“

Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Tillaga um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun er samþykkt með samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar með framkomnum breytingum.

Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023-2026 með

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023- 2026 eru:

2023 2024 2025 2026
Tekjur: 25.850.800 26.581.257 27.584.241 28.688.264
Gjöld: 22.256.589 22.866.638 23.728.001 24.622.741
Rekstrarniðurstaða f. afskriftir: 3.594.212 3.714.619 3.856.240 4.065.523

Afskriftir (1.621.137) (1.816.990) (1.991.116) (2.154.690)

Rekstrarniðurst. án fjárm.tekna/gjalda (1.973.075) 1.897.629 1.865.125 1.910.833

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (1.383.643) (1.100.272) (1.214.877) (1.318.725)

Rekstrarniðurstaða 589.432 797.357 650.247 592.108


Bæjarstjórn Garðabæjar

42

17. (913). fundur

Lögð fram gjaldskrá sorphirðu í Garðabæ þar sem fram kemur að sorphirðugjald verði kr. 53.000.

Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

43

43. (2050). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum um álagningu fasteignaskatta og þjónustugjalda sem verða til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar 1. desember nk. ásamt tillögum um breytingar milli umræðna. Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

44

42. (2049). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir minnisblaði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi nýja spá Hagstofu og forsendur fyrir áætlunargerð.

Í minnisblaðinu kemur fram að frá því að spá Hagstofunnar var gefin út í júní sl. hafa efnahagsforsendur breyst nokkuð. Þar er fyrst og fremst um að ræða mun meiri verðbólgu í ár og á næstu árum en júní spáin sagði til um. Hagstofa spáir að verðbólga á næsta ári verði 5,6% í stað 4,9% í júníspánni. Spáin um launavísitölu er einnig hækkuð, úr 5,5% í 5,9%. Atvinnuleysi telur stofnunin að verði ívið meiri en fyrri spá sagði til um.

Útsvarsáætlanir sem sambandið hefur gefið út hafa ekki verið uppfærðar .Á móti meiri hækkun launavísitölu vegur meira atvinnuleysi að nokkru. Gera má þannig ráð fyrir að hækkun útsvarsstofn verði lítillega meiri en áður var reiknað með.

Bæjarstjóri fór yfir mögulegar breytingar milli umræðna.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

45

16. (912). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um álagningu útsvars á árinu 2023.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2023 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2022 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Við í Viðreisn teljum ekki réttlætanlegt að halda útsvarsprósentu óbreyttri á sama tíma og lögbundin þjónusta eykst og allar aðrar álögur sveitarfélagsins hækka umtalsvert.
Hækkun þjónustugjalda bitnar fyrst og fremst á barnafjölskyldum. Barnafjölskyldur bera nú þegar þyngri byrðar en í öðrum sveitarfélögum og fasteignaskattar hækka umtalsvert vegna hækkunar á fasteignamati. Á sama tíma stefnir í að halli verði á rekstri bæjarsjóðs og hann ósjálfbær, sem er staða sem þarf að bregðast við.
Viðreisn talar fyrir ábyrgum og sjálfbærum rekstri með lágum álögum, það er mikilvægt hagsmunamál almennings. Það stefnir í ósjálfbæran rekstur hjá sveitarfélaginu sem kallar á lántöku, en kostnaður við vexti og lánakostnað hjá bæjarsjóði hafa vaxið á undanförnum árum og heldur áfram að vaxa í verðbólgu og háum vöxtum íslenskrar krónu.
Því sit ég hjá við afgreiðslu tillögunnar um óbreytt útsvar fyrir árið 2023.“

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Garðabæjarlistinn minnir á að útsvar er sá tekjustofn sveitarfélaga sem leggst hlutfallslega jafnt á íbúa bæjarins og við teljum eðlilegt að nota hann í meira mæli en nú er gert til þess að jafna stöðu fólks. Við sitjum því hjá.“

Sara Dögg Svanhildarsdóttir, tók til máls að nýju.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,GS,HEB). Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá. (ÞÞ,IA,SDS)

Fjölskylduráð Garðabæjar

46

10. fundur

Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs Garðabæjar fyrir árið 2023 lögð fram til kynningar og umræðu.

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.

Bæjarráð Garðabæjar

47

41. (2048). fundur

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa fá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2023. Upplýsingastjóri gerði nánari grein fyrir framsetningu ábendinga á samráðsgátt fyrir íbúa um fjárhagsáætlun.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og sviðsstjóri umhverfissviðs fóru yfir samantekt á óskum um viðbótarfjárveitingar við frumvarp að fjárhagsáætlun.

Rætt var um álagningu fasteignagjalda ásamt breytingum á gjaldskrám.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

48

40. (2047). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2023 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna. Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2022 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2. Fjármálastjóri fór yfir helstu þætti varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 1. desember nk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

49

15. (911). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2023 - 2026. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.

Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Til máls tóku.

Sara Dögg Svanhildardóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Guðfinnur Sigurvinsson og Gunnar Valur Gíslason.

Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:

2023 2024 2025 2026
Tekjur: 24.691.612 25.385.979 26.365.638 27.446.370
Gjöld: 21.284.004 21.877.136 22.716.303 23.588.290
Rekstrarniðurstaða f. afskriftir: 3.407.608 3.508.843 3.649.335 3.858.080

Afskriftir (1.556.581) (1.744.024) (1.916.452) (2.072.834)

Rekstrarniðurst. án fjárm.tekna/gjalda 1.851.026 1.764.819 1.732.882 1.785.246

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (1.353.356) (1.068.801) (1.183.654) (1.288.079)

Rekstrarniðurstaða 497.670 696.018 549.228 497.167

Framkvæmdir 5.8000.000 4.900.000 5.100.000 4.600.000

Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2023 - 2026 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

50

39. (2046). fundur

Umræða var um breytingar á gjaldskrám og önnur mál í tengslum við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023. Fram kom að verið er að vinna að greinargerð sem lögð verður fram fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

51

38. (2045). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fundi bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 og árin 2024 - 2026, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 eru:

Heildartekjur 24.691.612 þkr.
Heildargjöld 21.284.004 þkr.
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 3.407.608 þkr.

Afskriftir 1.556.581 þkr.
Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda 1.851.026 þkr.

Fjármunatekjur (fjármagngjöld) 1.353.356 þkr.
Rekstrarniðurstaða 497.670 þkr.

Framkvæmdir - samtals A og B hluti 5.800.000 þkr.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2023 (2023-2026) til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 3. nóvember 2022.

Bæjarráð Garðabæjar

52

37. (2044). fundur

A fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023. Farið var yfir drög að niðurstöðu A og B hluta og drög að framkvæmdaáætlun. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 25. október 2022 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember 2022.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

53

5 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2023.

Bæjarráð Garðabæjar

54

36. (2043). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023 og 2024-2026.

Drög að fjárhagsáætlun ásamt gjaldskrám verða lögð fram á fundi bæjarráðs 18. október nk. og áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn verður lögð fram á fundi bæjarráðs 25. október nk.

Bæjarráð Garðabæjar

55

33. (2040). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2023 (2023-2026). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði 25. október 2022 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 3. nóvember 2022. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 1. desember 2022. Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2023.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

56

30. (2037). fundur