10. fundur
10. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
16.11.2022
Kl. 16:00 - 17:20
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)
Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs Garðabæjar fyrir árið 2023 lögð fram til kynningar og umræðu.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.
02
Tillaga um húsnæðismál fatlaðs fólks.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.
Tillögur að verklagi vegna samþykkta umsókna á biðlista eftir félagslegu húsnæði og úthlutana eru nú lögð fyrir ráðið.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.
Málið var áður til umræðu á fundi fjölskylduráðs 26. október sl. og á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 27. október sl.
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, kynnti yfirferð verklags og tillögur að breyttu verklagi vegna samþykkta umsókna á biðlista eftir félagslegu húsnæði og úthlutana en markmið með yfirferð verklagsins er að umsóknir fatlaðs fólks sem samþykktar hafa verið á biðlista og aðstandendur þeirra eigi greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu umsækjandans á biðlistanum og áætlun um hvenær hann megi vænta úrlausnar sinna húsnæðismála.
Tillögurnar ræddar. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með breytingarnar sem ætlað er að muni stuðla að auknu gegnsæi við bið einstaklinga eftir félagslegu húsnæði, þ.m.t. sértækum húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk og leggur til að breytt verklag verði kynnt fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólks áður en málið verður sent bæjarráði til umfjöllunar.
03
Starfshópur SSH um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk
Skýrsla starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030 lögð fram til kynningar.
Skýrsla starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingar og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030 lögð fram til umræðu. Í skýrslunni eru kynntar niðurstöður og tillögur starfshópsins varðandi uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingar og dagþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu til 2030 í ljósi þess að allir vinnu- og hæfingarstaðir á höfuðborgarsvæðinu eru þéttsetnir og biðlistar eftir þjónustu staðreynd.
Upplýst er að fjölskyldusvið er með í vinnslu minnisblað um stöðu ofangreindra mála hjá Garðabæ sem getur verið grundvöllur að mótun framtíðarsýnar Garðabæjar í atvinnumálum fatlaðs fólks þar sem áhersla verði lögð á að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og annarra með skerta starfsgetu.
04
Stuðningsfjölskylda í barnavernd
Úttekt á umsækjanda um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda fyrir barn, lögð fyrir fjölskylduráð til bókunar.
Mál nr. 2202050, úttekt barnaverndarþjónustu Garðabæjar á umsækjanda tekin fyrir í fjölskylduráði. Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjanda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu/ábyrgðaryfirlýsing
Mál nr. 2209442, umsókn um ábyrgðaryfirlýsingu til tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2209442, umsókn um ábyrgðaryfirlýsingu til tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu/ábyrgðaryfirlýsing
Mál nr. 2208653, umsókn um ábyrgðaryfirlýsingu/styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2208653, umsókn um ábyrgðaryfirlýsingu/styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.