Beint í efni

Starfshópur SSH um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2211195

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

3. fundur

Skýrsla starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030 lögð fram til kynningar.

Skýrsla starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingar og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030 lögð fram til umræðu. Í skýrslunni eru kynntar niðurstöður og tillögur starfshópsins varðandi uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingar og dagþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu til 2030 í ljósi þess að allir vinnu- og hæfingarstaðir á höfuðborgarsvæðinu eru þéttsetnir og biðlistar eftir þjónustu staðreynd. Samráðshópur telur mikilvægt að skoða vinnuúrræði í Garðabæ með hliðsjón af niðurstöðum skýrslunnar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

10. fundur

Skýrsla starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030 lögð fram til kynningar.

Skýrsla starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingar og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030 lögð fram til umræðu. Í skýrslunni eru kynntar niðurstöður og tillögur starfshópsins varðandi uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingar og dagþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu til 2030 í ljósi þess að allir vinnu- og hæfingarstaðir á höfuðborgarsvæðinu eru þéttsetnir og biðlistar eftir þjónustu staðreynd.

Upplýst er að fjölskyldusvið er með í vinnslu minnisblað um stöðu ofangreindra mála hjá Garðabæ sem getur verið grundvöllur að mótun framtíðarsýnar Garðabæjar í atvinnumálum fatlaðs fólks þar sem áhersla verði lögð á að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og annarra með skerta starfsgetu.