Beint í efni

Minnisblað fjölskyldusviðs varðandi verklag og gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, dags. 07.12.2022.

Málsnúmer 2209274

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

45. (2052). fundur

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði gerðu grein fyrir minnisblaði varðandi verklag og gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk. Minnisblaðið með fyrirliggjandi tillögum varðandi breytt verklag var lagt fram á fundi fjölskylduráðs 15. nóvember 2022 og á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 1. desember 2022. Fram kom ánægja með tillögurnar og að þær væru til þess fallnar að stuðla að auknu gegnsæi við bið einstaklinga eftir félagslegu húsnæði, þ.m.t. sértækum húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk.

Fylgiskjöl

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

02

3. fundur

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.

Á fundi samráðshópsins þann 27.10.2022 var núverandi verklag lagt fram til kynningar.

Nú eru lögð fram til kynningar fyrir samráðshópinn drög að nýju verklagi.

Málið var áður til umræðu á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 27. október sl. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, kynnir ný drög að verklagi vegna samþykkta umsókna á biðlista eftir félagslegu húsnæði og úthlutana. Með nýju verklagi munu umsækjendur og aðstandendur þeirra eigi greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu umsækjandans á biðlistanum og áætlun um hvenær hann megi vænta úrlausnar sinna húsnæðismála. Tillögurnar ræddar. Samráðshópurlýsir yfir ánægju með breytingarnar sem ætlað er að muni stuðla að auknu gegnsæi við bið einstaklinga eftir félagslegu húsnæði, þ.m.t. sértækum húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

10. fundur

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.

Tillögur að verklagi vegna samþykkta umsókna á biðlista eftir félagslegu húsnæði og úthlutana eru nú lögð fyrir ráðið.

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.
Málið var áður til umræðu á fundi fjölskylduráðs 26. október sl. og á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 27. október sl.
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, kynnti yfirferð verklags og tillögur að breyttu verklagi vegna samþykkta umsókna á biðlista eftir félagslegu húsnæði og úthlutana en markmið með yfirferð verklagsins er að umsóknir fatlaðs fólks sem samþykktar hafa verið á biðlista og aðstandendur þeirra eigi greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu umsækjandans á biðlistanum og áætlun um hvenær hann megi vænta úrlausnar sinna húsnæðismála.
Tillögurnar ræddar. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með breytingarnar sem ætlað er að muni stuðla að auknu gegnsæi við bið einstaklinga eftir félagslegu húsnæði, þ.m.t. sértækum húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk og leggur til að breytt verklag verði kynnt fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólks áður en málið verður sent bæjarráði til umfjöllunar.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

04

2. fundur

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins. Stefnt skal að því að niðurstaða yfirferðar fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en í lok nóvember n.k.

Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði situr fundinn undir þessum lið og fer yfir núverandi verklag og svarar spurningum fundarmanna.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

05

9. fundur

Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi fjölskylduráðs þar sem starfsfólki fjölskyldusviðs var falið að hefja vinnu við yfirferð verklags um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk.

Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, kynnti stöðu núverandi verklags. Málið verður kynnt fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólk á morgun, 27.10.2022, til að tryggja aðkomu hópsins að málinu.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

8. fundur

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela fjölskyldusviði Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins. Stefnt skal að því að niðurstaða yfirferðar fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en í lok nóvember n.k.

Lagt fram til umræðu og áframhaldandi vinnslu.

Fjölskylduráð felur starfsfólki fjölskyldusviðs að hefja vinnu við yfirferð fyrrnefnds verklags og leggja kynningu á stöðu þess fyrir fund ráðsins í október. Málið verði kynnt sem fyrst fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólks til að tryggja aðkomu hópsins að málinu.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

12. (908). fundur

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela fjölskyldusvið Garðabæjar í samráði við fjölskylduráð að yfirfara verklag við gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, þ.m.t. aðgengi fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra að upplýsingum um stöðu þeirra á biðlistum bæjarins.
Stefnt skal að því að niðurstaða yfirferðar fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en í lok nóvember nk.“

Greinargerð:
Búsetukjarni við Unnargrund fyrir sex fatlaða einstaklinga var tekinn í notkun á árinu 2019, nú í september 2022 hófust framkvæmdir við nýjan búsetukjarna fatlaðs fólks með sex íbúðum við Brekkuás og áform eru um uppbyggingu búsetuúrræða í Hnoðraholti.
Markmið með vinnu fjölskyldusviðs og fjölskylduráðs er að stytta enn frekar biðlista eftir sértæku húsnæði fatlaðs fólks í Garðabæ og að fatlað fólk og aðstandendur þeirra sem samþykktir hafa verið á biðlista eigi greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu sína á biðlistum og áætlunun um hvenær þeir megi vænta úrlausnar sinna húsnæðismála.
Gunnar Valur Gíslason, formaður fjölskylduráðs.
Björg Fenger, formaður bæjarráðs.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til eftirfarandi breytingartillögu.

Á eftir „ í samráði við fjölskylduráð“ komi „og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.

Guðlaugur Kristmundsson lagði fram eftirfarandi bókun sem hann flytur í nafni bæjarfulltrúa Söru Daggar Svanhildardóttur, sem er fjarverandi á fundinum.

„Ég fagna því mjög að sjá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins bregðast við ábendingum mínum um þjónustu við fatlað fólk síðustu árin. Það er gott að finna að rödd Viðreisnar er að ná í gegn eins og tillaga meirihlutans um húsnæðismál fatlaðs fólks ber skýrt vitni um. Um leið vil ég minna á mikilvægi aðkomu samráðshóps um málefni fatlaðs fólks að þessu verkefni. Ég ber ykkur góðar kveðjur mínar.“

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að tillagan verði samþykkt með framkominni breytingartillögu.

Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með áorðinni breytingu.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, vék af fundi kl. 18:55 og sæti hans á fundinum tók Stella Stefánsdóttir, varabæjarfulltrúi.