Beint í efni

45. (2052). fundur

13.12.2022
Bæjarráð Garðabæjar

45. (2052). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

13.12.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2212136

01

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Á fund bæjarráðs mætti Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur hjá Mannviti og gerði nánari grein fyrir niðurstöðum sýnatöku í Flataskóla og Hofsstaðaskóla. Alma Dagbjörg lýsti nánar fyrstu aðgerðum sem m.a. felast í sjónskoðun og sýnatöku þar sem grunur er á að geti verið gró vegna rakaskemmda. Farið var yfir niðurstöður sýnatöku í skólunum og hvernig var brugðist við að loka rýmum þar sem sýni eru með myglugró. Skólastarf er aðlagað að þessum breytingum með tilfærslum á starfinu eftir því sem við á og unnið er að aðgerðaráætlun í tengslum við framkvæmd viðgerða. Þá fór Alma Dagbjört yfir næstu skref varðandi sýnatökur og ástandsmats á húsnæði skólanna en fyrirhugað er að fara í frekari sýnatökur í Hofsstaðskóla og heildstæða úttekt í Flataskóla.

Bæjarstjóri upplýsti um fundi sem haldnir voru í síðustu viku með starfsfólki og foreldrum skólanna og sagði frá að verið er að vinna samskiptaáætlun til að tryggja miðlun upplýsinga til allra hlutaðeigandi um stöðu málsins og ráðgjöf til stjórnenda.

Farið var yfir uppfært verkferli vegna aðgerða og viðbragða við rakaskemmdum í húsnæði stofnana bæjarins.

Bæjarráð leggur áherslu á að fram fari vönduð heildarúttekt á húsnæði skólanna og ástand einstakra rýma skoðað m.t.t. til vísbendinga um mögulegar rakaskemmdir. Bæjarráð telur mikilvægt að unnið sé eftir uppfærðu verkferli og að starfsmenn, foreldrar og nemendur fá reglubundnar upplýsingar um stöðu mála. Þá áréttar bæjarráð að í samþykktri fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á húsnæði stofnana bæjarins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106536

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - lántaka.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 350.000.000. Lánið er jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 2,88% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu og uppfyllir skilyrði sem sett eru fram í grænni umgjörð sjóðsins, nánar tiltekið fjármögnun á byggingu svansvottaðs leikskóla. Verkefnið telst þess eðlis að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og sporna gegn loftslagsbreytingum.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánssamningi.

Málsnúmer 2106536

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - viðauki nr. 6.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2022. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki nr. 6.

Fasteignin Strikið 3.

Gengið hefur verið frá samningi Garðabæjar við Hrafnistu um greiðslu húsnæðisgjalds vegna reksturs Ísafoldar. Samningurinn var staðfestur í bæjarstjórn 1. desember 2022. Samkvæmt samningnum ber Garðabæ að greiða Hrafnistu 22.000.000 m.kr. á árinu 2022.

Hrafnista v/Ísafoldar 22.000.000 55110-9990

Fræðslumál.

Langtímaveikindi á fræðslusviði hafa verið mjög mikil á árinu 2022. Kostnaður vegna langtímaveikinda nema um 113 m.kr. Skólaskrifstofa hefur skv. fjárhagsáætlun 35 m.kr. pott til að mæta langtímaveikindum. Bæta þarf 78 m.kr. við fjárhagsáætlun skólastofnana vegna langtímaveikinda starfsmanna.

Langtímaveikindi á fræðslusviði 78.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Æskulýðs- og íþróttamál.

Rekstrarkostnaður Miðgarðs hefur reynst meiri en áætlun gerði ráð fyrir m.a. vegna vatnstjóns og aðgerða í kjölfar þess auk þess sem bætt var við einu stöðugildi umfram samþykkta áætlun að beiðni forstöðumanns.

Miðgarður 30.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Umbun til starfsmanna Garðabæjar.

Síðast liðin tvö ár hefur Garðabær í desembermánuði umbunað starfsmönnum fyrir vel unnin störf með afhendingu gjafakorta. Áætlaður kostnaður er um 15 m.kr.

Umbun til starfsmanna 15.000.000 21600-1905

Samtals kostnaðarauki 145.000.000

Fjármögnun - lækkun á handbæru fé.

Rekstrarafgangur samkvæmt viðaukaum nr. 1-6 1.337.872.000

Útkomuspá skv. samþykktri fjárhagsáætlun 2023 1.350.294.000

Mismunur 12.422.000

Málsnúmer 1908481

04

Miðhraun 24 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Smáragarði ehf., kt. 600269-2599, leyfi fyrir breytingum á burðavirki atvinnuhúsnæðis í byggingu að Miðhrauni 24.

Málsnúmer 2209149

05

Urriðaholtsstræti 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 80 íbúðum að Urriðaholtsstræti 9.

Málsnúmer 2211275

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulegt frávik frá deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna fjölda bílastæða á lóðinni við Urriðaholtsstræti 9.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir fjölbýlishúsið að Urriðaholtsstræti 9-15 þó að vikið sé frá ákvæðum skilmála hvað varðar skiptingu bílastæða á lóða og í bílageymslu enda er uppfyllt krafa um heildarfjölda bílastæða. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2009538

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til afmarkast af landamerkjum Urriðakots og Vífilsstaða til vesturs, að landi Setbergs til austurs, að Flóttamannavegi til norðurs og að landamerkjum Urriðakots og Garðalands til suðurs. Samhliða verður kynnt tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs sem er í ferli á vegum Umhverfisstofnunar. Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2210531

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu:

-Afmörkun deiliskipulagsins breytist vegna nýs deiliskipulags að vestan og sunnanverðu. Stærð skipulagsins breytist úr 907 ha í 887 ha.

-Gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir aðstöðu Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð.

-Bílastæði við Vífilsstaðahlíð við Maríuvelli færast yfir í deiliskipulag Vífilsstaðahrauns en áfram er gert ráð fyrir gönguleiðum frá því. Aðkomusvæði við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar er innan friðlýsingar Búrfellsgjár og nágrennis og mun tilheyra deiliskipulagi þess þegar þar að kemur. Bílastæði vestan Vífilsstaðahlíðar við trjásýnireit og bílastæði við upphaf línuvegar færast yfir í deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.

-Lega reiðleiða og stíga endurskoðuð.

-Deiliskipulagsuppdráttur og viðeigandi myndir í greinargerð uppfærðar.

Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.

Málsnúmer 2210532

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna brottfalls reiðstígar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út úr deiliskipulagi.

Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.

Málsnúmer 2104420

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, Maríuhella og Vatnsmýrar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, Maríuhella og Vatnsmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Um er að ræða 70 ha svæði sem afmarkast að Reykjanesbraut að vestan, Vífilsstaðalæk að norðan, Heiðmörk að austan og Urriðaholti að sunnan. Maríuhellar eru innan svæðisins.

Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.

Málsnúmer 2209274

11

Minnisblað fjölskyldusviðs varðandi verklag og gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, dags. 07.12.2022.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði gerðu grein fyrir minnisblaði varðandi verklag og gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk. Minnisblaðið með fyrirliggjandi tillögum varðandi breytt verklag var lagt fram á fundi fjölskylduráðs 15. nóvember 2022 og á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 1. desember 2022. Fram kom ánægja með tillögurnar og að þær væru til þess fallnar að stuðla að auknu gegnsæi við bið einstaklinga eftir félagslegu húsnæði, þ.m.t. sértækum húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2212142

12

Drög að samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu.

Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði gerði grein fyrir drögum að samþykktunum um fullnaðarafgreiðslu mála hjá baranverndarþjónustu. Í samþykktunum kemur fram að tilgreindum starfsmönnum barnaverndarþjónustu Garðabæjar er falið umboð til könnunar, meðferðar og ákvarðanatöku í einstökum barnaverndarmálum og öðrum málum þar sem barnaverndarþjónusta fer lögum samkvæmt með ákvörðunarvald.

Bæjarráð vísar samþykktunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2011383

13

Endurskoðun á reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar í barnaverndarmálum.



Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði gerði grein fyrir endurskoðun á reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar.

Bæjarráð vísar endurskoðun á reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2212049

14

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi breytingar í barnaverndarþjónustu sveitarfélaga, dags. 05.12.22.

Bréfið lagt fram ásamt minnisblaði varðandi breytingar á skipulagi barnaverndar sem taka gildi 1. janúar 2023.

Sameiginlegt umdæmisráð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að undanskilinni Reykjavík mun taka til starfa 1. janúar 2023, samkvæmt samningi sem samþykktur var í bæjarstjórn 1. desember 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2203112

15

Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi greinargerð í tengslum við átakið Samtaka um hringrásarhagkerfi, dags. 08.12.22.

Lögð fram. Bæjarráð vísar greinargerðinni til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Málsnúmer 2212129

16

Tilkynning umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis varðandi reglugerð um meðhöndlun úrgangs vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis í samráðsgátt, dags. 08.12.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2212128

17

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar að Lyngmóum 1.

Lögð fram umsókn Guðmundar Þórs Guðmundssonar, kt. 080895-2839, um leyfi til reksturs gististaðar í íbúð í fjölbýlishúsinu að Lyngmóum 1.

Bæjarráð getur ekki fallist á að umbeðið leyfi verði veitt enda verður það ekki talið falla að almennum skipulagsskilmálum að starfrækja atvinnurekstur að þessu tagi í íbúð í fjölbýlishúsi.

Málsnúmer 2212143

18

Drög að samningi við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands.

Bæjarráð fagnar því að fyrir liggur formlegur samningur um rekstrarframlög til Hönnunarsafns Íslands. Starfsemi safnsins hefur vaxið svo eftir er tekið og hefur Garðabær staðið myndarlega við bakið á rekstri safnsins. Bæjarráð skorar á menningar- og viðskiptaráðherra að auka hlutdeild ríkisins í rekstri safnsins og standa við ákvæði í samningi frá því desember 2006 um afgreiðslu á stofnframlagi til safnsins.

Bæjarráð vísar drögum að samningi við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2212145

19

Áramótabrennur í Garðabæ 2022.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að áramótabrennur verði við Arnarnesvog og á Álftanesi á gamlárskvöld enda verði öll tilskilin leyfi fyrir hendi.