Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (2081). fundur
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út.
Tillagan var auglýst 9. febrúar 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. maí 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 22. maí 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir.
Í tilefni af umsögn Vegagerðarinnar leggur skipulagsnefnd til að á skipulagsuppdrætti bæði aðalskipulags og deiliskipulags verði skilgreint 30 metra breitt veghelgunarsvæði fyrir Flóttamannaveg sem er tengibraut samkvæmt skipulaginu. Landnotkunarreitur Íb 4.13 austan Vífilsstaða minnkar sem nemur veghelgunarsvæði Flóttamannavegar.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarráðs auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur sem skilgreindur er meðfram Flóttamannavegi verði felldur út. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.
Í umsögn Vegagerðar kemur fram að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga sé stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breytt veghelgunarsvæði tengibrautar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Tillaga að breytingu deiliskipulag Urriðaholts austurhluta lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
7 (22-26). fundur
Skipulagsstjóri ásamt Þráni Haukssyni landslagsarkitekt kynntu tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta vegna reiðstígs. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
18. (914). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út úr deiliskipulagi.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2210532]
Bæjarráð Garðabæjar
06
45. (2052). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út úr deiliskipulagi.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út úr deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar og samhliða tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
11. fundur
Lagður fram uppdráttur að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur austan Flóttamannavegar verði felldur út til samræmis við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem ákveðið hefur verið að auglýsa og hefur verið send Skipulagsstofnun til athugunar.
Afgreiðslu tillögunnar frestað þangað til aðrar áætlanir sem stefnt er að verði kynntar samhliða verða teknar fyrir í skipulagsnefnd.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
10. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir því að tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til stígakerfis í upplandi og tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns og Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum kalli á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta.
Gera þarf ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út. Stefnt er að því að tillaga verði lögð fyrir næsta fund skipulagsnefndar.