Beint í efni

18. (914). fundur

15.12.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (914). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

15.12.2022

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - varabæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 1. desember 2022 er lögð fram.

Guðlaugur Kristmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi afgreiðslu fjárhagsáætlunar Garðabæjar.

Dagskrá

Málsnúmer 2212002F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 6/12 ´22.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., afgreiðslu skólanefndar varðandi breytingu á reglum um þróunarsjóð grunnskóla.

Fundargerðin sem er 9 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

1.2 - 2211059 - Afgreiðsla skólanefndar varðandi breytingu á reglum um þróunarsjóð grunnskóla.

„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skólanefndar um breytingu á 3. gr. reglna þróunarsjóðs grunnskóla. Í breytingunni felst að skiladagur umsóknar verður 10. febrúar í stað 1. mars.“ [Mál nr. 2211059]

Fylgiskjöl

1.5 - 2212028 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2023, dags. 01.12.22.

„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta starfs- og fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við 7. gr. samþykkta samtakanna.“ [Mál nr. 2212028]

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2212015F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 13/12 ´22.



Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 12. tl., drög að samþykktum um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins, 11. tl., minnisblað fjölskyldusviðs varðandi verklag og gerð áætlana um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk, 12. tl., drög að samþykktum um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu og 14. tl., bréf Sambands íslenska sveitarfélaga varðandi breytingar í barnaverndarþjónustu sveitarfélaga.


Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins og 12. tl., drög að samþykktum um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu.

Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

2.10 - 2104420 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, Maríuhella og Vatnsmýrar.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, Maríuhella og Vatnsmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Um er að ræða 70 ha svæði sem afmarkast að Reykjanesbraut að vestan, Vífilsstaðalæk að norðan, Heiðmörk að austan og Urriðaholti að sunnan. Maríuhellar eru innan svæðisins.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2104420]

Fylgiskjöl

2.3 - 2106536 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - viðauki nr. 6.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

„Viðauki nr. 6.
Fasteignin Strikið 3.
Gengið hefur verið frá samningi Garðabæjar við Hrafnistu um greiðslu húsnæðisgjalds vegna reksturs Ísafoldar. Samningurinn var staðfestur í bæjarstjórn 1. desember 2022. Samkvæmt samningnum ber Garðabæ að greiða Hrafnistu 22.000.000 m.kr. á árinu 2022.

Hrafnista v/Ísafoldar 22.000.000 55110-9990

Fræðslumál.
Langtímaveikindi á fræðslusviði hafa verið mjög mikil á árinu 2022. Kostnaður vegna langtímaveikinda nema um 113 m.kr. Skólaskrifstofa hefur skv. fjárhagsáætlun 35 m.kr. pott til að mæta langtímaveikindum. Bæta þarf 78 m.kr. við fjárhagsáætlun skólastofnana vegna langtímaveikinda starfsmanna.
Langtímaveikindi á fræðslusviði 78.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Æskulýðs- og íþróttamál.
Rekstrarkostnaður Miðgarðs hefur reynst meiri en áætlun gerði ráð fyrir m.a. vegna vatnstjóns og aðgerða í kjölfar þess auk þess sem bætt var við einu stöðugildi umfram samþykkta áætlun að beiðni forstöðumanns.
Miðgarður. 30.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Umbun til starfsmanna Garðabæjar.
Síðast liðin tvö ár hefur Garðabær í desembermánuði umbunað starfsmönnum fyrir vel unnin störf með afhendingu gjafakorta. Áætlaður kostnaður er um 15 m.kr.
Umbun til starfsmanna 15.000.000 21600-1905

Samtals kostnaðarauki 145.000.000

Fjármögnun - lækkun á handbæru fé.
Rekstrarafgangur samkvæmt viðaukaum nr. 1-6 1.337.872.000
Útkomuspá skv. samþykktri fjárhagsáætlun 2023 1.350.294.000
Mismunur 12.422.000“

Fylgiskjöl

2.6 - 2211275 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulegt frávik frá deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna fjölda bílastæða á lóðinni við Urriðaholtsstræti 9.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir fjölbýlishúsið að Urriðaholtsstræti 9-15 þó að vikið sé frá ákvæðum skilmála hvað varðar skiptingu bílastæða á lóð og í bílageymslu enda er uppfyllt krafa um heildarfjölda bílastæða. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ [Mál nr. 2211275]

Fylgiskjöl

2.7 - 2009538 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til afmarkast af landamerkjum Urriðakots og Vífilsstaða til vesturs, að landi Setbergs til austurs, að Flóttamannavegi til norðurs og að landamerkjum Urriðakots og Garðalands til suðurs. Samhliða verður kynnt tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs sem er í ferli á vegum Umhverfisstofnunar. Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2009538]

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

2.8 - 2210531 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu:
-Afmörkun deiliskipulagsins breytist vegna nýs deiliskipulags að vestan og sunnanverðu. Stærð skipulagsins breytist úr 907 ha í 887 ha.
-Gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir aðstöðu Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð.
-Bílastæði við Vífilsstaðahlíð við Maríuvelli færast yfir í deiliskipulag Vífilsstaðahrauns en áfram er gert ráð fyrir gönguleiðum frá því. Aðkomusvæði við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar er innan friðlýsingar Búrfellsgjár og nágrennis og mun tilheyra deiliskipulagi þess þegar þar að kemur. Bílastæði vestan Vífilsstaðahlíðar við trjásýnireit og bílastæði við upphaf línuvegar færast yfir í deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.
-Lega reiðleiða og stíga endurskoðuð.
-Deiliskipulagsuppdráttur og viðeigandi myndir í greinargerð uppfærðar.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2210531]

Fylgiskjöl

2.9 - 2210532 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna brottfalls reiðstígar.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út úr deiliskipulagi.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2210532]

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211046F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 30/11 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2211051F

04

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 1/12 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., skýrslu starfshóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk, 2. tl., tillögu um húsnæðimál fatlaðs fólks.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2212006F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/12 ´22.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. ? 4. tl., afgreiðslur skipulagsnefndar á tillögum er varða skipulagsáætlanir í upplandinu.

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 6. tl., nýtt skipulag fyrir íbúðarbyggð í Móahverfi.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2211009F

06

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 30/11 ´22.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., þróunarsjóð grunnskóla, 2. tl., yfirlit yfir námsvist nemenda með lögheimili í Garðabæ í öðrum sveitarfélögum og 3. tl., kynningu og samtal við skólastjórnendur í Urriðaholtskóla.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2211045F

07

Fundargerð ungmennaráðs frá 25/11 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2211041F

08

Fundargerð öldungaráðs frá 28/11 ´22.

Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 1. tl., kynningu á félagsstarfi eldri borgara í Jónshúsi og 3. tl., stefnu og aðgerðaráætlun í málefnum eldri borgara.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201365

09

Fundargerð stjórnar SSH frá 5/12 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203017

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 9/12 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201292

11

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 25/11 ´22.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar og 2. tl., stöðu á áformum um útflutning á brennanlegum úrgangi.

Guðlaugur Kristmundsson, og Guðfinnur Sigurvinsson tóku til máls að nýju.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2106536

12

Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022.



Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 350.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2212_47G. Um er að ræða jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 2,88% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 350.000.000, með lokagjalddaga þann 23. mars 2040, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Þá hefur bæjarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni. Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu Svansvottaðs leikskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almar Guðmundsson, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“

Málsnúmer 2212142

13

Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykktir um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar.

Málsnúmer 2011383

14

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannssaðstoðar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurskoðun reglna um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannskostnaðar.

Málsnúmer 2212143

15

Samningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir samningi við menningar og viðskiptaráðuneytið um ráðstöfun rekstrarframlags til Hönnunarsafns Íslands og lagði fram eftirfarandi tillögu að samþykkt.

„Bæjarstjórn lýsir ánægju með að fyrir liggur formlegur samningur um rekstrarframlög til Hönnunarsafns Íslands. Starfsemi safnsins hefur vaxið svo eftir er tekið og hefur Garðabær staðið myndarlega við bakið á rekstri safnsins. Bæjarstjórn skorar á menningar- og viðskiptaráðherra að auka hlutdeild ríkisins í rekstri safnsins og standa við ákvæði í samningi frá því desember 2006 um afgreiðslu á stofnframlagi til safnsins“.

Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls.

„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstrarframlög til Hönnunarsafn Íslands og felur bæjarstjóra undirritun hans.“


Í lok fundar óskaði forseti bæjarfulltrúum gleðilegrar hátíðar og þakkaði þeim samstarfið á árinu. Jafnframt óskaði forseti starfsmönnum bæjarins og bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.