Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 9/12 ´22.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
17. (913). fundur
Björg Fenger ræddi 1. tl., útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu, 2. tl.. leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur og 3. tl., umsögn svæðisskipulagsstjóra varðandi tillögu að samgöngu-og þróunarás um Hafnarfjarðarveg í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., ályktun Skógræktarfélags Íslands um Græna stíginn.
Fundargerðin lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
15. (911). fundur
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., áherslur í störfum svæðisskipulagsnefndar 2022-2026, 2. tl., breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags í Rjúpnahlíð, 3. tl., skipulags- og matslýsingu fyrir samgöngu- og þróunarás í Garðabæ og rammahluta aðalskipulags, 5. tl., ályktun Skógræktarfélags Íslands um græna stíginn. Þá sagði Ingvar frá kynningu á vegum umhverfissviðs Reykjavíkur um starfsemi sviðsins sem fram fór í lok fundar.
Fundargerðin lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
14. (910). fundur
Björg Fenger, ræddi 1. tl., samþykkt nefndarinnar á skipulagslýsingu varðandi breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna tillögu um breytingu á vaxtarmörkum í Rjúpnahlíð í Garðabæ og 5. tl. ályktun Skógræktarfélags Íslands varðandi græna stíginn.
Fundargerðin lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
13. (909). fundur
Björg Fenger ræddi 3. tl., erindi Garðabæjar um breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags.
Ingvar Arnarson, ræddi reglur um fresti til athugasemda samkvæmt ákvæðum skipulagslaga en frestir til að gera athugasemdir voru liðnir í málum sem voru til afgreiðslu.
Fundargerðin lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
7. (903). fundur
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., bókun fulltrúa Hafnarfjarðar varðandi Flóttamannaveginn.
Ingvar nýtti tækifærið og þakkaði Gunnari Einarssyni fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Fundargerðin lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
6. (902). fundur
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 18/3´22, kynningu á hjólastígakerfi á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðirnar lagðar fram.