15. (911). fundur
15. (911). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
03.11.2022
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Í upphafi fundar minntist forseti Sigríðar Finnbjörnsdóttur, sem lést 23. október sl. Sigríður var varabæjarfulltrúi í Garðabæ árin 2014 til 2018 og sat einnig í ýmsum nefndum yfir fleiri en eitt kjörtímabil. Hún var einnig mjög virk í félagsstarfi í bænum og þá sérstaklega í Kvenfélagi Garðabæjar. Sigríður vann sín störf af alúð og heiðarleika. Bæjarstjórn þakkar Sigríði fyrir hennar störf í þágu Garðabæjar og færir fjölskyldu og vinum innilegar samúðarkveðjur. Bæjarfulltrúar risu úr sætum og heiðruðu minningu Sigríðar með einnar mínútu þögn.
Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 20. október 2022 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 25/10´22.
Ingvar Arnarson, tók til máls og óskaði meistaraflokki kvenna Stjörnunnar í knattspyrnu til hamingju með 2. sæti í Bestu deild kvenna og þátttökurétt í Evrópukeppni á næsta ári. Þá ræddi Ingvar 9. tl., drög að samstarfssamningi við Samtökin 78 og 10. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 9. tl. drög að samstarfssamningi við Samtökin 78 og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Það hefur aldrei verið eins mikilvægt að standa með hinsegin fólki. Þessi samningur sem við samþykkjum hér í dag er stórmerkilegur áfangi og mun skipta svo margt fólk svo miklu máli í sveitarfélaginu okkar. Aukin fræðsla innan skólanna og sveitarfélagsins alls mun skipta mig, konuna mína og börnin mín máli. Það sama má segja um allt annað hinsegin fólk hér í bænum og ástvini þeirra. Að Garðabær taki sér stöðu með mannréttindum hinsegin fólks á svona afgerandi hátt með þessum glæsilega samningi er jákvætt fyrir allt okkar samfélag. Við getum verið ótrúlega stolt af því að hafa lent þessu máli saman - þvert á flokka. Eftir því hefur verið tekið og það sendir skýr skilaboð um það hvar við stöndum sem bæjarfélag.“
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78.
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78.
Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., samstarfssamning við Samtökin 78 og 10. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi mælingar/skoðun á raka og rakaskemmdum í húsnæði á vegum Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.9 - 2207011 - Drög að samstarfssamningi við Samtökin 78.
Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning við Samtökin 78 og felur bæjarstjóra undirritun hans. (Mál nr. 2207011)
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/11'22.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.10 - 2106578 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu til stjörnuskoðunar á bílastæði í Heiðmörk.
Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu fyrir stjörnuskoðun við bílastæði við Heiðmerkurveg. Staðsetningin er innan friðlýsts svæðis og liggur fyrir samþykki Umhverfisstofnunar með skilyrðum sem koma fram í bréfi, dags. 28. október 2022. (Mál nr. 2106578)
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 10 (26.10.2022) - Betri Garðabær - stjörnuskoðunarsvæði.pdf
- Skipulagsnefnd_Betri Garðabær-stjörnuskoðunarsvæði_2106578.pdf
- 02 Teikningar.pdf
- 22011_103-myndir.pdf
- 22011_102-myndir.pdf
- 22011_101-Grunnmynd.pdf
- 22011_104-myndir.pdf
- Leyfi til framkvæmda Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá.pdf
2.11 - 2202274 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Lautargötu 1, 3 og 5.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 24 í 30 á lóðunum við Lautargötu 1, 3 og 5.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 1.015.693 á íbúð m.v. BVT 877,3 stig í október 2022 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr.2202274)
Fylgiskjöl
2.5 - 2206336 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurskoðun aðalskipulags í upphafi nýs kjörtímabils.
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að ekki sé ástæða til að endurskoða gildandi aðalskipulag Garðabæjar nú í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar. Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 skal halda gildi sínu. Ákvörðun bæjarstjórnar skal tilkynnt Skipulagsstofnun. (Mál nr. 2206336)
Fylgiskjöl
2.6 - 2111064 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna breytingar á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar og vegna breytinga á aðalskipulagi er varðar svæði í Rjúpnahlíð.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar sem gerir ráð fyrir að opið svæði í Rjúpnahlíð breytist í athafnasvæði. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 2111064)
Fylgiskjöl
2.7 - 1912201 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar fyrir stíga- og gatnakerfi í upplandi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 er nær til stíga- og gatnakerfis í upplandi Garðabæjar. Gerð er sú breyting á tillögu sem kynnt var að Flóttamannavegur frá Urriðaholti að Vífilsstaðavegi verður skilgreindur sem "tengibraut" en ekki sem "aðrir vegir" eins og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir. Áður en auglýsing verður birt skal tillagan send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 1912201)
Fylgiskjöl
2.8 - 2202018 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Króki á Álftanesi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Króki. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð í Króki. (Mál nr. 2202018)
Fylgiskjöl
2.9 - 2207473 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hliðs vegna lóðar veitingastaðar að Hliði.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við veitingahús að Hliði. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun þar sem lóðin liggur að friðlýstum fólkvangi. (Mál nr. 2207473)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 26/10'22.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks, 3. tl., breytt skipulag barnaverndarmála, 5. tl., tillögu um húsnæðismál fatlaðs fólks og 6. tl., endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., tillögu um húsnæðismál fatlaðs fólks og 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks. Þá ræddi Þorbjörg 7. tl., svör við fyrirspurn um tölulegar upplýsingar í húsnæðismálum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 19/10'22.
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 1 tl., mælingar og rannsóknir á sveppagró í Miðgarði og 3. tl., niðurstöður könnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 1 tl., mælingar og rannsóknir á sveppagró í Miðgarði og 3. tl., niðurstöður könnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 3.tl., niðurstöður könnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Garðabæ.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður könnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Garðabæ.
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 1 tl., mælingar og rannsóknir á sveppagró í Miðgarði og 3. tl., niðurstöður könnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður könnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 1 tl., mælingar og rannsóknir á sveppagró í Miðgarði.
Almar Guðmundsson, ræddi 1 tl., mælingar og rannsóknir á sveppagró í Miðgarði og upplýsti að gert er ráð fyrir að æfingar hefjist á ný í Miðgarði eftir helgi.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 26/10'22.
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 1. tl., tillögur um nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 27/10'22.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 19/9'22.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., rekstrarframlag ríkisins til safnsins og 7. tl., samningaviðræður við menningar- og viðskiptaráðuneytið um stofnframlag til safnsins.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., rekstrarframlag ríkisins til safnsins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., stefnumótun stjórnar og safnafræðslu fyrir skólabörn.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., rekstrarframlag ríkisins til safnsins og 7. tl., samningaviðræður við menningar- og viðskiptaráðuneytið um stofnframlag til safnsins. Almar notaði tækifærið til að þakka öllum sem stóðu að listahátíð Rökkvunnar um síðustu helgi.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls og tók undir þakklæti til allra sem komu að skipulagi Rökkvunnar.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 14/10'22.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð stjórnar Sorpu frá 21/10'22.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., áform um nýja endurvinnslustöð að Lambhagavegi.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 14/10'22.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., áherslur í störfum svæðisskipulagsnefndar 2022-2026, 2. tl., breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags í Rjúpnahlíð, 3. tl., skipulags- og matslýsingu fyrir samgöngu- og þróunarás í Garðabæ og rammahluta aðalskipulags, 5. tl., ályktun Skógræktarfélags Íslands um græna stíginn. Þá sagði Ingvar frá kynningu á vegum umhverfissviðs Reykjavíkur um starfsemi sviðsins sem fram fór í lok fundar.
Fundargerðin lögð fram.
14
Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs..
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - lántaka.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2211_39. Um er að ræða skammtímalán með uppgreiðsluheimild til eins árs, óverðtryggt. Vextir eru 6 mánaða REIBOR millibankavextir auk 0,50% vaxtaálags.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2023, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra Garðabæjar kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“
16
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)- fyrri umræða.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2023 - 2026. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku.
Sara Dögg Svanhildardóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Guðfinnur Sigurvinsson og Gunnar Valur Gíslason.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2023 2024 2025 2026
Tekjur: 24.691.612 25.385.979 26.365.638 27.446.370
Gjöld: 21.284.004 21.877.136 22.716.303 23.588.290
Rekstrarniðurstaða f. afskriftir: 3.407.608 3.508.843 3.649.335 3.858.080
Afskriftir (1.556.581) (1.744.024) (1.916.452) (2.072.834)
Rekstrarniðurst. án fjárm.tekna/gjalda 1.851.026 1.764.819 1.732.882 1.785.246
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (1.353.356) (1.068.801) (1.183.654) (1.288.079)
Rekstrarniðurstaða 497.670 696.018 549.228 497.167
Framkvæmdir 5.8000.000 4.900.000 5.100.000 4.600.000
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2023 - 2026 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.
17
Ráðning í starf sviðsstjóra umhverfissviðs.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri tók til máls og í upphafi máls síns þakkaði bæjarstjóri Eysteini Haraldssyni, bæjarverkfræðingi fyrir störf sem sviðsstjóri umhverfissviðs en Eysteinn hefur látið af störfum sökum aldurs.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umsóknum um starf sviðsstjóra umhverfissviðs og úrvinnslu þeirra og lagði fram tillögu um að ráða Guðbjörgu Brá Gísladóttur, verkfræðing í starf sviðsstjóra umhverfissviðs Garðabæjar.
„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarstjóra að ráða Guðbjörgu Brá Gísladóttur í starf sviðsstjóra umhverfissviðs. Guðbjörg Brá er með M.sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað sem verkfræðingur frá útskrift. Árin 2015-2016 starfaði Guðbjörg Brá hjá Verkís og síðan 2016 hefur Guðbjörg Brá starfað sem verkfræðingur hjá umhverfissviði Garðabæjar. Í störfum sínum hjá Garðabæ hefur Guðbjörg Brá komið að stjórnun rekstrar þjónustumiðstöðvar og borið ábyrgð á stórum framkvæmdum eins og byggingu fjölnota íþróttahúss og framkvæmdum við gatnagerð í tengslum við uppbyggingu nýrra hverfa.“