Beint í efni

Ráðning í starf sviðsstjóra umhverfissviðs.

Málsnúmer 2210608

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (911). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri tók til máls og í upphafi máls síns þakkaði bæjarstjóri Eysteini Haraldssyni, bæjarverkfræðingi fyrir störf sem sviðsstjóri umhverfissviðs en Eysteinn hefur látið af störfum sökum aldurs.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir umsóknum um starf sviðsstjóra umhverfissviðs og úrvinnslu þeirra og lagði fram tillögu um að ráða Guðbjörgu Brá Gísladóttur, verkfræðing í starf sviðsstjóra umhverfissviðs Garðabæjar.

„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarstjóra að ráða Guðbjörgu Brá Gísladóttur í starf sviðsstjóra umhverfissviðs. Guðbjörg Brá er með M.sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað sem verkfræðingur frá útskrift. Árin 2015-2016 starfaði Guðbjörg Brá hjá Verkís og síðan 2016 hefur Guðbjörg Brá starfað sem verkfræðingur hjá umhverfissviði Garðabæjar. Í störfum sínum hjá Garðabæ hefur Guðbjörg Brá komið að stjórnun rekstrar þjónustumiðstöðvar og borið ábyrgð á stórum framkvæmdum eins og byggingu fjölnota íþróttahúss og framkvæmdum við gatnagerð í tengslum við uppbyggingu nýrra hverfa.“

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (2046). fundur

Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra umhverfissviðs. Fram kom að alls bárust 10 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Fimm umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og tveir af þeim voru boðaðir í annað viðtal þar sem þeir kynntu verkefni sem fyrir þá var lagt og sátu fyrir svörum í framhaldi. Embættismenn aðrir en bæjarritari og bæjarstjóri véku af fundi undir þessum dagskrárlið.