Beint í efni

39. (2046). fundur

01.11.2022
Bæjarráð Garðabæjar

39. (2046). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

01.11.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2206112

01

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Umræða var um breytingar á gjaldskrám og önnur mál í tengslum við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023. Fram kom að verið er að vinna að greinargerð sem lögð verður fram fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2106536

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - lántaka.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2211_39. Um er að ræða skammtímalán með uppgreiðsluheimild til eins árs, óverðtryggt. Vextir eru 6 mánaða REIBOR millibankavextir auk 0,50% vaxtaálags.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánssamningi.

Málsnúmer 2209695

03

Lambamýri 1-3 (MHL 05) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsbygg ehf., kt. 630210-1430, leyfi til að byggja fjölbýlishús (matshluti 05) með 16 íbúðum að Lambamýri 1-3.

Málsnúmer 2209449

04

Lambamýri 1-3 (MHL 04) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsbygg ehf., kt. 630210-1430, leyfi til að byggja fjölbýlishús (matshluti 04) með 16 íbúðum að Lambamýri 1-3.

Málsnúmer 2206336

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurskoðun aðalskipulags í upphafi nýs kjörtímabils.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að ekki sé þörf á að endurskoða gildandi aðalskipulag Garðabæjar nú í upphafi nýs kjörtímabils bæjarstjórnar. Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 skal halda gildi sínu.

Ákvörðun bæjarstjórnar skal tilkynnt Skipulagsstofnun.

Málsnúmer 2111064

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna breytingar á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar og vegna breytinga á aðalskipulagi er varðar svæði í Rjúpnahlíð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar sem gerir ráð fyrir að opið svæði í Rjúpnahlíð breytist í athafnasvæði. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.

Svæðisskipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum 14. október 2022 fyrirliggjandi lýsingu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015 - 2040 er varðar færslu á vaxtarmörkum svæðisskipulags við Rjúpnahlíð í Garðabæ. Lýsingin verður send aðildarsveitarfélögum til afgreiðslu sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga. Þá verður hún sérstaklega kynnt þeim sveitarfélögum sem þess óska. Leitað verður umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum.

Málsnúmer 1912201

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar fyrir stíga- og gatnakerfi í upplandi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 er nær til stíga- og gatnakerfis í upplandi Garðabæjar. Gerð er sú breyting á tillögu sem kynnt var samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga að Flóttamannavegur frá Urriðaholti að Vífilsstaðavegi verður skilgreindur sem "tengibraut" en ekki sem "aðrir vegir" eins og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir. Áður en auglýsing verður birt skal tillagan send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 2202018

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Króki á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Króki. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð í Króki.

Málsnúmer 2207473

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hliðs vegna lóðar veitingastaðar að Hliði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við veitingahús að Hliði. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun þar sem lóðin liggur að friðlýstum fólkvangi.

Málsnúmer 2106578

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu til stjörnuskoðunar á bílastæði í Heiðmörk.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu fyrir stjörnuskoðun við bílastæði við Heiðmerkurveg. Staðsetningin er innan friðlýsts svæðis og liggur fyrir samþykki Umhverfisstofnunar með skilyrðum sem koma fram í bréfi, dags. 28. október 2022.

Málsnúmer 2202274

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Lautargötu 1, 3 og 5.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 24 í 30 á lóðunum við Lautargötu 1, 3 og 5.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 1.015.693 á íbúð m.v. BVT 877,3 stig í október 2022 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 2210565

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Sjöunda Maí ehf. um rekstrarleyfi fyrir kaffihúsi að Urriðaholtsstræti 2-4.

Í umsókninni kemur fram að sótt er um leyfi fyrir starfsemi kaffihúss í flokki II í húsnæði að Urriðaholtsstræti 2-4.

Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2210609

13

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um útlendinga (alþjóðleg vernd), 382. mál., dags. 28.10.2022.

Lagt fram.

Málsnúmer 2210558

14

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál., dags. 25.10.2022.

Lagt fram.

Málsnúmer 2210608

15

Ráðning í starf sviðsstjóra umhverfissviðs Garðabæjar.

Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra umhverfissviðs. Fram kom að alls bárust 10 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Fimm umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og tveir af þeim voru boðaðir í annað viðtal þar sem þeir kynntu verkefni sem fyrir þá var lagt og sátu fyrir svörum í framhaldi. Embættismenn aðrir en bæjarritari og bæjarstjóri véku af fundi undir þessum dagskrárlið.