Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er nær til svæðis í upplandi bæjarins.

Málsnúmer 1912201

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (2081). fundur

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. laganna tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. júní 2023, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til stíga og gatnakerfis í upplandi bæjarins.
Tillagan var auglýst 9. febrúar 2023 ásamt tillögum er varða breytingar á deiliskipulagi á svæðinu og tillögu um áform friðlýsingar Urriðakotshrauns. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. maí 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 22. maí 2023.
Umsögn um athugasemdir liggur fyrir og í tilefni af umsögn Vegagerðarinnar leggur skipulagsnefnd til að á skipulagsuppdrætti bæði aðalskipulags og deiliskipulags Vífilsstaðahrauns verði skilgreint 30 metra breitt veghelgunarsvæði fyrir Flóttamannaveg sem er tengibraut samkvæmt skipulaginu. Landnotkunarreitur Íb 4.13 austan Vífilsstaða minnkar sem nemur veghelgunarsvæði Flóttamannavegar.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.

Bæjarráð samþykkir að senda Skipulagsstofnun samþykkta tillögu, ásamt athugasemdum og umsögn. Jafnframt skal senda þeim aðilum er athugasemdir gerðu afgreiðslu og umsögn bæjarráðs um athugasemdir og auglýsa niðurstöðu bæjarráðs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Upplands Garðabæjar og skipulagssvæða þeirra deiliskipulagstillagna sem auglýstar voru samhliða. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.
Í umsögn Vegagerðar kemur fram að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga sé stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breitt veghelgunarsvæði tengibrautar. Landnotkunarreitur Íb 4.13 austan Vífilsstaða minnkar sem nemur veghelgunarsvæði Flóttamannavegar.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu en framsetningu hennar hefur verið breytt í kjölfar athugunar hjá umhverfissviði og ráðgjafa.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu og lagfæringu í samræmi við 1.mgr.31.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stíga-og gatnakerfis í Upplandi Garðabæjar lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

7 (22-26). fundur

Skipulagsstjóri ásamt Þráni Haukssyni landslagsarkitekt kynntu tillögu á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar, er varða stígakerfi í upplandi. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

15. (911). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 er nær til stíga- og gatnakerfis í upplandi Garðabæjar. Gerð er sú breyting á tillögu sem kynnt var að Flóttamannavegur frá Urriðaholti að Vífilsstaðavegi verður skilgreindur sem "tengibraut" en ekki sem "aðrir vegir" eins og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir. Áður en auglýsing verður birt skal tillagan send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 1912201)

Bæjarráð Garðabæjar

06

39. (2046). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 er nær til stíga- og gatnakerfis í upplandi Garðabæjar. Gerð er sú breyting á tillögu sem kynnt var samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga að Flóttamannavegur frá Urriðaholti að Vífilsstaðavegi verður skilgreindur sem "tengibraut" en ekki sem "aðrir vegir" eins og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir. Áður en auglýsing verður birt skal tillagan send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stíga-og gatnakerfis í Upplandi Garðabæjar.
Með vísan í umsögn Vegagerðarinnar dags. 12. apríl 2022 um Flóttamannaveg (Elliðavatnsveg/Ofanbyggðarveg)í forkynntri tillögu leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á tillögunni að Flóttamannavegur frá Urriðaholti að tengibrautinni Vífilsstaðavegi verði skilgreindur sem "tengibraut" en ekki sem "aðrir vegir" eins og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir. Eins og fram kemur í umsögn Vegagerðarinnar er vegurinn áfram stofnvegur í umsjá Vegagerðarinnar og einnig er tekið fram að ekki séu gerðar athugasemdir við breytingar á legu vegarins né staðsetningu brúar og undirganga enda styður tillaga það markmið að bæta öryggi vegarins til muna. Skipulagsnefnd bendir á að "stofnvegir" samkvæmt skilgreiningu Vegagerðar geta í sumum tilfellum verið skilgreindir sem tengibrautir í aðalskipulagsáætlunum sveitarfélaga.
Skipulagsnefnd tekur fram að ástæða þess að tillagan gerir ekki ráð fyrir reiðvegatengingu meðfram Flóttamannavegi eða þvert í gegnum Urriðakotsland og Setbergsland er m.a. vegna þess að ekki hefur náðst samkomulag við landeigendur um stöðu þeirra í skipulagsáætlunum. Skipulagsnefnd vísar hugmyndum um reiðstígakerfi svæðisins til þeirrar vinnu sem framundan er við endurskoðun stígakerfis Aðalskipulags Garðabæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni með ofangreindri breytingu til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.31.gr.Skipulagslaga og skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar sbr. 3.mgr.30.gr.sömu laga.
Stefna skal að því að tillagan verði auglýst samhliða tillögum að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns og Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum annarsvegar og tillögum að breytingum á deiliskipulagi Heiðmerkur og deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta hinsvegar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í upplandi sveitarfélagsins að lokinni forkynningu í samræmi við 2.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögunni.
Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Almennur kynningarfundur var haldinn 6. apríl sl. þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar.
Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillögunnar rann út 25. apríl.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar lagðar fram.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ásamt ábendingum og umsögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

8. (904). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

10

16. (2023). fundur

Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi forkynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar stígakerfi í upplandi Garðabæjar. Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum og tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.

Athugasemdir og ábendingar sem borist hafa á kynningartíma liggja fyrir og eru til skoðunar hjá tækni og umhverfisviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í upplandi sveitarfélagsins að lokinni forkynningu í samræmi við 2.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Almennur kynningarfundur var haldinn 6.apríl sl þar sem tillögurnar voru kynntar og ræddar.
Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillögunnar rann út 25.apríl.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar lagðar fram.
Skipulagsanefnd vísar tillögunni ásamt ábendingum og umsögnum til nýrrar bæjarstjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2040 sem vísað hefur verið til forkynningar. Skipulagsstjóri leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að ekki verði gert ráð fyrir reiðleið yfir Urriðakotshraun og Tjarnholt og um línuveg að Gráhelluhrauni enda hafa landeigendur lýst sig mótfallna þeirri útfærslu.
Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir reiðleið um Sléttuhlíð og Klifholt sem myndi stytta reiðleið milli hesthúsabyggða Spretts og Sörla til muna.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

13

42. fundur

Halldóra Narfadóttir landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna stígkerfis í upplandi.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

4. (900). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til alls upplands sveitarfélagsins, þ.e. landsvæðis innan sveitarfélagsins utan þéttbýlismarka. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal sérstaklega kynnt Golfklúbbnum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti hf.. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 1912201)

Bæjarráð Garðabæjar

15

7. (2014). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal sérstaklega kynnt Golfklúbbnum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti hf. Áður en til kynningar kemur skal tillagan send til umfjöllunar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar, sbr. 68. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

3. fundur

Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í Upplandi Garðabæjar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni umfjöllun í umhverfisnefnd og hjá Umhverfisstofnun. Leita skal umsagna hjá Gólklúbbinum Oddi, Hestamannafélaginu Spretti og Landsneti auk hefðbundinna umsagnaraðila. Kynna skal tillögur fyrir landeigendum á svæðinu.
Halda skal almennan kynningarfund á meðan forkynningu stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

2. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt fór yfir meginforsendur endurskoðunar á stígakerfi í Upplandi Garðabæjar í gildandi aðalskipulagi.
Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

2. fundur

Lögð fram bókun bæjarstjórnar þar sem fram kemur tillaga um göngu- og hjólaleiðir í upplandi Garðabæjar og Vífilsstaðahrauni. Skipulagsnefnd tekur undir bókunina og vísar henni til mótunar tillagna að breytingu aðalskipulags og deiliskipulags á svæðinu.

Bæjarráð Garðabæjar

19

50. (1958). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

13. fundur

Lögð fram lýsing að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem hefur verið auglýst og kallað eftir umsögnum.
Markmið aðalskipulagsbreytingar eru sett fram í lýsingunni og eru eftirfarandi:
-Ákvarða samfelldar og skýrar stígatengingar í upplandi Garðabæjar.
-Skilgreina betur legu Græna stígsins í upplandi Garðabæjar og tengingu hans við
nágrannasveitarfélögin.
-Ákvarða legu reiðleiðar milli Hafnarfjarðar og Garðabæjar í stað leiðar meðfram
Flóttamannavegi.
-Samræmi legu stíga við rammahluta Vífilsstaðalands í aðalskipulagi Garðabæjar.
-Tryggja samræmi milli aðalskipulags og fyrirhugaðs deiliskipulags Urriðavatnsdala.
-Endurskoða landnotkunarreiti og skipulagsákvæði.

Umsögnum og ábendingum vísað til mótunar breytingartillögunar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

21

24. fundur

Hvatinn að gerð tillögu að breytingu á aðalskipulagi er fyrst og fremst endurskoðun stígakerfis í upplandi Garðabæjar og skýrari skilgreining á legu Græna stígsins. Þá vinnur Umhverfisstofnun að því að friðlýsa Urriðakotshrauni sem fólkvang. Ráðgert er að fólkvangurinn verði innan marka fyrirhugaðs deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðvatnsdölum, sem unnið er að samhliða friðlýsingaráformum. Þar að auki var friðlýsing fyrir Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá staðfest fyrr á þessu ári sem færa þarf inn á uppdrátt og bæta við umfjöllun í greinargerð aðalskipulagsins.

ÍTG fagnar fram kominni tillögu um breytingu á aðalskipulagi í upplandi Garðabæjar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

22

27. fundur

Skipulagsstjóri og Þráinn Hauksson skipulagshönnuður fóru yfir tillögur af breytingum á stígum í upplandi Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

23

15. (874). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi er nær til upplands Garðabæjar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnum, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 1912201)

Bæjarráð Garðabæjar

24

39. (1947). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi er nær til upplands Garðabæjar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnum, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

25

10. fundur

Lögð fram verkefnislýsing aðalskipulagsbreytingar sem Alta ehf hefur unnið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu og vísar henni til tækni- og umhverfissviðs til meðferðar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

26

22. fundur

Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi hjá Landslagi ehf gerðir grein fyrir vinnu við mótun tillögu að breytingum á stígakerfi í Urriðakots og Setbergslandi. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagslagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

27

4. fundur

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðir grein fyrir vinnu við mótun tillögu að breytingum á stígakerfi í Urriðakots og Setbergslandi. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagslagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði og til kynningar í umhverfisnefnd.