10. fundur
10. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020
01.10.2020
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa ásamt ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Ómar Ívarsson skipulagsfræðingur hjá Landslagi fór yfir minnisblaðið. Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
02
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa ásamt ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Ómar Ívarsson skipulagsfræðingur hjá Landslagi fór yfir minnisblaðið.Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
03
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.Lögð fram Húsakönnun Vífilsstaða sem Batteríið ehef hefur unnið. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við húsakönnunina.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
04
Hnoðraholt norður deiliskipulag
Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
05
Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
06
Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.
Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
07
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi
Lögð fram verkefnislýsing aðalskipulagsbreytingar sem Alta ehf hefur unnið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu og vísar henni til tækni- og umhverfissviðs til meðferðar.
08
Áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns
Lagt fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
09
Útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum - nýtt deiliskipulag
Lögð fram verkefnislýsing deiliskipulagsgerðar sem Alta ehf hefur unnið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu og vísar henni til tækni- og umhverfissviðs til meðferðar.
10
Móar, endurskoðað deiliskipulag
Sólveig Helga Jóhannsdóttir kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Móa. Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni- og umhverfissviði.
11
Tunguás 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um tilfærslu byggingarreits að götu að norðanverðu en frá lóðarmörkum að sunnanverðu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og að skipulagsstjóri vísi henni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu þegar að fullnægjandi gögn hafa borist.
12
Lóð fyrir dælustöð neðan Hraunsholtsbrautar. Breyting á deiliskipulagi Hraunsholts
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dælistöð við Hraunsholtsbraut á móts við gatnamót við Drafnarás. Dælustöðin yrði grafin inn í brekkuna og vart sýnileg að frá Hraunsholtsbraut.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Furuáss 2 og Eikarás 1.
13
Smádreifistöð við Maltakur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dreifistöð rafveitu. Lagðar fram athugasemdir þar sem tillögunni er harðlega mótmælt.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í athugasemdir.
Tækni- og umhverfissviði falið að finna aðra staðsetningu í samráði við Veitur.
14
Ljósakur 6 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Vísað er til fyrri svara vegna sambærilegra fyrirspurna. Bent er á að geymslur skal ekki nota sem íverurými.
15
Asparlundur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir girðingu á lóðarmörkum, steypt að neðan en úr timbri að ofan. Hæð hennar er að hluta talsvert meira en 1,8 m yfir landi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
16
Útivistarstígur frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði. Breyting á deiliskipulagi Heiðmerkur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkurs sem gerir ráð fyrir breytingu á legu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði. Skipulagsnefnd metur breytinguna óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal Umhverfisstofnun og Landsneti. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef umsagnaraðilar hafa lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna.
17
Hönnun - Útboð - Útivistarstígur frá Vífilsstaðarvatni að Grunnuvatnaskarði
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði sem er í samræmi við tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur. Lagðar fram umsagnir Landnets, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Hestamannafélagsins Spretts. Í umsögn Spretts er því mótmælt að stígurinn sé í fyrsta áfanga lagður upp í Grunnavatnsskarð þar sem hann tengist reiðstíg.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
18
Hraungata 25-29 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimilað verði að lega bílageymslu víki óverulega frá byggingarreit hennar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem er jákvæð en mælt er með því að horn bílageymslu verði fært frá lóðarmörkum að Holtsvegi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu eins og framlögð gögn sýna en þó þannig að 1 m fjarlægð sé að lóðarmörkum við Holtsveg.
19
Holtsvegur 55 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og hönnuðar hvort að 4 íbúðir sem eru 90,5 m2 að stærð fái heimild fyrir því að vera með bæði bílastæði á lóð en ekki annað í bílageymslu. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram og er hún jákvæð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar.
20
Kinnargata 20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og hönnuðar um það hvort heimilað sé að hafa skyggni yfir dyrum bílageymslu og aðalinngangs í stað þess að þær séu inndregnar. Einnig hvort heimilað verði að þakhalli sé 12° í stað 15°. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar varðandi umrædd atriði og er hún jákvæð.
Með vísan í umsögn gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar. Bent er á að þakhalli hefur áhrif á efnisval þakklæðninga.
Fyrirspurn um geymslu utan byggingarreits er svarað neikvætt með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar.
21
Hönnun - Útboð - Stígur að Bessastöðum
Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útivistarstígs frá Bessastöðum að Norðurnesvegi. Umsókn er í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfið á grundvelli framlagðra gagna í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
22
Umferðaröryggisáætlun
Haldinn var almennur íbúafundur um umferðaröryggisáætlun þann 29. september sl. Þátttaka var góð og margar gagnlegar ábendingar komu fram.
23