Beint í efni

Lóð fyrir dælustöð neðan Hraunsholtsbrautar. Breyting á deiliskipulagi Hraunsholts

Málsnúmer 2009610

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðar fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2009610)

Bæjarráð Garðabæjar

02

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðar fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

15. (874). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut á móts við gatnamót Drafnaráss, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum að Furuási 2 og Eikarási 1. (Mál nr. 2009610)

Bæjarráð Garðabæjar

05

39. (1947). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut á móts við gatnamót Drafnaráss, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Furuási 2 og Eikarási 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dælistöð við Hraunsholtsbraut á móts við gatnamót við Drafnarás. Dælustöðin yrði grafin inn í brekkuna og vart sýnileg að frá Hraunsholtsbraut.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Furuáss 2 og Eikarás 1.