Beint í efni

13. fundur

17.12.2020
Skipulagsnefnd Garðabæjar

13. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

17.12.2020

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2010333

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás

Lögð fram verkefnislýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að reitur fyrir samfélagsþjónustu 2.06 S sameinist reit fyrir íbúðarbyggð 2.04 Íb. Verkefnislýsingin hefur verið auglýst og kallað eftir umsögnum. Lagðar fram þær umsagnir og ábendingar sem borist hafa við verkefnislýsingu sem hefur verið auglýst. Umsögnum og ábendingum vísað til úrvinnslu breytingartillögunnar.

Málsnúmer 2005435

02

Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra

Umsögnum og ábendingum vegna lýsingar tillögu að aðalskipulagsbreytingu sem nær til óbyggðs svæðis við Brekkuás vísað til úrvinnslu tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra sem nær til sama svæðis.

Málsnúmer 1912201

03

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi

Lögð fram lýsing að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem hefur verið auglýst og kallað eftir umsögnum.

Markmið aðalskipulagsbreytingar eru sett fram í lýsingunni og eru eftirfarandi:

-Ákvarða samfelldar og skýrar stígatengingar í upplandi Garðabæjar.

-Skilgreina betur legu Græna stígsins í upplandi Garðabæjar og tengingu hans við

nágrannasveitarfélögin.

-Ákvarða legu reiðleiðar milli Hafnarfjarðar og Garðabæjar í stað leiðar meðfram

Flóttamannavegi.

-Samræmi legu stíga við rammahluta Vífilsstaðalands í aðalskipulagi Garðabæjar.

-Tryggja samræmi milli aðalskipulags og fyrirhugaðs deiliskipulags Urriðavatnsdala.

-Endurskoða landnotkunarreiti og skipulagsákvæði.

Umsögnum og ábendingum vísað til mótunar breytingartillögunar.

Málsnúmer 2009538

04

Útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum - nýtt deiliskipulag

Skipulags-og matslýsing deiliskipulagstillögu útivistarsvæðis í Urriðakotsdölum lögð fram ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Umsögnum og ábendingum vísað til mótunar deiliskipulagstillögu.

Málsnúmer 2010080

05

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi

Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:

"Bókun vegna óvæginna umæla ÁHJ á bæjarstjórnarfundi.

Undirritaður vill af gefnu tilefni koma eftirfarandi bókun á framfæri, vegna bókunar formanns Bæjarráðs á bæjarstjórnarfundi þann 5. nóv. s.l. og varðaði skipulag á Garðaholti.

Þar hafði undirritaður ekki tök á að verja sig og bókar því hér

Í bókun sinni ýjar formaðurinn ósmekklega að því að undirrót gagnrýni minnar á undarlegt einkavætt skipulag á Garðholti stafi af hagsmunapoti vegna fyrri vinnu minnar við skoðun á möguleikum svæðisins til framtíðar. Fer í manninn frekar en boltann eins og gjarnt er um rökþrota

En það kemur svo sem ekki á óvart að fulltrúi sjálfstæðimanna geri það og ýji að hagsmunapoti ? því margur heldur mig - sig.

Það skal hinsvegar skýrt tekið fram að undirritaður hefur nákvæmlega engra hagsmuna að gæta vegna þessara fornu vinnu, enda fór hún fram fyrir hart nær 20 árum. Verkefninu lauk þá og er að fullu uppgert við þáverandi bæjaryfirvöld.

En minna má á að sú vinna var að frumkvæði þáverandi bæjarstjóra og bæjaryfirvalda sjálfstæðisflokksins sem höfðu nokkuð aðra og nútímalegri framtíðarsýn á þetta svæði, en samflokksfélagar þeirra og núverandi yfirvöld.

Hins vegar þekkir undirritaður svæðið og möguleika þess betur en flestir vegna einmitt þeirrar vinnu. Betur en formaðurinn rökþrota og það er ástæða þess að ég hef beitt mér. Ég veit hverju er fórnað af verðmætum og framtíðar möguleikum þarna, auk þess sem núverandi áform gefa færi á braski sem reyndar er þegar hafið.

Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.

Baldur Ó. Svavarsson "

Málsnúmer 2012104

06

Alþjóðaskólinn. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda

Skipulagsstjóri kynnti tillögu að breytingu deiliskiplags Ása- og Grunda sem gerir ráð fyrir breyttri lögun byggingarreits skólabyggingar á lóð fyrir samfélagsþjónustu við Þórsgrund sem ákveðið hefur verið að ráðstafa til starfsemi Alþjóðaskólans. Tillagan hefur verið unnin í samráði við Alþjóðaskólann. Vísað til skipulagsstjóra til úrvinnslu.

Málsnúmer 2012070

07

Arnarnes-dsk-breyting, Mávanes og Blikanes byggingarreitir

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir neðri hæð á framlóð húsa ofan götu í Blikanesi og Mávanesi. Tillagan er unnin af Hornsteinum ehf að beiðni Garðabæjar. Gert er ráð fyrir 70 m2 (7x10 m) byggingarreit. Markmiðið er að skapa möguleika á nýtingu framlóða um leið og tillit er tekið til meginhluta húsanna og götumyndar og að áhrif viðbyggingar á aðliggjandi lóðir séu sem minnst. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2010462

08

Blikanes 22 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð vegna viðbyggingar. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2012055

09

Haukanes 10- Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um hvort heimilað verði að stækka svalir meira en áður var grenndarkynnt.

Svar: Skipulagsnefnd er ekki jákvæð gagnvart tillögunni og vísar til grenndarkynningar á síðasta ári og niðurstöðu hennar sem byggði m.a. á umsögn deiliskipulagsráðgjafa Arnarness.

Málsnúmer 2012101

10

Hegranes 28 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingareits til vesturs um 2,5 metra þannig að hægt verði að byggja við vesturenda íbúðarhúss.

Svar: Skipulagsnefnd mælir með því að annarra leiða sé leitað til stækkunar en að ganga á bil á milli húsa en eitt að meginmarkmiðum skipulags í Arnarnes hefur verið að byggingar byrgi ekki á útsýni frá öðrum húsum.

Málsnúmer 2010451

11

Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Umsókn Fjölráðs ehf um byggingarleyfi lögð fram sem gerir m.a. ráð fyrir brennsluofni fyrir dýrahræ ásamt skorsteini og stæði fyrir metangasgeyma á lóð.

Skipulagsnefnd telur að starfsemi með brennsluofn fyrir dýrahræ og staðsetning gáma á lóð með metan kútum geti ekki verið í samræmi við yfirbragð og eðli starfsemi miðsvæðis eins og svæðið er skilgreint í kafla 3.4. í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Skipulagsnefnd telur því að samkvæmt gildandi deiliskipulagi og aðalskipulagi séu ekki fyrir hendi lögmæt skilyrði til að gefa út byggingarleyfi fyrir brennsluofn fyrir dýrahræ ásamt reykháfi og stæði fyrir metangasgeyma á lóðinni við Kirkjulund 17.

Málsnúmer 2010246

12

Grenilundur 10 og 12 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum að Grenilundi 10 og 12 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Lunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2011349

13

Bakkaflöt 12 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall sé aukið úr 0,45 í 0,51. Þau rými sem auka nýtingarhlutfall eru í kjallara.

Tillaga gerir einnig ráð fyrir því að hámarkshæð hækki um 70 cm úr 4,2 í 4,9.

Skýringarmyndir fylgja af hugmyndum um nýtt einbýlishús á lóðinni sem gera ráð fyrir niðurrifi núverandi húss.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Bakkaflatar 7,9,10,11 og 14.

Gögn skulu gera betur grein fyrir tillögunni og skulu lögð fram áður en grenndarkynning fer fram.

Málsnúmer 2012115

14

Smáraflöt 12 Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur stækki um 50 cm til vesturs á 11,5 m kafla fyrir miðjum byggingarreit.

Skipulagsnefnd metur breytinguna óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 10 og 14 og Stekkjarflatar 13, 15 og 17 .

Málsnúmer 2011173

15

Víkurgata 1-7, dsk breyting

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að neðsta hús í raðhúsaröðinni verði skipt í tvær íbúðir. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda.

Með vísan í umsögnina er tillögunni hafnað.

Málsnúmer 2012153

16

Maríugata 5-7 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga sem lóðarhafi hefur óskað eftir um breytingar á fjölbýlishúsalóðinni.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi:

Að lóðinni og byggingarreit verði skipt í tvennt. Um er að ræða húsagerð F6, alls 34 íbúðir í gildandi deiliskipulagi.

Að íbúðum verði fjölgað um 8 íbúðir á hvorri lóð eftir skiptingu. Íbúðum fjölgar því alls úr 34 í 42.

Að inndreginn byggingarreitur þakhæðar breytist. Í stað kröfu um inndregna þakhæð um 1,5 m frá undirliggjandi hæð er gerð krafa um að þakhæð sé inndregin um 5 metra frá undirliggjandi hæð á göflum.

Heimilt verði að telja svalir til uppbrots sé að lágmarki önnur skammhlið klædd með samfelldum lokuðum fleti með málm eða viðarklæðningu.

Að byggingarreitir bílgeymslu eru sameinaðir og verða eftir breytingu á lóð Maríugötu 7.

Bílastæðum á lóð fjölgar um eitt stæði.

Ekki er óskað eftir auknu heildarbyggingamagni eða breytingu á hæð húsa.

Fyrirhugað er að ráðstafa annarri lóðinni til byggingarfélagsins Bjargs og hinni til byggingarsamvinnufélagsins Búseta.

Lögð fram umsögn skipulagsráðgjafa.

Skipulagsnefnd tekur undir eftirfarandi álit deiliskipulagshöfundar:

"Ekki er lagst gegn uppskiptingu lóðar né fjölgun íbúða á lóð eða breyttri samsetningu íbúðastærða. Í kafla 3.5 í deiliskipulagsskilmálum er lögð áhersla á að skapa aðstæður fyrir ólíka þjóðfélagshópa; einstaklinga og fjölskyldur, unga og aldna með dreifðu framboði ólíkra íbúða, fjölbýlishúsa með hátt hlutfall minni íbúða og með byggingu hagkvæmra leiguíbúða.

Lóðin Maríugata 5-7 hentar vel til byggingu slíkra íbúða.

Uppbrot húss með svölum þar sem a.m.k. önnur skammhlið svala er klædd samræmist því markmiðið deiliskipulagsins að brjóta upp langa samfellda veggfleti í smærri fleti húsa. Ekki er lagst gegn því að falla frá kröfu um að þakhæð sé inndregin að framan þar sem þakhæð er inndregin um 5 metra á göflum."

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem að allar forsendur liggja fyrir í aðalskipulagi er fallið frá forkynningu tillögunnar sbr. 3. mgr. 40. gr. sömu laga.

Málsnúmer 2009610

17

Lóð fyrir dælustöð neðan Hraunsholtsbrautar. Breyting á deiliskipulagi Hraunsholts

Lögð fram tillaga að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Málsnúmer 2009325

18

Tunguás 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur húss stækki til norðurs.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Tunguáss 4,5,6,7 og 9 sem og Víðiáss 3 og 5 og Arnaráss 13,15,17 og 19.

Málsnúmer 2010484

19

Kinnargata 31-33 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um þakform og stöðu þess gagnvart deiliskipulagi. Skipulagsstjóri vísaði málinu til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf og umsögn er lögð fram. Niðurstaða umsagnar er sú að tillagan sé ekki í samræmi við deiliskipulag. Vísað í skoðun hjá skipulagsstjóra.

Málsnúmer 1811064

20

Umferðaröryggisáætlun

Guðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir stöðu á mótun umferðaröryggisáætlunar fyrir Garðabæ.

Málsnúmer 2012049

21

Umferðarljósastýring á Höfuðborgarsvæðinu

Guðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir tillögum um umferðarljósastýringu á höfuðborgarsvæðinu og umræðunni sem fylgir.

Málsnúmer 2011215

22

Lyklafellslína 1 og Ísallína 1 - Beiðni um umsögn

Guðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir stöðu málsins.

Málsnúmer 2011355

23

Fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins

Lagt fram.

Málsnúmer 2011231

24

Landsskipulag. Tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar

Tillaga lögð fram.